Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 18
BAKSVIÐ Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Rétt um 700 milljónir króna voru teknar út af reikningum í Sparisjóði Vestmannaeyja á fimmtudag og föstudag í liðinni viku og rýrði það lausafé sjóðsins um helming. Úttekt- ir hvors dags námu rétt um 350 milljónum króna. Einn viðskiptavin- ur Sparisjóðsins tók um þriðjung fjárhæðarinnar út. Í tilkynningu sem Fjármálaeftirlitið sendi frá sér í fyrradag segir að sjóðurinn hefði ekki haft bolmagn til að tryggja nægjanlegan aðgang að lausu fé á komandi dögum, hefði hreint útflæði innstæðna haldið áfram í svipuðum mæli. Sú staðreynd varð þess valdandi, ásamt öðrum veikleikum í starfsemi sjóðsins, að FME ákvað um helgina að hefja samrunaferli Sparisjóðs Vestmannaeyja ses. og Landsbankans hf. Segir í tilkynn- ingu frá FME að það sé gert til að koma „í veg fyrir frekara tjón fyrir viðskiptavini sjóðsins, stofnfjáreig- endur og skattgreiðendur“. Þegar áhlaupið hófst á Sparisjóð- inn breyttist vandi hans úr því að vera fyrst og fremst tengdur eigin- fjárstöðu hans og varð í kjölfarið einnig lausafjárvandi. Þyngsta höggið Af þeim 700 milljónum sem teknar voru út fyrir liðna helgi tók einn við- skiptavinur sjóðsins út rétt um þriðjung heildarupphæðarinnar, eða rúmar 200 milljónir króna, í einni millifærslu. Samkvæmt áreiðanleg- um heimildum Morgunblaðsins var það greiðslumiðlunarfyrirtækið Borgun hf. sem flutti fjármuni sína af reikningum Sparisjóðsins í kjölfar frétta af veikri eiginfjárstöðu hans. Borgun er að stærstum hluta í eigu Íslandsbanka sem á 63,47% hluta- fjár í fyrirtækinu. Annar stærsti eig- andi Borgunar er Eignarhaldsfélag Borgunar ehf. sem á 25,48% en aðrir hluthafar eiga minna og er Spari- sjóður Vestmannaeyja í þeim hópi. Ekki er langt síðan Landsbankinn losaði um hlut sinn í fyrirtækinu. Nokkrir stórir aðilar, m.a. fyrir- tæki og stofnanir í Vestmannaeyj- um, héldu að sér höndum í lok vik- unnar þrátt fyrir fréttir af slæmri stöðu Sparisjóðsins. Heimildir Morgunblaðsins herma að þau hafi ekki tekið út verulegar fjárhæðir af reikningum sínum í sjóðnum, að undanskildum reglubundnum hreyf- ingum sem ekki verða tengdar þeirri stöðu sem upp var komin vegna end- urmats á útlánasafni sjóðsins. Íslandsbanki stór í Eyjum Íslandsbanki hefur mjög sterka stöðu í Vestmannaeyjum og er útibú hans þar í bænum umfangsmikið og þjónustar mörg stór fyrirtæki á svæðinu. Forveri Íslandsbanka, Út- vegsbankinn, rak umfangsmikla starfsemi í útibúi sínu í bænum á sinni tíð eða allt þar til hann rann saman við Iðnaðarbankann, Alþýðu- bankann og Verslunarbankann árið 1990. Ljóst er að helsti samkeppnis- aðili Íslandsbanka í Eyjum verður Landsbankinn, nú þegar Sparisjóð- ur Vestmannaeyja heyrir sögunni til. 700 milljónir teknar út úr Sparisjóði Vestmannaeyja Morgunblaðið/Árni Sæberg Áhlaup Borgun, sem m.a. er í eigu Íslandsbanka, tók út rúmlega 200 milljónir í Sparisjóði Vestmannaeyja. Innlán hjá Sparisjóðnum » Samkvæmt milliuppgjöri námu almenn innlán SV 10,8 milljörðum króna þann 30. júní 2014. » Óbundin innlán voru 3,6 milljarðar. » Bundin innlán námu 6,4 milljörðum og sérstök innlán voru 800 milljónir. » Um mitt ár 2014 höfðu inn- lán í SV dregist saman um 300 milljónir frá áramótunum á undan.  Dótturfélag Íslandsbanka tók út rúmar 200 milljónir í áhlaupinu fyrir helgi 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015                                    !  !" #"$% %  # $% $!" "# $" &'()* (+(      ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5 "# !% !%$ #% %!  "  $!#% $ ""! $%$   !" !%" #%"# %!