Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 ✝ Kristján S.Baldursson byggingarverk- fræðingur fæddist í Reykjavík 31. mars 1948. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Mörk 21. mars 2015. Foreldrar hans voru Elísabet Guð- jónsdóttir, f. 28.1. 1922, d. 21.1. 2009, og Baldur Kristjánsson, f. 21.10. 1922, d. 4.3. 1984. Systkini Kristjáns eru: Elsa, f. 27.10. 1949, Guðjón, f. 10.9. 1951, og Birgir Bragi, f. 24.4. 1959. 27.8. 1977 kvæntist Kristján Soffíu Unni Björnsdóttur, f. 5.12. 1954. Þau skildu árið 1993. Foreldrar Soffíu eru Stella Halldórsdóttir, f. 13.12. 1937, og Björn Gunnarsson, f. urina Auði Soffíu. d) Elísabet Anna, f. 11.12. 1988. Kristján ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla tíð. Kristján lauk námi í húsasmíði 1970, prófi í byggingatæknifræði frá Tækni- skóla Íslands 1975 og MS-prófi í byggingaverkfræði frá Lunds Tekniska Högskola í Svíþjóð 1986. Kristján starfaði sem húsa- smiður á árunum 1970 til 1974 en að lokinni byggingatækni- fræði hóf hann störf hjá Vega- gerðinni árið 1976, en þar starf- aði hann allt til starfsloka árið 2008, þegar hann hætti sökum veikinda. Kristján var mikill áhugamaður um tónlist og var meðal annars meðlimur í hljóm- sveitinni Fjörkum á árunum 1964 til 1968. Hann hafði gam- an af garðyrkju og smíðum og frá árinu 1994 eyddi hann mik- illi vinnu í að rækta upp sum- arbústaðaland sitt, Undraland, í Ketlubyggð. Þar byggði hann einnig tvö lítil hús frá grunni. Útför Kristjáns fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 31. mars 2015, kl. 13. 19.5. 1937. Kristján eign- aðist fimm börn. Með Helgu Sigurð- ardóttur, f. 20.11. 1949, átti hann Ás- dísi, f. 25.8. 1969, eiginmaður hennar er Jóngeir And- ersen og börn þeirra Markús og Lilja Sól. Með Soffíu Unni átti hann a) Baldur, f. 24.8. 1978, eiginkona hans er Jórunn Íris Sindradóttir og börn þeirra Sindri Björn og Edda Björg. b) Björn, f. 26.3. 1980, sambýlis- kona hans er Birna Hjaltadóttir og börn þeirra eru Hjalti og Unnur Elísabet. c) Valgerður Stella, f. 13.3. 1985, sambýlis- maður hennar er Haraldur Ant- on Skúlason og þau eiga dótt- Í dag kveðjum við tengdaföður minn í hinsta sinn – hlýjan, velvilj- aðan og gamansaman mann. Það varð mér ljóst strax við okkar fyrstu kynni þegar góðlátleg og glettin athugasemd heyrðist á tröppunum á Egilsgötunni um leið og elsti sonurinn kynnti kær- ustuna fyrir föður sínum. Athuga- semdina glettnu hef ég nýverið sagt afastráknum og þykir hún enn jafnfyndin og þá. Sá Kristján sem ég fékk að kynnast þegar við hjónin stigum okkar fyrstu skref saman hefur smám saman fjarað út fyrir aug- um okkar. Það hefur verið erfitt, og nú þegar hann hefur kvatt er gott að rifja upp hlýjar minning- ar. Ég minnist þess með hlýhug þegar Kristján mætti boðinn og búinn á Hverfisgötuna og aðstoð- aði okkur Baldur við að koma okk- ur fyrir þegar við hófum sambúð. Mér fannst gott að biðja hann um aðstoð þá og síðar, og ég fann að það veitti honum gleði að geta verið til staðar fyrir fjölskylduna. Margar góðar minningar tengjast Ketlu og sumarhúsinu hans þar. Kristján var gestrisinn og tók alltaf vel á móti okkur Baldri. Góður göngutúr, grillað lambalæri og svo spjall um lífið og tilveruna undir berum himni langt fram eftir kvöldi. Lífið er ekki alltaf réttlátt. Fjölskyldan átti eftir að skapa svo margar fleiri minningar með Kristjáni. Hann syrgi ég ekki að- eins sem tengdaföður, heldur einnig sem föður barna sem misstu hann allt of snemma. Ég syrgi hann sem afa barnanna okk- ar, sem aldrei munu fá að kynnast þessum barngóða manni sem hefði orðið þeim einstakur afi. Takk fyrir allt og allt, Kristján