Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú hefur lengi ætlað að koma mál- um þínum á framfæri en hefur ekki haft tækifæri til þess. Allt virðist vera falt um þessar mundir. Láttu óskhyggjuna ekki ráða því hvernig þú sérð hlutina. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú gerir svo mikið fyrir aðra. Vitandi það er það á þína ábyrgð að taka afstöðu með réttlátum málstað. Láttu ekki ýta þér út í neitt sem þú ert ekki handviss um að sé gott. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Láttu það eftir þér að njóta dags- ins og gerðu eitthvað ánægjulegt fyrir sjálf- an þig. Ekki æða samt áfram án þess að spyrja samstarfsfólk þitt ráða. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú skalt vera varkár í umferðinni í dag. En þegar hver hlutur er kominn á sinn stað mátt þú vel við una. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Áætlanir sem þú hefur uppi um að auka tekjur þínar sigla í strand á næstu mánuðum. Að gefa undirbýr það að þiggja. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það besta sem gæti komið fyrir þig er að taka ábyrgð. Reyndu að líta til baka og finna gamlar lausnir sem hafa reynst vel. 23. sept. - 22. okt.  Vog Láttu ekkert freista þín svo að þú eigir á hættu að missa mannorðið fyrir það. Hafðu taumhald á skapi þínu. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Einmitt þegar þú hélst að þú værir laus við ákveðið mál er því dembt aftur á þitt borð. Kvöldinu er best varið heima við. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Farðu varlega í að taka ákvarð- anir um eitthvað sem tengist sameigin- legum eigum eða skuldum. Brjóttu þér þá leið til framkvæmda. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt að aðrir fari að dæmi þínu í vinnunni eða við einhvers konar skipulagningu. Tækifærin sem þú færð krefjast visku, ekki lífsleiða, fágunar, ekki þreytu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þú vilt endilega breyta rétt svo þú þarf að skoða allar hliðar málsins. Gefðu þér tíma til þess að fara í gegnum málin og skipuleggja framgang þeirra. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er ekkert gaman að keppa við einhvern sem maður getur unnið auðveld- lega – nema þú sért hrekkjusvín og það ertu alls ekki. Að öðrum kosti getur farið illa. Flestir kunna þessa vísu eftirHannes Hafstein og má að vísu segja að það sé ekki að ástæðulausu að ég rifja hana upp: Fegurð hrífur hugann meira’ ef hjúpuð er, svo andann gruni ennþá fleira’ en augað sér. Þorsteinn Gylfason skrifaði skemmtilegan flokk „Svo mælti Jónas“ í Skólablaðið veturinn 1957- 58. Þar segir á einum stað: „Svo kom að lokum, að boð- skapur ljóðanna vék að öllu fyrir rími og hrynjandi og þau misstu áhrifamátt sinn, og skáldin urðu lýðnum einskis virði. Þér heyrðuð, að skáldið kvað: Þinn líkami er fagur sem laufguð björk. En sálin er ægileg eyðimörk. En ég kenni yður að yrkja á nýj- an hátt: Líkami þinn minnir á laufgaða björkina í fegurð sinni. En sálin er auðn eins og Sahara á Spáni eða Sýrakúsu. Í stað þess að fullyrða, að líkami konunnar sé eins og laufguð björk, stendur þar: Líkami þinn minnir mig á laufgaða björk. Með því að vera í vafa um, hvort auðnin Sahara sé á Spáni eða Sýra- kúsu, lýsir skáldið andúð sinni á borgaralegri menntun og upp- skafningshætti. – Svo mælti Jónas: Meistari! Vér dáum vizku þína.“ Kristján Karlsson orti: „Það kvað vera fallegt í Kína,“ sagði kona eða lét í það skína. Hvað hún hét veit nú enginn, hún er annaðhvort gengin eða afplánar varfærni sína. Á hagyrðingakvöldi í Þingeyj- arsýslu spurði Steingrímur í Nesi: „Hvað er fegurð“ og Egill Jónasson svaraði: Fegurð sést í margri mynd mögnuð ástarhita, en fullkomnust í sælli synd segja þeir sem vita. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Hjúpuð fegurð og líkami konunnar Í klípu „MÉR FINNST GLÓPERUR BETRI. ÞÆR ERU EKKI MJÖG ORKUSPARANDI – EN ÉG ER ÞAÐ EKKI HELDUR.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÓKEI, TAKTU ÞÉR PÁSU!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar hann kennir þér að keyra, möglunarlaust. DRAUGUR! ÉG ER EKKI DRAUGUR. ÉG ER TALANDI LAK. OG LITLI VINUR ÞINN ER? OG LITLI VINUR ÞINN ER? HÆ! FJARSTÝRING, TÍMI TIL AÐGERÐA FYRIRGEFÐU... ÉG GET EKKI ÚTBÚIÐ NESTIÐ ÞITT Í DAG... EKKI SEGJA MÉR AÐ ÞÚ HAFIR KLÁRAÐ MATINN! NEI... ÉG KLÁRAÐI RISAVÖXNU MATARPOKANA Víkverji vissi sem var að GunnarÞórðarson væri frábær lagahöf- undur en gerði sér ekki fyllilega grein fyrir því fyrr en á sunnudag þegar farið var á 70 ára afmælistón- leika Gunnars í Hörpu, sem báru yf- irskriftina Himinn og jörð. Víkverja áskotnuðust miðar á fyrri tónleikana og skemmti sér hið besta. Þarna birtist landslið söngvara og hljóð- færaleikara á sviðinu og flutti marg- ar af perlum Gunnars, allt frá poppi til óperunnar Ragnheiðar. x x x Gæsahúðin var framkölluð ítrekaðog gaman að sjá Gunnar koma fram undir lokin til að flytja gamla og góða slagara eins og Fyrsta koss- inn og Bláu augun þín. Birtist þá ekki Engilbert Jensen óvænt á svið- inu og sýndi að röddin er enn til staðar hjá þeim frábæra söngvara. Gunnar gat einnig stoltur kynnt ungan son sinn til sögunnar, Zak- arías, sem söng með föður sínum og spilaði á gítar. x x x Stemningin í Eldborgarsalnumvar stórkostleg og gestir fengu frábæran tónlistarflutning beint í æð. Af framkomu yngri söngv- aranna má ráða að framtíðin er svo sannarlega björt í íslenskri tónlist. Stefán Jakobs í Dimmu var óborg- anlegur í Gaggó Vest og fékk óvænta aðstoð frá óperusöngv- aranum Elmari Þór Gilbertssyni, sem birtist í rokkgallanum skömmu eftir að hafa sungið með Þóru Ein- ars úr óperunni Ragnheiði. Frábær- ir söngvarar, öll með tölu. x x x Þessi stórkostlega dagskrá sýndieinmitt og sannaði hvað Gunnar Þórðarson er fjölbreytt tónskáld. Víkverji er viss um að áreiðanlega hafi einhverjir í Eldborg verið búnir að gleyma því að Gunnar samdi Heim í Búðardal en vel sást að Páll Óskar fílaði í botn að syngja það lag. x x x Víkverji ætlar að leyfa sér að óskaGunnari til hamingju með 70 ár- in og vonandi verða þau sem allra flest þannig að þjóðin fái áfram notið snilli hans í lagasmíðum. víkverji@mbl.is Víkverji Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. (Síðara Korintubréf 5:17)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.