Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 41
MENNING 41 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 ÍSLENSKUR TEXTI Besta leikkona í aðalhlutverki WILL FERRELL OG KEVIN HART HAFA ALDREI VERIÐ BETRI. ÍSLENSKT TAL SÝND Í 2D OG 3D HÖRKUGÓÐ SPENNUMYND FRÁ LEIKSTJÓRA TAKEN FYNDNASTA GAMANMYND ÞESSA ÁRS! Þriðjudags tilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudags tilboð Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS OG EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR VIÐ HLIÐINA Á - bara lúxus VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Sigurinn kom okkur skemmtilega á óvart, enda var mikið af flottum böndum að keppa. Reyndar kom það okkur meira á óvart þegar við komumst upp úr undanúrslitunum, því okkur fannst það kvöld hafa heppnast svo illa hjá okkur og ég var algjör stresskleina,“ segir Hrafnkell Hugi Vernharðsson, söngvari og gítarleikari hljómsveit- arinnar Rythmatik, sem sigraði í Músíktilraunum um liðna helgi. Hljómsveitina Rythmatik skipa auk Hrafnkels þeir Valgeir Skorri Vernharðsson, bróðir Hrafnkels, á trommur, Pétur Óli Þorvaldsson á bassa og Eggert Nielson á gítar, sem staddur var erlendis þegar keppnin fór fram þannig að Bjarni Kristinn Guðjónsson hljóp í skarð- ið. „Við bróðir minn stofnuðum bandið fljótlega eftir að ég byrjaði að fikta á gítar í 9. bekk, en bandið fékk ekki á sig núverandi mynd fyrr en hálfum öðrum mánuði fyrir Músíktilraunir í fyrra,“ segir Hrafnkell sem er 19 ára gamall, en Eggert er 18 ára og Valgeir og Pétur báðir tvítugir. Sigruðu í annarri tilraun „Í fyrra komumst við ekki upp úr undanúrslitunum, en fórum í framhaldinu að æfa og spila á fullu auk þess að koma fram við öll möguleg tækifæri,“ segir Hrafnkell og rifjar upp að Rythmatik hafi m.a. spilað á a.m.k. fernum tón- leikum utan tónleikastaða á Ice- land Airwaves sl. haust. „Sökum þessa var ég miklu stressaðri á undanúrslitakvöldinu í ár en sjálfu úrslitakvöldinu, því ef við hefðum ekki komist áfram annað árið í röð væri það eins og að öll vinnan sl. árið hefði verið til einskis þar sem niðurstaðan væri sú sama.“ Að sögn Hrafnkels æfa hljóm- sveitarmeðlimir tvisvar til fjórum sinnum í viku að jafnaði, en dag- lega þegar þeir eru að undirbúa stærri tónleika. „Við Valgeir búum á Suðureyri, Pétur á nærliggjandi bóndabæ og Eggert á Ísafirði,“ segir Hrafnkell, en tekur fram að oftast nær æfi þeir á Ísafirði þar sem þeir séu allir ýmist í vinnu eða skóla þar. „Við vorum með aðstöðu „Hefst með þrjóskunni“ Morgunblaðið/Styrmir Kári Rythmatik Bjarni Kristinn Guðjónsson (sem hljóp í skarðið fyrir Eggert Nielson), Valgeir Skorri Vernharðsson, Hrafnkell Hugi Vernharðsson og Pétur Óli Þorvaldsson voru himinlifandi þegar þeir unnu Músíktilraunir. í gamalli kaffistofu í yfirgefnu frystihúsi, en stuttu fyrir Músíktil- raunir urðu eigendaskipti á hús- næðinu og okkur var hent út,“ seg- ir Hrafnkell og bindur vonir við að verðlaunin hjálpi þeim að finna nýtt æfingahúsnæði svo þeir verði ekki alltof lengi á vergangi. Flytja væntanlega suður Spurður hvað taki við hjá sveitinni segir Hrafnkell að gaman væri að vinna að og gefa út plötu, en sveitin hlaut m.a. 20 upptöku- tíma í Sundlauginni í sigurlaun. „Við vorum búnir að ræða það að flytja suður í sumarlok 2016. En nú munum við sennilega skoða það að flytja suður strax í haust í ljósi þess meðbyrs sem við höfum fengið.“ Beðinn að lýsa eigin tónlist segir Hrafnkell um að ræða indí- rokk. „Við erum undir áhrifum frá breskum ’80-böndum, ekki síst frá Manchester. Okkur hefur verið líkt við snemm-emó-böndin, en ég tel að við séum aðeins rokkaðri en svo og tónlist okkar sé þyngri. Okkur finnst mjög gaman að sveiflast í stílum innan indí-rokksins. Þannig eigum við þungarokkslag í bland við rólegri lög,“ segir Hrafnkell. Á úrslitakvöldi Músíktilrauna voru veitt verðlaun fyrir hljóðfæra- leik og var Hrafnkell valinn gítar- leikari tilraunanna. Aðspurður seg- ir hann þessa viðurkenningu hafa komið sér mjög á óvart. „Ég skil eiginlega ekkert í því að fá þessi verðlaun, því mér fannst öll hin böndin vera með betri gítarleikara. Ætli ég sé ekki að fá einhverja punkta fyrir að syngja og spila samtímis,“ segir Hrafnkell og dregur ekki dul á hversu vanda- samt sé að gera hvort tveggja sam- tímis. „Ég fer ekkert leynt með það hversu erfitt er að gera þetta sam- tímis. En þetta hefst með þrjósk- unni og æfingunni.“ Spurður hvort hann hafi lært á gítar segist Hrafn- kell að mestu sjálflærður þótt hann hafi lært í rúmt ár, en hann hætti gítarnáminu sl. haust þegar hann ákvað að taka frekar söngtíma. „Mér fannst nauðsynlegt að fá leið- sögn í söngnum og tímarnir frá síð- asta hausti hafa skilað sér ótrúlega vel. Þannig virðist gólið á hljóm- sveitaræfingum, áður en ég fór til söngkennara, hafa skilað sér í því að pípurnar þjálfuðust. Þær voru því komnar í gott stand og ég þurfti bara smáleiðbeiningu.“ Gamanmyndin Get Hard, með Will Ferrell og Kevin Hart í aðal- hlutverkum, er sú sem mestum miðasölutekjum skilaði bíóhúsum landsins um helgina en alls sáu hana um 4.100 manns. Teikni- myndin Home er sú næst- tekjuhæsta og í þriðja sæti er nýj- asta kvikmynd Dags Kára Péturssonar, Fúsi, sem 1.275 sáu um helgina. Myndirnar þrjár voru allar frumsýndar föstudaginn síð- astliðinn. Bíólistinn 27. - 29. mars 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Get Hard Home Fúsi Insurgent Cinderella Gunman, The Kingsman:Secret Service Ömurleg Brúðkaup (Serial Bad Weddings) Ný Ný Ný 1 2 3 4 6 1 1 1 2 3 2 7 10 1 2 3 4 5 6 7 8 Bíóaðsókn helgarinnar Harðir á toppnum Hörkutól Will Ferrell og Kevin Hart í gamanmyndinni Get Hard.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.