minn, og hvíl í friði. Þín tengdadóttir, Jórunn. Mig langar að minnast bróður míns með örfáum orðum. Það voru einungis eitt og hálft ár á milli mín og Kristjáns. Ég heyrði að hann hefði verið mjög stoltur þegar hann var búinn að eignast litla systur og sat hann fyrir fram- an vögguna og ef einhver kom í heimsókn sagði hann „sjáu bara baddini“. Kristján var fallegur drengur og minnist ég drengs sem alltaf var ljúfur. En að sjálf- sögðu var hann líka prakkari eins og aðrir drengir, hann var oft eitt- hvað klifrandi og líka lenti hann undir bílum og þurfti þá oft af fara með hann á slysavarðstofuna. Svo man ég eftir að bræður mínir Kristján og Guðjón voru oft að kveikja í einhverju drasli og komu svo svartir og af þeim mikil brunalykt. Mamma var þá reið og lentu þeir í skammarkrók sem var þvottahúsið eða miðstöðin. Ef ég var nálægt var ég bara látin fjúka með þarna niður. En við létum okkur ekkert leiðast þarna létum öllum illum látum og hlógum mik- ið þar til okkur var hleypt upp aft- ur. Kristján var mikill grúskari og í geymslunni heima var allt fullt af einhverjum biluðum útvörpum, transitorum og allskonar snúrum. En hann vann svo í því að koma þessum tækjum í lag. Við Kristján fórum í okkar fyrstu utanlandsferð saman ásamt vinum hans og vinkonu minni. Þetta var árið 1967 og fór- um við til London og þaðan til Alassio á Ítalíu,við fórum líka til Monaco og Monte Carlo, þetta var hin mesta ævintýraferð. Árin liðu en upp úr 1990 feng- um við Kristján okkur sitthvora lóðina í landi Ketlu á Rangárvöll- um. Við byggðum okkur hús og ræktuðum upp löndin okkar. Samverustundir okkar og fjöl- skyldna okkar urðu mjög nánar og minnist ég ótrúlega skemmti- legra stunda með allskonar uppá- tækjum leikjum dansi og miklum hlátri. En Kristján glímdi síðustu árin við illvígan sjúkdóm sem heilabilun er og smám saman átti hann erfitt með dagleg samskipti og þarfir. En alltaf brosti hann þegar við komum í heimsókn og þótti gott að fá faðmlag og já- kvæðar strokur. Ég kveð Kristján bróður minn með söknuði, en ljúf minning lifir. Börnum hans og fjölskyldum þeirra sendi ég kær- leikskveðju. Elsa systir. Síðustu vikur hafa leitað á mig minningar úr lífi okkar Kristjáns bróður. Þær eru sveipaðar birtu og hlýju. Þótt róður okkar hafi oft verið þungur og við stundum haft storminn í fangið þá efldumst við báðir við hverja raun, vinátta okk- ar styrktist og alltaf kom sólin upp á ný. Við vorum samrýmdir, leituðum mikið í smiðju hvor til annars og á milli okkar ríkti trún- aður og traust. Við deildum saman herbergi frá bernsku fram yfir tvítugt. Sem litlir strákar lékum við okkur mik- ið úti. Ég, litli bróðir, fékk oftast að fylgja með hvort sem það var í brennustand, teika bíla, stunda bjölluat eða annað sem ungir drengir í þá tíð iðkuðu til þess að hrella foreldra sína. Pabbi var tónlistarmaður og mjög lagviss en ekki laghentur. Það var Kristján. Hann varð því kornungur „altmuligmand“ fjöl- skyldunnar. Ég varð handlangari. Kristján lék á klarínett í Dreng- jalúðrasveitinni. Stundum stalst ég í klarínettið og braut þá oft hárfínt tréblaðið í munnstykkinu. Þá var Kristjáni ekki skemmt. Ekki veit ég hvort það var vegna þess sem hann lagði klarínettið á hilluna og fór að spila á bassa. Á það hljóðfæri lék hann með hljóm- sveitinni Fjörkum í mörg ár. Ég fékk stundum að fara með Fjör- kunum á Völlinn þar sem þeir spiluðu oft. Það var stórkostleg upplifun. Kristján var mjög fróð- leiksfús og á unglingsárum las hann mikið um guðspeki og við sóttum fundi í Guðspekifélaginu. Hann dáði Krishnamurti og Grét- ar Fells. Á unglingsárunum fór- um við saman á útihátíðir um hvítasunnu eða