Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Æ skemmra er að verða á milliSamfylkingar og Vinstri- grænna eftir að báðir flokkar hafa ýmist svikið kjósendur sína eða kú- vent í afstöðu til sinna hjartans mála.    Einhver mestupólitísku svik sögunnar, þessi þeg- ar Steingrímur J. bakkaði frá margí- trekuðum skýrum loforðum um að fara ekki í aðild- arviðræður að loknum kosn- ingum 2009, voru fyrsta skrefið í þá átt að afmá muninn á VG og Samfylkingu.    Steingrími tókst að hrekja ESB--andstæðingana úr flokknum og fá þá sem eftir voru til að fylkja sér um kíkja-í-pakkann-stefnuna til að þóknast Samfylkingunni.    Og nú hefur Samfylkingin stigiðafgerandi skref í átt til VG með því að ómerkja alla fyrrverandi olíumálaráðherra flokksins og hafna olíuleitar- og olíuvinnslu- stefnu sem flokkurinn fylgdi af stað- festu um árabil.    VG er nú líka aftur orðinn and-vígur olíuleitinni eftir að Stein- grímur J. hafði sjálfur heimilað hana, þvert á vilja flokksins, líkt og var um aðildarumsóknina að ESB.    Eftir þessar sviptingar er ljóst aðfá grundvallarmál skilja að þessi tvö flokksbrot Alþýðuflokks og Alþýðubandalags.    Og þegar horft er til þess að for-menn og helstu forystumenn beggja flokksbrotanna koma úr Al- þýðubandalaginu, er þá ekki tilvalið að sameina loks kraftana? Væru ekki tvö brot stærri en eitt? STAKSTEINAR Veður víða um heim 30.3., kl. 18.00 Reykjavík -2 skýjað Bolungarvík -4 skýjað Akureyri -2 skýjað Nuuk -12 snjóél Þórshöfn 4 léttskýjað Ósló 5 léttskýjað Kaupmannahöfn 8 skýjað Stokkhólmur 2 skúrir Helsinki 1 slydda Lúxemborg 8 heiðskírt Brussel 8 léttskýjað Dublin 10 skýjað Glasgow 3 skúrir London 11 léttskýjað París 12 skúrir Amsterdam 7 léttskýjað Hamborg 7 skýjað Berlín 6 skúrir Vín 10 léttskýjað Moskva 0 alskýjað Algarve 22 heiðskírt Madríd 25 heiðskírt Barcelona 17 léttskýjað Mallorca 23 heiðskírt Róm 17 skýjað Aþena 15 skýjað Winnipeg 2 skýjað Montreal 2 snjókoma New York 5 alskýjað Chicago 12 léttskýjað Orlando 20 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 31. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 6:50 20:15 ÍSAFJÖRÐUR 6:51 20:24 SIGLUFJÖRÐUR 6:34 20:07 DJÚPIVOGUR 6:19 19:45 Mannanafnanefnd hafnaði á fundi í síðustu viku umsókn um millinafnið Beinteins. Segir nefndin í úrskurði, að nafnið Beinteinn sé til sem eiginnafn karlmanns í íslensku. Beinteins sé eignarfallsmynd þess nafns og því óheimilt að fallast á það. Nefndin samþykkti meðal annars karlmannsnöfnin Aðalvíking og Móa og kvenmannsnöfnin Eskju og Rósalíu. Nefndin hafnaði hins veg- ar beiðni um eiginnafnið eða milli- nafnið Builiener. Var niðurstaðan sú, að þetta nafn uppfyllti ekki skil- yrði laga um mannanöfn þótt ein íslensk kona beri nafnið nú. Meðal nafna sem manna- nafnanefnd samþykkti voru Kai, Arngarður og Mói. Þótt Kai sé ekki ritað í samræmi við almennar rit- reglur íslensks máls telst það hafa unnið sér hefðarrétt en sex íslensk- ir karlar heita þessu nafni. Mannanafnanefnd féllst einnig á beiðni konu um að taka upp kenn- ingu til móður sinnar, sem heitir Tetyana. Óskaði konan eftir því að rita kenninafnið Tönyudóttir. Þá var einnig fallist á beiðni konu um að taka upp kenningu til föður síns, sem heitir Lorenz, og óskaði eftir því að rita kenninafnið Lórenzdótt- ir. Eignarfallsmynd nafns hafnað  Nöfnin Aðalvíkingur og Rósalía meðal þeirra sem samþykkt voru Hvað á barnið að heita? Skírnar- fontur í Hafnarfjarðarkirkju. Haraldur Briem sóttvarnalæknir lætur af störfum í haust en hann verður sjötugur í sumar. Starfið var auglýst til umsóknar um helgina og verð- ur ráðið í það frá 1. sept- ember. Haraldur hefur sinnt starfinu í átján ár eða allt frá því embættið var stofnað með lögum árið 1997. Í samtali við Morgunblaðið játar Haraldur að af þeim sökum hafi hann vissulega mótað embættið á þessum átján árum. Í auglýsingu segir að embætti landlæknis beri ábyrgð á fram- kvæmd sóttvarna undir yfirstjórn ráðherra. Við embættið skuli starfa sóttvarnalæknir sem ber ábyrgð á sóttvörnum. Þá segir að umsækjendur skuli hafa sérfræðimenntun í læknis- fræði, þekkingu á smitsjúkdómum og faraldsfræði þeirra og stjórnunarreynslu, og er leitað að einstaklingi með góða samskipta- og leiðtogahæfileika. Haraldur Briem Lýkur 18 ára starfi  Hefur gegnt emb- ættinu frá upphafi Ecco Biom Terrain Stærðir: 40-47 Verð kr. 31.995 Ecco Biom Terrain Stærðir: 36-41 Verð kr. 31.995 Frábærir í útivistina ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050 STEINAR WAAGE KRINGLAN WWW.SKOR.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.