Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Enn hefur ekki tekist að finna annan „svarta kassann“ úr farþegaþotu Germanwings-félagsins, sem hrap- aði í frönsku Ölpunum fyrir viku. Áð- ur hafði fundist kassi með upptökum á samtölum flugmanna. Ljóst er að aðstoðarflugmaður þotunnar, Andr- eas Lubitz, beindi henni af ásettu ráði til jarðar. Talið er að hann hafi verið haldinn alvarlegum geðsjúk- dómi en leynt því fyrir ráðamönnum Germanwings. Búið er að finna líkamsleifar 78 manns, þ. á m. Lubitz, en alls fórust 150 með þotunni. Aðstæður eru afar erfiðar til leitar, ekki einu sinni hægt að lenda þyrlu á staðnum. Er nú ver- ið að leggja þangað veg. Ísraelskir sérfræðingar í að greina líkamsleifar munu taka þátt í að rannsaka leif- arnar en þeir hafa mikla reynslu af slíku eftir að hafa starfað á vettvangi eftir sprengjutilræði hermdarverka- manna. Talið er hugsanlegt að týndi svarti kassinn finnist aldrei, höggið hafi verið svo mikið að hann hafi sundrast algerlega, orðið að dufti, að sögn Dagens Nyheter. Germanwings er dótturfélag Luft- hansa sem átt hefur í verulegum rekstrarerfiðleikum að undanförnu. Búist er við að aðstandendur muni gera miklar kröfur um skaðabætur vegna hrapsins, að sjálfsögðu lendir kostnaðurinn á tryggingafélögum Lufthansa. Lubitz leyndi veikindum sínum og þýsk lög um persónuvernd gerðu honum það kleift. En er Lufthansa örugglega laust allra mála? „Flugfélagið ber ótak- markaða ábyrgð nema það geti sann- að að það hafi ekki gert neitt rangt,“ hefur blaðið Financial Times eftir Steven Marks, sérfræðingi í málum gegn flugfélögum. Talið að annar svarti kassinn hafi sundrast  Spáð háum skaðabótakröfum AFP Leitin Sérfræðingar í réttarrann- sóknum á vettvangi í Ölpunum. Í vanda » Sú regla að aldrei skuli að- eins einn vera í stjórnklefa gilti ekki hjá Lufthansa. » Félagið hefur verið þjakað af verkföllum og mun ekki standa vel fjárhagslega. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þriggja daga viðræður Grikkja og lánardrottna þeirra um helgina virð- ast ekki hafa borið árangur og er nú spáð að stjórnvöld í Aþenu muni lenda í greiðslu- þroti 20. apríl. Seðlabanki Evrópusam- bandsins, fram- kvæmdastjórn sambandsins og Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn krefj- ast þess að stjórn Alexis Tsipras forsætisráðherra leggi fram beinharðar tillögur um umbætur ef Grikkir eigi að fá frekari lán. Þannig verði að tryggja að breytingar á innheimtu skatta skili árangri en Grikkir eru sagðir snill- ingar í að nýta sér glufur í skattalög- um. Auk þess þurfi að auka frelsi í at- vinnulífinu. Þar eru margvísleg höft sem hygla mjög þeim sem fyrir eru í starfi. Ríkisgeirinn er einnig geysi- lega stór og þar nær spilling oft ótrúlegum stærðargráðum, að sögn heimildarmanna. En Jyllandsposten hefur eftir diplómat hjá ESB að sendinefnd Grikkja hafi aðeins lagt fram lista með rafrænum gögnum úr farsímum og þau séu öll á grísku. „Listinn er allt of óljós, ótrúverð- ugur og ekki í samræmi við efna- hagslegar staðreyndir,“ segir hann. Gríska blaðið Ekathimerini segir að stjórn Tsipras hafi nú ákveðið að selja ríkiseignir en áður var stefnan sú að hætta við einkavæðingu þeirra sem fyrri stjórn áformaði. Er nú tal- ið víst að kínverska fyrirtækið Cosco muni kaupa höfnina í Píreus. Gríska stjórnin sögð ætla að selja ríkiseignir  ESB-diplómat segir umbætur Tsipras ótrúverðugar Alexis Tsipras Matsfyrirtækið Fitch hefur lækkað einkunn Grikklands vegna langtímalána og er hún nú CCC. Fyrir styttri lán er hún þó skárri eða B. Evrurnar hafa streymt úr landinu undanfarnar vikur enda óttast margir Grikkir um sparifé sitt. Mikill skortur er á lausafé í bönkum landsins og veldur það stjórnvöldum vanda við að fjármagna rekstur ríkis- ins. Hagvöxtur sem var farinn að rétta verulega úr kútnum er nú aftur á niðurleið. Féð streymir úr landi Á BRÚN HENGIFLUGS Gengið var til forseta- og þingkosninga í Nígeríu um helgina og er búist við fyrstu tölum í dag. Margir höfðu óttast að til átaka kæmi á kjörstöðum en erlendir eftir- litsmenn sögðu að víðast hvar hefði allt gengið vel þótt sums staðar hefði komið til áfloga. Hermdar- verkamenn Boko Haram höfðu hótað að ráðast á kjör- staði en þrátt fyrir það var kjörsókn mikil. Um 170 milljónir manna búa í Nígeríu sem er fjöl- mennasta ríki Afríku, um helmingur landsmanna er kristinn, hinir múslímar. Sitjandi forseti, Goodluck Jo- nathan, er kristinn og úr suðurhlutanum en aðal- keppinautur hans er múslíminn Muhammadu Buhari, fyrrverandi einræðisherra og hershöfðingi. Buhari hefur fjórum sinnum boðið sig fram til forseta eftir að einræði hersins lauk 1999 en hefur ávallt tapað. Jon- athan þykir hafa mistekist að tryggja öryggi borgar- anna og er sagður hafa látið geysilega spillingu óá- reitta. Um 80% af tekjum ríkisins koma úr olíuvinnslu. Kosningar í Nígeríu sagðar hafa gengið vel fyrir sig AFP Spáð að mjótt verði á mununum Palestínumenn á Gaza frömdu stríðsglæpi í átökunum við Ísr- aela sumarið 2014, segir í nýrri skýrslu mann- réttindasamtak- anna Amnesty International. Þeir drápu bæði ísraelska borgara og palestínska þegar þeir beittu ólöglegum flugskeytum án mið- unarbúnaðar. Meðal samtakanna sem börðust eru vopnasveitir Hamas sem stýra Gaza. Eitt flugskeyta Hamas-manna lenti vegna mistaka á flótta- mannabúðum Palestínumanna og varð 13 borgurum að bana. Hamas kenndi á sínum tíma Ísrael um atvik- ið. Í skýrslunni er Hamas einnig sak- að um að hafa komið flugskeytum fyrir í borgaralegum húsum og skóla á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þá skutu Hamas-menn flugskeytum frá stöðum þar sem óbreyttir borg- arar höfðu leitað skjóls. FLUGSKEYTI GEYMD Í SKÓLUM OG HÚSUM ÓBREYTTRA BORGARA Amnesty sakar Hamas um stríðsglæpi í átökunum við Ísraela í fyrra Glæpir Vopnaður Hamas-liði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.