Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Lífræn Jurtablanda • Bætir meltinguna • Brýtur niður fitu í fæðunni • Hjálpar gegn brjóstsviða • Dregur úr uppþembu • Vatnslosandi • Virkar fljótt Nánari upplýsingar á www.heilsa.is Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum sem léttir meltinguna SVIÐSLJÓS Malín Brand malin@mbl.is Hjónin Guðný Harpa Hallgríms- dóttir og Mohamad Khattab biðu í tæp tvö ár eftir úrskurði um hvort ættingjar Mohamads mættu ferðast hingað til lands til að vera viðstaddir brúðkaupsveislu þeirra hjóna. Mohamad er frá Sýrlandi og þar býr fjölskylda hans. Hann kvæntist Guð- nýju Hörpu í Noregi fyrir þremur árum og ákváðu þau að halda veisl- una þegar þau hefðu komið sér fyrir á Íslandi. Dagsetning veislunnar var 10. júní 2013 en enginn úr fjölskyldu Mohamads var viðstaddur þar sem gestum var synjað um vegabréfs- áritun til Íslands. Hjónin kærðu ákvörðun Útlendingastofnunar til innanríkisráðuneytisins. Ráðuneytið hafði ekki úrskurðað í málinu þegar kærunefnd útlendingamála tók til starfa í byrjun árs. Kærunefndin kvað upp úrskurð sinn í síðustu viku, þann 26. mars, og þar er hin tæplega tveggja ára ákvörðun Útlend- ingastofnunar staðfest. Ólík fjölskylduform Mohamad segir að sér þyki leitt að þetta skuli vera niðurstaðan. „Það er hryggilegt að fjölskylda mín megi ekki koma hingað til lands og fagna með okkur en það sem mér þykir nánast verra er sú lítilsvirðing og niðurlæging sem okkur var sýnd með þessum langa biðtíma. Ekkert var gert í næstum tvö ár“ segir Mohamad. Lítum aðeins á hver saga þessa unga manns, Mohamads Khattab, er. Hann fæddist árið 1982 og ólst upp hjá afa sínum, frænku, frænda og konu hans auk tveggja sona þeirra síðastnefndu. Faðir Mohamads lést í stríði í Líbanon við störf sín sem fréttaljósmyndari. Það var skömmu áður en Mohamad fæddist. Móðir hans skildi drenginn eftir nýfæddan hjá föðurfjölskyld- unni og fór á brott. Fólkið sem hér var talið upp, að móðurinni undan- skilinni, er það fólk sem boðið var til brúðkaupsveislu þeirra Guðnýjar Hörpu og Mohamads. Eiginleg fjöl- skylda hans samanstendur því ekki af hinu hefðbundna formi foreldra og systkina. Í niðurstöðu nefnd- arinnar er þess þó sérstaklega getið að tengsl Mohamads við boðsaðila séu ekki með þeim hætti sem ákjós- anlegt sé til að unnt sé að veita vega- bréfsáritun. Þar segir orðrétt að mikilvægt sé „að um skýr og náin fjölskyldutengsl sé að ræða til að hægt sé að veita vegabréfsáritun“. Getur Ísland verið öðruvísi? Mohamad er lögfræðingur að mennt og vann sem lögfræðingur áð- ur en hann kom til Evrópu. Nú er hann í frekara námi því hann ætlar að sérhæfa sig í afbrotafræði og refsirétti. Þau hjónin eru bæði með lögheimili hér og hefur Mohamad sótt um íslenskan ríkisborgararétt. „Ég fór frá Sýrlandi fyrir sjö árum síðan og hef þar af leiðandi ekki hitt fjölskyldu mína í sjö ár. Sjálfur get ég ekki farið til Sýrlands vegna stjórnvalda og ástandsins þar. Fjöl- skylda mín hafði tök á að koma hing- að og var með alla pappíra í lagi. Þau sýndu fram á að allt væri til fyrir- myndar hjá þeim: Gild ferðaskilríki, nóg af peningum inni á bankareikn- ingum, greidda flugmiða og höfðu fullnægt þeim skilyrðum sem gerð voru,“ segir Mohamad. Fjölskylda hans er ágætlega stæð, allir eru í fastri vinnu og búa í eigin húsnæði. Fjölskyldan sýndi að auki fram á að hún ætti rúmlega 60.000 dollara inni á bankareikningi í Sýr- landi en að sögn Mohamads er gerð krafa um að 20.000 dollarar séu inni á bankareikningi þeirra sem hyggj- ast ferðast frá Sýrlandi til Evrópu. „Þau biðu með allt sem þurfti til ferðalagsins í næstum tvö ár á með- an við hjónin fórum fjölmargar fýlu- ferðir til innanríkisráðuneytisins þar sem við fengum þau svör að verið væri að vinna í máli okkar. Niður- stöðu væri að vænta í næstu viku eða næsta mánuði. Síðar kom í ljós að ekkert af þessu var rétt því það var ekki fyrr en í síðasta mánuði sem farið var að skoða málið. Og nú hefur fjölskyldu minni verið neitað. Þau mega ekki koma í heimsókn til Ís- lands því það er talið vafa blandið hvort