Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Þýskættaði ljósmyndarinn Anna Domnick sýnir um þessar mundir ljósmyndainnsetningu í Reykjavík. Myndum hennar, sem alls eru fimm og í stærðinni 500x400 cm, var kom- ið upp á tímabilinu frá 20.-28. mars, en sýningin stendur til 28. apríl nk. Íslenskt landslag er í forgrunni á myndum Domnick. Samkvæmt upplýsingum frá lista- konunni er markmiðið með innsetn- ingunni, sem verið hefur tvö ár í vinnslu, að vekja athygli á landslagi sem er ógnað af virkjunarstefnu stjórnvalda. „Landið á myndunum á það sameiginlegt að vera í hættu verði virkjað meira hérlendis,“ segir Domnick og tekur fram að ekki sé um hefðbundnar landslagsmyndir að ræða heldur sé ætlun hennar að fanga það hversu viðkvæmt landið er. Anna Domnick nam ljósmyndun Vekur athygli á landslagi í hættu Viðkvæmni Ein myndanna fimm sem Anna Domnick sýnir í Reykjavík. við Bielefeld-háskóla og Hamborg- ar-háskóla. Hún hefur unnið til verð- launa í heimalandi sínu og sýnt víðs vegar um heiminn. Lesa má sér nán- ar til um listakonuna og innsetn- inguna á vefnum risa.is. Ljósmyndasýningin The Parasite, eða Sníkjudýr, var opnuð fyrir helgi í Norræna húsinu. Á henni má sjá ljósmyndir eftir Sophie Til- ler. Tiller hóf að vinna að verkefn- inu „Sníkjudýr“ árið 2008 og er sýningin hluti af stærri heild. „Á henni má sjá úrval náttúrufræði- bóka, líkt og lexíkon sem búið er að bora göt í. Götin eru fyllt með mold og fræi er sáð. Fræið vex og verður líkt og sníkjudýr í bókinni,“ segir um sýninguna á vef Norræna hússins. Með tímanum laði bókin til sín orma, snigla og ýmiskonar örlífverur sem komi sér fyrir í nýj- um heimkynnum og Tiller myndi þetta ferli. Með þessu lifni bæk- urnar bókstaflega við og verði að einhverju nýju. Sníkjudýr í Norræna húsinu Sníkjudýr Bækur lifna við og verða að einhverju nýju í myndum Tiller. Breska listakonan Kitty von Some- time mun taka upp næsta þátt í myndbandagjörningsverkefninu Weird Girls í næsta mánuði hér á landi. Efni þáttarins mun snúa að því að vera sáttur við líkama sinn og að vanda mun fjöldi kvenna, sjálf- boðaliða, leika í honum. Lagið sem óma mun í þættinum, eða mynd- bandinu, er unnið af rafdúettinum CREEP frá Brooklyn og áströlsku tónlistarkonunni Siu, að því er segir í tilkynningu. Að vanda munu konurnar sem taka þátt í gjörningi Kitty ekki vita hvað stendur til þegar að tökum kemur og fá á seinustu stundu að vita hver tökustaðurinn er og hvers konar búningum þær eiga að klæð- ast. Kitty og tökulið hennar munu þá hafa skipulagt gjörninginn í þrjá mánuði og standa tökurnar í einn dag. CREEP skipa Lauren Flax og Lauren Dillard og er dúettinn þekktastur fyrir lagið „You“ og sam- starf sitt við bandaríska tvíeykið Ninu Sky. Flax er plötusnúður, laga- höfundur og framleiðandi og fyrsta smáskífa hennar var „You’ve Chan- ged“ sem hún vann með Siu. Sia not- aði lagið á breiðskífu sinni We Are Born. Flax hefur troðið upp marg- sinnis í Reykjavík sem plötusnúður og þá m.a. á kvöldum Kitty helg- uðum tónlist frá tíunda áratugnum. Kitty gerir Weird Girls-mynd- band við lag CREEP og Sia Litrík Kitty von Sometime. Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Ég hugsa að ég muni leika mér á milli tónlistarstefna og listforma,“ segir Víkingur Heiðar Ólafsson, ný- skipaður listrænn stjórnandi sænsku tónlistarhátíðarinnar Vinterfest. „Það kom mér á óvart þegar mér var tjáð að ég væri efstur á lista að taka við af Martin Fröst, hann er náttúrlega stórstjarna hér sem og annars staðar auk þess sem við erum góðir vinir og höfum unnið mikið saman,“ segir hann um klarinettu- leikarann Martin Fröst sem stígur til hliðar sem listrænn stjórnandi hátíð- arinnar sem hefur verið í gangi í ára- tug. Hápunktur í menningarlífinu „Martin bauð mér á hátíðina árið 2011 þegar boltinn var aðeins farinn að rúlla hjá mér erlendis. Það að koma á þessa hátíð átti eftir að opna fyrir mér miklu fleiri dyr en mig hafði grunað. Það var mér presónu- lega mjög mikilvægt,“ segir hann. Víkingur Heiðar segir hátíðina vera nokkuð sérstaka þar sem hún sé haldin í Dölunum í Svíþjóð um hávet- ur, í myrkri og miklum kulda. „Martin hefur laðað heimsklassa- tónlistarfólk hvaðanæva úr heim- inum í myrkrið og kuldann í Döl- unum. Hátíðin hefur verið nokkuð breytileg frá ári til árs og er hún ekk- ert ósvipuð Reykjavík Midsummer Music sem ég hef staðið fyrir í Reykjavík á sumrin. Vinterfest er þó talsvert stærri. Ætli það séu ekki svona