% "# $ % ""# $%" ! # Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagnaður færeyska skipafélagsins Smyril Line nam 36,1 milljón danskra króna á árinu 2014, sem jafngildir um 716 milljónum íslenskra króna. Samkvæmt frétt vefmiðilsins Portal.fo þakka stjórnendur fyrirtæk- isins stöðugum vexti í sölu og hag- kvæmum rekstri þessa bættu afkomu. Aðstæður hafi verið hagstæðar í ljósi aukinnar sölu, fjölgunar ferðamanna, vaxandi flutninga, bætts þjónustustigs og lægra olíverðs. Telja stjórnendur fyrirtækisins jákvæðar horfur fyrir ár- ið 2015 og góðir möguleikar séu á því að afkoman í ár verði enn betri en í fyrra. Rekstur Smyril Line gekk vel á síðasta ári ● Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. var samþykkt að greiða 326 milljónir króna í arð til hluthafa. Á aðalfundinum var sjálfkjörið í stjórn þar sem formaður stjórnar er Vilhjálmur Vilhjálmsson. Aðrir stjórnarmenn eru Kristján Lofts- son, Auður Kristín Árnadóttir, Guð- mundur Ásgeirsson og Sigrún Þorleifs- dóttir. Þóknun til stjórnarmanna fyrir störf á liðnu ári nemur 1,2 milljónum króna og fær formaðurinn þrefaldan hlut. Hampiðjan með 326 milljóna króna arð STUTTAR FRÉTTIR ... Um 3.600 fjárfestar óskuðu eftir að kaupa hlutabréf í Reitum fasteigna- félagi hf. sem lauk fyrir helgi. Arion banki bauð þar til sölu 100 milljónir hluta sem jafngilda 13,25% hlutafjár í félaginu. Heildarsöluandvirði í út- boðinu reyndist vera 6,4 milljarðar króna sem gerir markaðsvirði Reita um 48 milljarða króna. Alls nam eftirspurn í útboðinu samtals 25,5 milljörðum króna. Útboðið var tvískipt og var óskað eftir áskriftum að andvirði 100 þús- und til 10 milljónir í tilboðsbók A á verðbilinu 55,5 til 63,5 krónur á hlut. Í þeim hluta útboðsins var 3,31% hlutafjár selt á genginu 63,5 krónur á hlut. Fyrir tilboðsbók B var óskað eftir 10 milljón króna áskriftum að lágmarki. Í þeim hluta seldust 9,94% hlutafjár í Reitum á genginu 64,0 krónur á hlut. Hámarksúthlutun til hvers fjár- festis í tilboðsbók A verður um 520 þúsund krónur að kaupverði, en áskriftir fyrir allt að 500 þúsund krónum verða ekki skertar. Í tilboðs- bók B verða áskriftir sem bárust á verði yfir genginu 64,0 krónur á hlut óskertar. Hins vegar verða áskiftir sem bárust á 64,0 krónur skornar niður hlutfallslega og nemur heild- arskerðing þeirra um 650 milljónum króna. Í kjölfar tilkynningar um sölu hlutabréfa Arion banka í Reitum, samþykkti Kauphöllin í gær umsókn félagsins um töku hlutabréfa þess til viðskipta á Aðalmarkað Kauphallar- innar frá og með fimmtudeginum 9. apríl næstkomandi. „Við endurfjármögnun félagsins í lok síðasta árs keypti hópur lífeyris- sjóða stóran hlut í félaginu og það er ánægjulegt að sjá nokkra þeirra bæta frekar við eignarhlut sinn nú í útboðinu en í þeim hópi eru einmitt þeir tveir aðilar sem eiga stærstu einstöku úthlutanir í útboðinu eða um 2% í félaginu hvor um sig,“ segir Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, í tilkynningu um útboðið. „Við fögnum því jafnframt að með þeirri fjölgun sem nú er að verða í hluthafahópnum fáum við breiðan hóp af bæði fagfjár- festum og einkafjárfestum til liðs við félagið og hlökkum til að eiga með þeim samleið inn í Kauphöll Ís- lands.“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Reitir Á meðal eigna fasteignafélagsins er verslunarmiðstöðin Kringlan. Arion seldi fyrir 6,4 millj- arða króna í útboði Reita  Markaðsvirði félagsins metið á 48 milljarða króna PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 16 mánudaginn 13. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is -Meira fyrir lesendur Sérblað Morgunblaðsins um brúðkaup kemur út föstudaginn 17. apríl Fatnaður fyrir brúðhjónin, förðun og hárgreiðsla, brúðkaupsferðin, veislumatur, veislusalir og brúðargjafir eru meðal efnis í blaðinu. BRÚÐKAUPSBLAÐIÐ SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.