þau snúi aftur heim af því að þau búa í Sýrlandi,“ segir Mohamad. Hann segir afleitt að vita til þess að embættismenn á Íslandi hafi ítrekað logið að þeim hjónum með því að segjast vera að vinna í málinu í svo langan tíma án þess að aðhafast nokkuð. „Ég hélt að Ísland væri öðruvísi en löndin í kring og að hér væri mannvirðing í hávegum höfð. Mér þykir líka mjög miður að hér á landi sé ekki meira umburðarlyndi gagnvart fólki sem er frá Sýrlandi og svæðinu í kring. Allir eru settir undir sama hatt og talin ástæða til að ætla að fólk snúi ekki aftur til heimalandsins að heimsókn lokinni,“ segir Mohamad Khattab sem segist staðráðinn í að fara lengra með mál- ið fyrir hönd fjölskyldunnar og leita réttar þeirra út frá mannréttinda- málum. Morgunblaðið/Kristinn Áritun Útlendingastofnun synjaði fjölskyldunni um vegabréfsáritun á grundvelli þess að Ísland viðurkenndi ekki ferðaskilríkin. Þau eru nú viðurkennd hér á landi en eftir sem áður var ákvörðunin staðfest í síðustu viku. Fjölskyldan fékk ekki að mæta í brúðkaupsveisluna  Segir vonbrigði að Ísland sýni ekki mannvirðingu í málum ríkisfangslausra Mannréttindi Hjónin Guðný Harpa Hallgrímsdóttir og Mohamad Khattab hafa unnið að mannréttindamálum hjá Rauða krossinum og við flóttamannahjálp. Eftir að kærunefnd útlendingamála tók til starfa í ársbyrjun var mál fjölskyldu Muhamads Khattab tekið til meðferðar en nefndin er sjálf- stæð stjórnsýslunefnd sem sinnir kærum vegna ákvarðana um út- lendingamál. Að sögn formanns nefndarinnar, Hjartar Braga Sverrissonar, eru flest mál er lúta að ferðaleyfum eða vegabréfsáritunum afgreidd í sendiráðum og ræðismanns- skrifstofum í viðkomandi ríkjum. „Ísland er með samning við Dan- mörku, Noreg og fleiri ríki um að afgreiða vegabréfsáritanir frá mörgum löndum og þegar sendi- ráðið er í vafa um hvort það eigi að veita vegabréfsáritun talar það við Útlendingastofnun sem tekur ákvörðunina,“ segir Hjörtur og þá ákvörðun er hægt að kæra til nefndarinnar. Fæstar ákvarðanir fara þó þá leiðina og segir Hjörtur að nefndin sjái aðeins brot þessara ákvarðana, eða um tíu prósent. „Það sem við skoðum fyrst og fremst er hvort samræmi sé á beit- ingu Schengen-reglnanna milli Schengen-ríkjanna. Við lítum mikið til þess sem nágrannaríkin gera og önnur Schengen-ríki. Við skoðum frá hvaða landi menn koma, hvaða aðstæður eru í því landi og hvort menn hafi sterk tengsl við það land því það er verið að meta líkurnar á því hvort fólk snúi aftur,“ segir Hjörtur og bætir við að einnig séu skoðuð tengsl fólksins við aðila hér á landi og ástæður fyrir komunni. „Þetta fer inn í heildstætt mat til að meta hættuna á að menn verði leng- ur hér.“ Hjörtur segir að stór hópur landa sé á lista yfir þau lönd sem áhættan sé talin mikil. Listinn er notaður í sumum landanna sem nefndin hefur til hliðsjónar við úr- lausn slíkra mála. Ríkisfangs- laust fólk  Hvað gera hin Schengen-ríkin? Reuters Schengen Frá undirritun sam- komulags í Brussel árið 1998. Til grundvallar þeim niðurstöðum er nefndin komst að í máli fjöl- skyldu Mohamads Khattab voru lög um útlendinga nr. 96/2002 ásamt reglugerð um vegabréfsáritanir nr. 1160/2010, Schengen-samning- urinn og verklagsreglur hans. Er m.a. í niðurstöðu úrskurðar vísað í 6. og 7.mgr.6.gr útlend- ingalaga um að vegabréfsáritun skuli ekki veitt „ef ástæða er til að véfengja uppgefinn tilgang ferðar útlendings hingað til lands eða rétt- mæti upplýsinga sem hann hefur veitt,“ segir orðrétt í úrskurðinum. Ennfremur segir þar að „íbúar Sýr- lands tilheyri þeim hópi ein- staklinga sem líklegir eru til að dvelja lengur innan Schengen- svæðisins en þeim er heimilt sam- kvæmt vegabréfsáritun.“ Því féllst nefndin á mat Útlend- ingastofnunar frá því 29. maí 2013 „að ástæða sé til að efast um að kærandi hyggist snúa aftur til heimalands að lokinni heimsókn“ og því ekki hægt að verða við um- sókninni um vegabréfsáritun. Þessi niðurstaða varð ljós rúmum 17 mánuðum eftir að innanríkisráðu- neytinu barst kæra í málinu. Tilgangur vefengdur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.