tíu til tólf þekktir sólistar sem koma fram á hátíðinni á hverju ári auk þess sem heil kammerhljómsveit er til umráða. Síðan eru hundruð sjálfboðaliða sem hjálpa til ár hvert, þetta er í raun hápunkturinn í menn- ingarlífinu hérna og það er beðið eft- ir hátíðinni með eftirvæntingu allt árið. Þetta er mjög sérstakt fyr- irbæri og ég held að það skynji það allir sem hafa komið á hátíðina, tón- listarmenn sem og gestir,“ segir hann. „Ég hyggst koma með meiri spuna inn í hátíðina, jafnvel gjörninga- myndlistarverk, vídeólist og þess háttar í bland við tónlistina,“ segir Víkingur Heiðar en vænta má fingra- fara hans á fyrstu hátíð hans sem listrænn stjórnandi en hún mun fara fram dagana 18. til 21. febrúar á næsta ári. Segir óvissuna spennandi Víkingur Heiðar kveðst hafa vitað af skipuninni í um hálft ár og hefur hann á þeim tíma unnið hörðum höndum. „Ég er þegar búinn að bóka rosa- lega spennandi listafólk sem mun koma fram á hátíðinni. Ég mun síðan alveg pottþétt búa til smábrú á milli Íslands og Svíþjóðar og bóka ís- lenska listamenn á hátíðina,“ segir hann. „Það sem mér finnst skemmtileg- ast við svona hátíðir er að fólk viti aldrei hvað er að fara að gerast. Ef draumur minn rætist þá veit enginn hvað er að fara að gerast fyrr en dag- skráin kemur, helst ekki einu sinni þá,“ kveður hann. Þess skal getið að Víkingur Heiðar heldur áfram með Reykjavík Midsummer Music en hann segir stjórnun tveggja hátíða vera meira en nóg. „Ég held að mínir kraftar séu þrátt fyrir allt best nýttir við flyg- ilinn,“ kveður hann kíminn að lokum. Morgunblaðið/Einar Falur Stjórnandi Fyrsta hátíð Víkings Heiðars sem stjórnandi tónlistarhátíðarinnar Vinterfest verður í febrúar 2016. Nýir straumar í myrkrið og kuldann  Víkingur Heiðar skipaður listrænn stjórnandi Vinterfest Lína Langsokkur –★★★★ – S.J. fbl. Billy Elliot (Stóra sviðið) Mið 8/4 kl. 19:00 11.k Mið 29/4 kl. 19:00 Fös 15/5 kl. 19:00 Fim 9/4 kl. 19:00 12.k Fim 30/4 kl. 19:00 Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 11/4 kl. 19:00 aukas. Sun 3/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 12/4 kl. 19:00 13.k Þri 5/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Fim 16/4 kl. 19:00 14.k Mið 6/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fös 17/4 kl. 19:00 15.k Fim 7/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 19:00 Sun 19/4 kl. 19:00 aukas. Fös 8/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Mið 22/4 kl. 19:00 Lau 9/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Fim 23/4 kl. 19:00 Sun 10/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Fös 24/4 kl. 19:00 Mið 13/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00 Sun 26/4 kl. 19:00 Fim 14/5 kl. 19:00 Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega Lína langsokkur (Stóra sviðið) Lau 11/4 kl. 13:00 Lau 18/4 kl. 13:00 Lau 25/4 kl. 13:00 Sun 12/4 kl. 13:00 Sun 19/4 kl. 13:00 Sun 26/4 kl. 13:00 Sterkasta stelpa í heimi er mætt á Stóra sviðið Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið) Mið 8/4 kl. 20:00 5.k. Mið 22/4 kl. 20:00 12.k Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Fim 9/4 kl. 20:00 6.k. Fim 23/4 kl. 20:00 13.k Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Lau 11/4 kl. 20:00 7.k. Fös 24/4 kl. 20:00 aukas. Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Sun 12/4 kl. 20:00 8.k. Sun 26/4 kl. 20:00 14.k Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Þri 14/4 kl. 20:00 aukas. Mið 29/4 kl. 20:00 15.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Mið 15/4 kl. 20:00 9.k Fim 30/4 kl. 20:00 16.k Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fim 16/4 kl. 20:00 10.k Sun 3/5 kl. 20:00 17.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas. Fös 17/4 kl. 20:00 11.k Mið 6/5 kl. 20:00 aukas. Sun 17/5 kl. 20:00 Sun 19/4 kl. 20:00 aukas. Fim 7/5 kl. 20:00 18.k Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar Kenneth Máni (Litla sviðið) Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00 Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni Beint í æð (Stóra sviðið) Fös 10/4 kl. 20:00 Lau 25/4 kl. 20:00 Lau 16/5 kl. 20:00 Lau 18/4 kl. 20:00 Lau 2/5 kl. 20:00 Sýningum fer fækkandi Hystory (Litla sviðið) Lau 11/4 kl. 20:00 3.k. Fös 24/4 kl. 20:00 5.k. Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 12/4 kl. 20:00 4.k. Mið 29/4 kl. 20:00 6.k. Fim 14/5 kl. 20:00 Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.