Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 E N N E M M / S ÍA / N M n m 6 7 4 6 0 Kynntu þér páskaopnun allra Vínbúða á vinbudin.is OPNUNARTÍMI UM PÁSKANA VÍNBÚÐIRNAR Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG AKUREYRI Þriðjudagur 31. mars 11-18 Dalvegur, Skeifan og Skútuvogur 10-20 Miðvikudagur 1. apríl 11-19 Dalvegur, Skeifan og Skútuvogur 10-20 Skírdagur LOKAÐ Föstudagurinn langi LOKAÐ Laugardagur 4. apríl 11-18 Páskadagur LOKAÐ Annar í páskum LOKAÐ Tónlistarmaðurinn Megas mun á miðvikudag klukkan 18 flytja tvo Passíusálma í Grafarvogskirkju við undirleik Hilmars Arnars Agnars- sonar, organista. Þá mun Mörður Árnason, vara- þingmaður, lesa úr nýrri bók, sem hann hefur unnið um Passíusálm- ana. Á föstudaginn langa frá kl. 13 til 18 mun Sigurður Skúlason, leikari, lesa alla sálmana 50. Tónlistaatriði í umsjá Hákonar Leifssonar verða á milli sálma. Sigurður hefur síðastliðin 6 ár flutt alla Passíusálmana í Saurbæj- arkirkju á Hvalfjarðarströnd á föstudaginn langa. Á föstudagskvöld mun Rúv sýna mynd um þrenna tónleika, sem haldnir voru í Grafarvogskirkju fyr- ir páskana á síðasta ári en þá flutti Megas lög sem hann hefur samið við alla Passíusálmana. Passíu- sálmarnir fluttir  Allir sálmarnir lesnir á föstudag Morgunblaðið/Ómar Sálmasöngur Megas flutti alla Passíusálmana fyrir síðustu páska. Skíðagöngumót í Fljótum, svokallað Fljótamót á vegum ferðafélags Fljóta, verður haldið öðru sinni á föstudaginn langa, 3. apríl, og hefst kl. 13. Skráning í mótið fer fram á staðnum, við félagsheimilið Ketilás, frá kl. 11.30 til 12.30 þann dag. Stefnt er að því að þetta verði árlegur viðburður í Fljót- um eftir góðar viðtökur um páskana í fyrra, segir Björn Z. Ásgrímsson, einn aðstandenda mótsins. Í fyrra mættu rúmlega 50 keppendur til leiks á öllum aldri, eða frá 4 til 74 ára. Að auki kom fjöldi áhorfenda; að- standendur keppenda og gestir, samtals um 200 manns. Keppendum verður skipt niður eftir aldursflokkum og vegalengdum, 1 km, 5, 10 og 20 km. Að sögn Björns er lögð áhersla á að fá alla fjölskylduna til þátttöku en að keppni lokinni er efnt til kaffisamsætis og lokahófs í Ketilási, þar sem fram fer verðlauna- afhending og happdrætti. Von er á gömlum og nýjum skíðaköppum, bæði fyrrver- andi og núverandi ólympíuförum, sem og byrjendum á öll- um aldri. Mótstjórn verður í höndum Birgis Gunnarssonar. Markmið mótsins er að stuðla að vexti og viðgangi skíða- íþróttarinar á svæðinu og aukinni ferðamennsku í Fljótum. Björn getur þess að í ár eru 110 ár frá því að fyrsta skíða- mótið hérlendis fór fram, þ.e. í Fljótum árið 1905 en þá stóðu Fljótamenn og Siglfirðingar saman að framkvæmd þess. Þátttakendur voru 20 og keppt var í brekkurennsli af Barðshyrnu og niður á jafnsléttu. Ólafur Gottskálks kom fyrstur í mark og fékk 25 kr. í verðlaun, sem þótti gott þá. Gengið aftur í Fljótum Ljósmynd/Vignir Skíðaganga Frá fyrsta skíðagöngumóti ferðafélags Fljóta á síðasta ári. Ræst verður skammt frá Ketilási kl. 13 á föstudaginn langa, 3. apríl nk.  Fljótamót í skíðagöngu endurtekið á föstudaginn langa Áratugalöng hefð er fyrir samkirkjulegri útvarpsguðs- þjónustu á skírdagsmorgun kl. 11 í umsjá samstarfs- nefndar krist- inna trúfélaga á Íslandi. Guðsþjónustan fer að þessu sinni fram í Seltjarn- arneskirkju og er, eins og und- anfarin ár, helguð alþjóðlegum bænadegi kvenna. Flutt verða bænarefni frá Ba- hamaeyjum. Hjördís Kristinsdóttir, flokksforingi Hjálpræðishersins í Reykjavík, flytur hugleiðingu. Friðrik Vignir Stefánsson annast orgelleik og félagar úr Kammerkór Seltjarnarneskirkju leiða almennan söng. Fulltrúar samstarfsnefndar kristinna trúfélaga og alþjóðlegs bænadags kvenna lesa. Guðsþjón- ustuna leiða sr. Bjarni Þór Bjarna- son og sr. María Ágústsdóttir. Samkirkjuleg útvarpsguðs- þjónusta Seltjarnar- neskirkja.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.