verslunarmanna- helgi og til Kaupmannahafnar og þaðan á vespu til Gautaborgar. Pabbi veiktist alvarlega 1958 og varð aldrei samur maður og mjög stopul fyrirvinna. Ekki bætti úr skák að Birgir bróðir greindist með einhverfu 1961, þá tveggja ára með öllum þeim miklu erfiðleikum sem því fylgdu. Fjár- skortur og veikindi einkenndu fjölskyldulífið. Kristján varð sum- part fyrirvinna rétt um fermingaraldur, vann í matvöru- verslunum. Hann lærði síðan til smiðs enda mikill Völundur. Að því loknu fór hann í Tækniskól- ann. Mamma vann myrkanna á milli svo við bræður gætum fengið að læra. Við unnum báðir öll sum- ur og oft á vetrum með námi. En þótt við værum ósérhlífnir vorum við líka óstýrilátir. Það fékk mamma að reyna. Kristján lauk prófi í byggingarverkfræði frá Háskólanum í Lundi á níunda áratugnum. Hann dvaldi á heimili mínu í Lundi fyrsta veturinn áður en fjölskylda hans kom út. Síðar var hann einn vetur í námi í Seattle í BNA og lærði auk þess línudans og kenndi þeim sem það vildu læra. Bróðurpart starfsævinnar vann Kristján hjá Vegagerðinni. Þar innleiddi hann byltingu í brú- arhönnun og var öðrum mönnum fremri í tölvuteikningu brúa og vega. Auk þess að vera stærð- fræðiséní var hann tölvuséní. Í 10-15 ár varði Kristján mörg- um stórhátíðum með okkur Bryn- dísi og börnum okkar í Reynihlíð- inni. Kveikti í blysum, skaut upp flugeldum og sá um hvers kyns glens fyrir börnin okkar sem þau hafa talað mikið um. Kristján frændi sagði þetta og gerði þetta hefur oft og einatt heyrst í okkar húsi, alltaf sagt með mikilli virð- ingu. Ég kveð með söknuði og þakk- læti þennan besta vin minn til ára- tuga og flyt saknaðarkveðju frá Bryndísi og öllum okkar börnum með orðum Grétars Fells Þú áttir söngva og sól í hjarta er signdi og fágaði viljans stál. Þeir þurftu ekki um kulda að kvarta, er kynni höfðu af þinni sál. (Grétar Fells.) Guðjón. Það var á tækniskólaárum mín- um í Reykjavík 1973-1975 að ég kynntist Kristjáni Snorra Bald- urssyni fyrst. Þetta var á frum- býlingsárum skólans því aðstaða var ekki fullbúin eða starfshættir komnir í fastar skorður. Nokkuð er mér minnisstætt frá þessum árum að í takmörkuðu rými skól- ans hafði verið stúkað af lítið her- bergi inn af einni kennslustofunni og komið fyrir tölvu svokallaðri. Þetta var í árdaga slíkra tækja hérlendis og þau þættu hlægileg nú til dags, eins og þróun þeirra hefur verið. Þarna var um að ræða ritvél þar sem senda mátti skilaboð til móðurtölvu úti í bæ og til baka kom útskrifaður texti á strimli. Helst mátti líkja þessu við ritsímann í gamla daga. Þetta var því ákaflega frumstætt tól og eins ólíkt tölvum nútímans sem mest má vera og greip hugi fárra. Því vildi kompan helst nýtast brids- spilurum í frímínútum, en til voru þeir sem höfðu ósvikinn áhuga á nýja tækniverkinu. Þar var eng- inn þaulsætnari en einmitt Kristján. Hann sat þar oft í frí- mínútum alls ótruflaður af há- reysti bridsspilaranna skólafélaga sinna og einnig sat hann þar löngum á síðkvöldum. Hann bar af öðrum í áhuga sínum á nýju tækninni. Kristján var ári á undan undir- rituðum í námi í Tækniskólanum. Að því loknu árið 1975 hóf hann störf hjá Vegagerð ríkisins eins og hún hét í þá daga og þá lágu leiðir okkar saman aftur. Á þess- um árum voru hafnar fram- kvæmdir við Borgarfjarðarbrú og áttum við þar samstarf og síðan á vettvangi brúarhönnunar á sömu stofnun. Mér duldist ekki að Kristján hafði ákveðnar starfs- aðferðir. Öll vinnubrögð hans voru mjög skipulögð og öguð. All- ar forsendur skyldu grandskoðað- ar og unnið markvisst stig af stigi og haft skipulag á hlutunum. Öll framsetning efnis og frágangur var vandaður. Hin nýja tölvu- tækni, sem