Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 9
Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Andlát 41 árs gamals manns sem fannst í íbúð sinni á föstudag eftir að hafa látist fyrir um tveimur mán- uðum vekur spurningar um íslenskt samfélag. Framkvæmdastjóri í þjónustumiðstöð í Breiðholti sem unnið hefur að verkefnum sem stuðla að nánari tengslum á milli fólks í samfélaginu segir að svona sorgleg mál sýni að efla megi tengsl á milli fólks. Hann bendir þó á að félagsleg ein- angrun geti verið flókin við að eiga og fólk hafi rétt á því að hafna allri aðstoð, kjósi það svo. „Ég held að svona mál segi okkur að almennt megum við efla tengslin, bæði í gegnum félagasamtök og stofnanir. Svona sorglegar fréttir sýna að kannski mættum við láta okkur varða meira hvert um annað. Ég held að við þurfum líka að skoða það betur hvernig kerfin okkar vinna. Við sem einstaklingar erum ákveðin afurð sem er afleiðing þess hvernig við skipuleggjum okkar samfélag,“ segir Óskar Dýrmundur Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá Þjónustu- miðstöðinni í Breiðholti. Ekki allir sem vilja hjálp Hann bendir á að oft sé erfitt við það að eiga þegar fólk einangrist í samfélaginu. Ekki vilji allir hjálp frá stofnunum og því geti alltaf komið upp atvik á borð við það sem upp kom á föstudag. „Við lítum á þetta sem verkefni sem við erum alltaf að fást við og erum mjög meðvituð um það að fólk getur einangrast. Hér í Breiðholti sendum við til að mynda bréf til allra nýrra íbúa til að mynda tengsl og benda fólki á leiðir til að hafa samband til stuðnings og þjón- ustu,“ segir Óskar. Hann segir að mál lík því sem upp kom á föstudag séu sjaldgæf. „En við þurfum samt að vera á tánum gagnvart þessu,“ segir Óskar. Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, segir að á síðustu árum hafi félagsleg ein- angrun farið vaxandi. „Það skiptir auðvitað miklu máli, bæði gagnvart andlegri og líkamlegri heilsu, að fólk haldi tengslum við fjölskyldu,“ segir Anna. Hún segir að eftir kreppu sé meira álag á fólki á vinnumarkaði. Fyrir vikið geti verið erfiðara fyrir fólk að finna stund til þess að sinna ættingjum. „Svo vilja þeir sem eiga við geðræn vandamál að stríða kannski sinna 30% vinnu, en það eru mjög fá slík störf í samfélaginu í dag. Slík störf geta þó skipt sköpum fyrir fólk upp á félagsleg samskipti,“ seg- ir Anna. Hún bendir á að ýmis félög bjóði upp á félagsleg úrræði fyrir fólk sem á við geðrænan vanda að stríða. Nefnir hún t.a.m. Hlutverkasetur og Hugarafl í Borgartúni, Geysi í Skip- holti og Vin á Hverfisgötu. Sýnir að mikilvægt er fyrir sam- félagið að efla tengsl á milli fólks  Fannst tveimur mánuðum eftir andlát  Stundum erfitt að eiga við einangrun Morgunblaðið/Árni Sæberg Samfélag Félagsleg einangrun hef- ur aukist í samfélaginu undanfarið. Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911 www.facebook.com/spennandi Opið: Mán. - fim: 12 - 18 og fös. 12-16 Ný sending frá Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Dömublússur 8.900 kr. Str. M–XXXL Kíktu á úrvalið í vefversluninni á michelsen.is Laugavegi 15 - 101 Reykjavík Sími 511 1900 - www.michelsen.is FOSSIL 36.700 kr. Daniel Wellington 24.500 kr. CASIO 5.700 kr. JACQES LEMANS 19.900 kr. Fallegar fermingar- gjafir ASA HRINGUR 13.400 kr. ASA LOKKAR 7.800 kr. ASA HÁLSMEN 19.300 kr. Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is Opið þriðjudag og miðvikudag 11.00 – 18.00 Skoðið friendtex.is Allt að 70% afsláttur Dúndursala Opið skírdag 12.00-16.00 Páll Halldórsson, formaður BHM, segir ekkert ganga í viðræðum fé- lagsins við stjórnvöld og verkfalls- boðun á fimm ríkisstofnunum standi enn. Eins og kunnugt er sendi fjármála- og efnahagsráðu- neyti fimm aðildarfélögum bréf þess efnis að atkvæðagreiðsla og verkfallsboðun félaganna hefði ver- ið ólögleg. Voru félögin jafnframt hvött til þess að afturkalla boðun verkfalls. Nú hefur ríkið ákveðið að stefna félögunum fyrir Félagsdóm vegna ólögmætar verkfallsboðun- ar. Páli er ekki mikið um vinnu- brögð stjórnvalda gefið og segir þau einblína á formsatriði í stað samningaviðræðna við félögin. Sakar hann stjórnvöld um að tefja fyrir samningaviðræðum með klók- indum. Þá segir hann vinnubrögð og yfirlýsingar stjórnvalda einung- is hafa hert félagsmeðlimi í kjara- baráttu sinni en djúp gjá sé á milli deiluaðila, BHM og ríkisins. Vilja BHM félögin semja til tveggja og þriggja ára og lægstu laun hækki um 48%, eða úr 269.700 kr í 400 þúsund kr, að sögn Gunn- ars Björnssonar formanns samn- inganefndar ríkisins. Myndu slíkar hækkanir dreifast yfir þriggja ára tímabil er um að ræða 9% hækkun á ári að mati ríkisins. Áætlaðar eru viðræður milli full- trúa BHM og ríkisins á morgun, miðvikudag, og á Páll von á að formsatriði atkvæðagreiðslna og verkfallsaðgerða verði til umræðu. Sakar stjórnvöld um að tefja fyrir mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.