Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Fyrir hartnær tuttugu árumskráði Hildur Tryggva-dóttir Flóvenz sig á um-hverfisnámskeið Rauða krossins í Þórsmörk. Þar lærði hún meðal annars um framandi menning- arheima, einnig skyndihjálp og ekki síst almennt um starfsemi Rauða krossins, sem hún heillaðist af. Enda hefur hún allar götur síðan verið viðloðandi félagið, fyrst sem sjálfboðaliði í unglingastarfinu og svo sem starfsmaður á ýmsum sviðum, „bara þar sem kraftarnir nýttust best,“ upplýsir hún. Um þessar mundir virðast þeir nýtast best í deildum Rauða krossins í Hafnarfirði og Garðabæ. Í verkahring Hildar er meðal annars umsjón með nám- skeiðum, ekki ósvipuðum þeim sem á sínum tíma hrifu hana til starfa hjá Rauða krossinum. Fimmtán á hverju námskeiði „Ég hef ekki tölu á öllum þeim börnum og unglingum sem hafa sótt námskeiðin Börn og umhverfi frá því Rauði krossinn hóf að bjóða upp á þau fyrir um tveimur áratugum. Námskeiðin njóta vaxandi vinsælda, ég giska á að samtals hafi hátt á fjórða þúsund krakkar tekið þátt,“ segir Hildur. Fimmtán krakkar tólf ára og eldri eru á hverju námskeiði, sem haldin eru í öllum bæjarfélögum á höfuðborgarsvæðinu og víða úti á landi. Að venju hefjast námskeiðin í lok mars þetta árið og standa fram í júní. Hvert námskeið er alls tólf klukkustundir, en kennt er fjórum Börn læra um börn og skyndihjálp Rauði krossinn stendur fyrir fjölbreytilegum námskeiðum allan ársins hring, jafnt um framandi heima sem og nærumhverfið. Námskeiðin Börn og umhverfi hafa verið vel sótt um tveggja áratuga skeið af krökkum á aldrinum tólf til sextán ára, sem hvort tveggja vilja læra að bjarga fólki í nauð og annast um sér yngri börn, nær og fjær. Dúkkur Þátttakendur fá dúkkur til að æfa sig í meðferð ungbarna. Ungmennastarf Námskeið Rauða kross Íslands eru svipuð og annars staðar í heiminum, en alls staðar er lögð áhersla á skyndihjálp. Í dymbilvikunni, sem nú er gengin í garð, nýta margir tímann til að föndra og búa til eitthvað fallegt sem gleður augað á páskunum. Á þessari vefsíðu er að finna ótal hugmyndir að hvers kyns páskaföndri og ekki síst páskalegri matseld. Kanína hefur löngum verið tengd við páskana og því er tilvalið að búa til fallega bleika pönnukökukanínu. Það er ekki eins erfitt og það lítur út fyrir að vera ef myndum og leið- beiningum er fylgt í þaula sem eru á vefsíðunni. Galdurinn felst í því að nota túbu með góðri sprautu sem deigið er sett inn í og því sprautað á bökunarplötu, sem er svo bökuð inni í ofni. Eftir það er kanínan skreytt að vild. Þetta á eflaust eftir að slá í gegn hjá yngstu kynslóðinni og ekki verra ef hún tekur líka þátt í að búa kan- ínuna til. Vefsíðan www.iheartnaptime.net/bunny-pancakes-tutorial/ Kanína Þessa kanínu er einfalt að útbúa og hægt að leggja hana sér til munns. Bragðgóð pönnukökukanína Hildur Friðriksdóttir, meistaranemi í félagsvísindum við Háskólann á Ak- ureyri, heldur í dag fyrirlestur kl. 17 í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskriftinni Hin fullkomna kvenímynd. Þar mun hún fjalla um félagslega og menningarlega mótaðar hug- myndir um kvenleika og með hvaða hætti þær birtast í menningu og list- um. Jafnframt ætlar Hildur að tala um listakonur sem hafa notað list- sköpun til að miðla pólitískri ádeilu á útlitskröfur samtímans. Aðgangur á fyrirlesturinn er ókeypis. Endilega… …fræðist um kvenímynd Fyrirlestur Hildur Friðriksdóttir fræðir um hina fullkomnu kvenímynd. Páskahátíðin fer ekki fram hjá dýr- unum í dýragarðinum í Hannover í Þýskalandi. Dýrin fengu mörg hver að gæða sér á dýrindis páskaeggjum að gefnu tilefni. Inni í páskaeggjunum, sem eru úr pappa, var ýmislegt góð- gæti að finna, til dæmis var kjöt inni í eggi skunksins sem nefnist Lavender. Nafngiftin vísar eflaust til hins góða ilms sem skunkar gefa alla jafna frá sér. Simpansinn var einnig ánægður en hann fékk þó ekki kjöt. Hann opnaði pappaeggið af mikilli kunnáttu og tíndi innihaldið upp í sig. Páskaegg í dýragarðinum í Hannover Dýrin fengu kjöt og ýmislegt góðgæti og líkaði það mjög vel AFP Skunkur Þetta er skunkurinn Lavender en hann fékk kjöt í sínu páskaeggi. Nammi Simpansinn var mjög ánægður með innihaldið í páskaegginu. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Láttu okkur létta undir fyrir næstu veislu Háaleitisbraut 58-60 • 108 Reykjavík • haleiti@bjorg.is • Sími 553 1380 GÆÐI – ÞEKKING – ÞJÓNUSTA Serviettu- og dúkaleiga Gardínuhreinsun Dúkaþvottur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.