hélt innreið sína á vinnustaðinn á fyrstu árum Krist- jáns, áttu hug hans og sá fljótt í henni nýja möguleika í starfinu. Á vinnustað reyndist hann góð- ur í samstarfi og hjálplegur. Í verkum sínum og dagfari var hann sjálfstæður og líkaði ekki að fylgja öðrum hugsunarlítið. Ekki lét hann fara mikið fyrir sér, öllu heldur vildi hann standa að verk- unum með sínum hætti og lagði allan metnað í að vinna þau fag- lega og leysa sem best af hendi. Hann gekk ekki af sannfæringu sinni sem hann byggði á traustum grunni eigin athugunar. Hann var framtakssamur og lagði ódeigur á braut nýjunga og breytinga. Kristján hætti störfum 2008 vegna veikinda um aldur fram. Þeir sem aka eftir vegum landsins og yfir brýr þeirra vita fæstir um þá sem þar hafa komið við sögu. Þar kom Kristján sums staðar að verki í undirbúningi þeirra og tókst alls staðar vel til fyrir vand- að vinnulag sitt. Baldur Þór Þorvaldsson. Nokkrum sinnum á ævinni hittir maður fólk sem hefur áhrif á mann til góðs, Kristján S. Bald- ursson er einn þeirra, þann sóma- mann hitti ég fyrst á skemmtistað fyrir um fimmtíu árum, þar sem hann lék fyrir dansi á unglinga- stað hér í borg. Staðurinn þar þétt skipaður krökkum sem dönsuðu í takt við bítlalögin sem þar voru leikin af hljómsveitinni Þotunum sem Kristján var í. Hann lék á bassann. Að loknu balli í skrafi okkur kom í ljós að hljómsveitin væri að hætta og óvissa um fram- tíðina og hann í spilamennsku. Í þessu skrafi okkar Jóhanns Ög- mundssonar og mín við Stjána, sem hann var gjarnan nefndur, var honum boðið að koma á æf- ingu hjá hljómsveit sem var í burðarliðnum hjá strákum úr Austurbæjarskólanum og Jói var þar einn meðlima. Viku síðar mætti Kristján með bassann und- ir hendinni og deildi kunnáttu sinni meðal óreyndra en spil þeirra tók risastökk fram á við og úr varð unglingahljómsveitin Fjarkar sem skipuð var auk Kristjáns og Jóhanns þeim Krist- birni Þorkelssyni og Kristjáni Gunnarssyni. Þessi hljómsveit náði feiknavinsældum og lék í skólum og á skemmtistöðum víðs- vegar um land næstu árin. Fjarkatímabilið er þessum hópi mjög dýrmætt og er hans oft minnst þegar við hittumst og gjarnan sungið og spilað á gítara og rifjaðar upp gamlar góðar sög- ur þessara ára. Eins og gengur fóru þeir hver sinn veg í námi og vinnu, Kristján Baldursson skákaði okkur öllum í dugnaði til náms, hann fór fyrst í húsasmíði og var verðlaunaður fyrir frammistöðu í skólanum, eft- ir það nám fór hann í Tækniskól- ann eins og hann hét þá, lauk þar prófum með mikilli sæmd sem byggingatæknifræðingur. Eftir það nám réð hann sig til Vega- gerðarinar en hann hafði unnið þar á sumrin í brúarsmíði meðan hann var í skólanum. Þar kviknaði áhugi hans á burðarþoli sem varð svo til þess að hann ákvað að fara til Lundar í Svíþjóð í frekara nám í burðarþolsverkfræði. Eftir Sví- þjóðardvölina hóf hann störf sem verkfræðingur hjá Vegagerðinni og er einn af verðlaunuðum verk- fræðingum sem hönnuðu nýja Þjórsárbrú. Af þessari upptaln- ingu má sjá að kraftur Kristjáns var einstakur en mitt í þessari at- burðarás stofnaði hann fjölskyldu og kvæntist Soffíu Unni Björns- dóttur og eignuðust þau fjögur börn. Á seinni árum sýndi Kristján á sér alveg nýja hlið, hann fékk sér sumarbústaðarland og hóf þar uppgræðslu og sumarhúsasmíð, að öllu var fagmannlega staðið. Skógarlundurinn hefur vaxið og dafnað vel meðan hans naut við og verður honum vitnisburður um dugnað og elju um ókomna tíð. Allt var gert í réttri röð með ná- kæmni verkfræðingsins. Fyrstu árin var plantað og hafst við í tjaldi, svo kom smáhýsi og áfram plantað. Að lokum kom „höllin“. En það stóð á endum að þegar átti að njóta erfiðisins greindist Krist- ján með alvarleg veikindi sem að lokum báru hann ofurliði. Í Kristjáni eignuðumst við traustan vin sem við söknum sárt, við vottum aðstandendum samúð okkar, góður drengur er fallinn frá. Gunnar V. Andrésson og Anna K. Ágústsdóttir. Kristján S. Baldursson Látin er frænka mín, Salóme Jóns- dóttir. Hana vantaði tæpar fjórar vikur upp á að ná 89 ára afmæli sínu. Upp- haflega kynntist ég henni í gegn- um kristilegt starf hennar með móður minni. Hún var ein þeirra fjölmörgu bænamanneskja, sem báðu fyrir mér og framtíð minni. Nokkru síðar komst ég að því að hún var rótskyld föður mínum, á þann hátt að þau voru systkina- börn. Salóme var fædd þann 31. mars árið 1926, en það var einmitt á fertugsafmæli móður hennar. Hún opnaði mér dýrmæta gátt inn í ættir Kristjáns Ásgeirs Ólafs- Salóme Jónsdóttir ✝ Salóme Jóns-dóttir fæddist 31. mars 1926. Hún lést 5. mars 2015. Útför hennar fór fram 19. mars 2015. sonar, afa míns, sem mér auðnaðist aldrei að sjá, enda hafði hann látist tæpum tveimur árum áður en ég fæddist. Sal- óme var alla tíð glæsileg kona. Hún var trygglynd og sagði skemmtilega frá. Hún talaði mikið um það hversu sterkan svip ég hefði af Kristjáni afa. Sérstaklega nefndi hún augabrúnirnar og vaxtarlagið, en afi þótti hávaxinn maður. Hún sagði mér söguna af því þegar Kristján afi þurfti að gæta fjár sem ungur drengur og hversu mikið honum hefði leiðst einveran. En þegar Jónína Val- gerður, stóra systir hans, var komin, var allt gott. Þau voru af- skaplega náin, systkinin, enda ekki nema rúmt ár á milli þeirra. Það var á heimili foreldra Sal- óme, sem þá var að Ytri-Löngu- mýri í Austur-Húnavatnssýslu, sem leiðir Kristjáns afa og Ingv- eldar ömmu lágu saman fyrst. Síð- ar fluttust foreldrar Salóme að Akri ásamt börnum sínum, þar sem hún fæddist. Ég hitti þessa frænku mína nokkrum sinnum á samkomum að Hörgshlíð 12, fyrst með móður minni, en síðar fór ég nokkrum sinnum sjálfur og end- urnýjaði frændsemina. Því miður hafði ég misst sambandið við hana um nokkurra ára skeið. Auðvitað mundi hún eftir þessum frænda sínum og fagnaði auknum sam- skiptum. Mér þykir alveg sérstak- lega vænt um eina minningu: Að kvöldi afmælisdags míns árið 2010, er ég varð 39 ára, ákvað ég að fara á samkomu að Hörgshlíð 12, eins og ég var farinn að gera á þeim tíma. Hún var þar og flutti persónulegan vitnisburð eins og hún gerði svo oft. Stundum var ég með vitnisburð sjálfur, sem ég flutti gjarnan eftir að hún hafði flutt sinn. Eftir þessa samkomu bauðst ég til þess að keyra hana heim í Eskihlíðina, þótt leiðin væri stutt, enda var orðið dimmt. Hún þáði farið með þökkum, en vildi ekki heyra á annað minnst en að ég kæmi inn með sér, þegar hún heyrði að ég ætti afmæli þennan dag. Hún hitaði dýrindis súkku- laði og töfraði fram fínar kökur með. Þarna sat afmælis- drengurinn nánast fram á nótt og heyrði sögur af móður hennar, afa sínum og þeim systkinum. Salóme bjargaði kvöldinu og gerði það svo eftirminnilegt á sinn hljóðláta og hógværa hátt — eins og hún var sjálf. Síðar á því ári tók að halla undan fæti hjá henni, hún fluttist að Hrafnistu í Kópavogi, þar sem einnig var gott að koma og spjalla við hana. Þar kvaddi hún þennan heim í friðsæld aðfaranótt 5. mars síðastliðins. Guð blessi minn- inguna um yndislega konu og góða frænku og veiti ástvinum hennar styrk. Hún á vísa góða heimkomu í ríki hins Hæsta, þar sem harmur og kvein eru ekki framar til. Góður Guð blessi minn- ingu hennar. Þorgils Hlynur Þorbergsson. Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030 ALLAR SKREYTINGAR UNNAR AF FAGMÖNNUM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.