Morgunblaðið - 31.03.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Eygló Harðardóttir, félags- og hús-
næðismálaráðherra, segir að hús-
næðisfrumvörpin fjögur, sem hún
hyggst leggja
fram á þingi, séu
mikilvægt skref í
rétta átt til að
greiða úr þeim
vanda sem hefur
ríkt á húsnæðis-
markaði. Þau
bæði skerpi á og
bæti réttarstöðu
leigjenda og
leigusala. Sumt
geti orðið um-
deilt hjá fyrrnefnda hópnum, en
annað hjá þeim síðarnefnda.
Eygló kynnti ríkisstjórninni
fjögur frumvörp um húsnæðismál í
gær. Tvö þeirra voru afgreidd.
Annað snýr að endurskoðun á lög-
unum um húsnæðissamvinnufélög
og hitt að breytingu á húsaleigu-
lögunum.
Hin frumvörpin tvö, um stofn-
kostnað vegna félagslegs leiguhús-
næðis og húsnæðisbætur, voru ekki
afgreidd á ríkisstjórnarfundinum,
en þau eru enn í kostnaðarmati hjá
fjármála- og efnahagsráðuneytinu.
Í samtali í gærkvöldi sagði
Eygló að ríkisstjórnin myndi von-
andi afgreiða þau tvö frumvörp
sem allra fyrst. Frestur til að
leggja fram ný þingmál, sem eiga
að komast á dagskrá fyrir sum-
arhlé, rennur út í dag. „Ég er
sannfærð um að þingið sé tilbúið
að taka málin til meðferðar með af-
brigðum ef það bregst að leggja
þau fram fyrir tilskilinn tíma og
fjármálaráðuneytið þarf meiri tíma
til að fara yfir kostnaðarmatið,“
sagði Eygló.
Hún sagðist jafnframt bjartsýn á
að þingið afgreiddi þessi mál fyrir
þingfrestun. Um afar þýðingarmik-
il mál væri að ræða sem yrði að
samþykkja fyrir sumarfrí.
Bæta réttarstöðu leigjenda
Frumvarpinu um breytingar á
lögum um húsnæðissamvinnufélög
er ætlað að auðvelda slíkum fé-
lögum að starfa hér á landi. Verður
það gert með því að stuðla að sjálf-
bærum rekstri félaganna á sama
tíma og þeim sjálfum verði falið
ákvörðunarvald um ýmis atriði sem
hafa áhrif á rekstur þeirra.
Eygló sagði að verið væri að nú-
tímavæða lögin. Breytingarnar
væru í takt við þær breytingar sem
hefðu verið gerðar á Norðurlönd-
unum með mjög góðum árangri.
Hvað varðar breytingarnar á
húsaleigulögunum, þá myndu þær
bæta og skerpa á réttarstöðu leigj-
enda og leigusala.
Skerpt á stöðu leigjenda
Ríkisstjórnin afgreiddi í gær tvö frumvörp Eyglóar Harðardóttur um húsnæðis-
mál Hún vonast til að tvö önnur húsnæðisfrumvörp verði afgreidd sem fyrst
Morgunblaðið/Ómar
Fasteignir Húsnæðisfrumvörpin
fjögur hafa verið lengi í vinnslu.Eygló Harðardóttir
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Lestarstöð hefur verið sett inn á
nýja þróunaráætlun Keflavíkur-
flugvallar, svonefnt „masterplan“,
við flugstöðina. Sjá má lestarlínuna
og stöðina á meðfylgjandi mynd í
rauðum lit.
Í áætluninni er eins og fram hef-
ur komið gert ráð fyrir mikilli upp-
byggingu á flugvellinum. Áform um
lestarsamgöngur milli höfuðborg-
arinnar og Keflavíkurflugvallar og
innan höfuðborgarsvæðisins eru
einnig til umfjöllunar þessa dagana
á Alþingi í tengslum við þings-
ályktunartillögu Katrínar Jakobs-
dóttur og fleiri þingmanna um
könnun á hagkvæmni lestar-
samgangna.
Í nýrri umsögn Vegagerðarinnar
segir að uppbygging hraðlestar-
brautar milli Keflavíkurflugvallar
og höfuðborgarsvæðisins sé að
miklu leyti óháð uppbyggingu létt-
lestarkerfis innan höfuðborgar-
svæðisins. „Þó er ljóst að megin-
stoppistöð háhraðalestar hlýtur
alltaf að tengjast stoppistöð létt-
lestarkerfisins,“ segir í umsögn
Vegagerðarinnar, sem telur æski-
legt að huga sem fyrst að mögu-
legri legu hraðlestarbrautar „og þó
að hún verði líklega að miklu leyti
neðan jarðar innan þéttbýlisins
þarf að taka frá svæði í skipulagi,“
segir í umsögninni.
Lestarstöð á skipulagi Keflavíkurflugvallar
Vegagerðin telur að æskilegt sé að hugað verði sem fyrst að mögulegri legu hraðlestarbrautar
Lestarstöð á nýju skipulagi Keflavíkurflugvallar
Heimild: Ráðgjöf og verkefnastjórnun
Það var notalegt hjá þessari fjölskyldu sem hvíldi
sig í einni brekkunni í Bláfjöllum í gær. Færið var
eins og það gerist best, að sögn Magnúsar Árna-
sonar, framkvæmdastjóra skíðasvæðanna. Í huga
margra eru páskarnir tími skíðamennskunnar
enda er páskahelgin jafnan ein sú mikilvægasta
fyrir skíðasvæði landsins. Ef Bláfjöll verða opin
og veður gott má búast við allt að 25 þúsundum
manns yfir páskahelgina, 5000 manns á dag.
Morgunblaðið/Eggert
Búast við margmenni á skíðasvæðunum
Gott færi og gaman í Bláfjöllum
Samninga-
viðræður Félags
framhaldsskóla-
kennara og ríkis-
sáttasemjara
ganga vel og má
búast við að
samningar náist
á fundi í dag.
„Þetta er algjör-
lega á lokametr-
unum,“ segir
Guðríður Arnardóttir, formaður
Félags framhaldsskólakennara.
Tekist hefur verið á um nýtt
vinnumat sem var hluti af nýjum
kjarasamningi sem félagsmenn
felldu í lok febrúarmánaðar. Samn-
ingar framhaldsskólakennara hafa
verið lausir frá því en könnun
Félagsvísindastofnunar Háskóla Ís-
lands leiddi í ljós að 78% framhalds-
skólakennara við ríkisskóla vildu
semja á grundvelli nýs vinnumats
svo fremi sem það skilaði 11,3%
launahækkun á samningstímanum.
Að sögn Guðríðar eru fulltrúar Fé-
lags framhaldsskólakennara að
leggja lokahönd á samning sem fé-
lagsmenn geti verið sáttir við.
Gera ráð
fyrir að
semja í dag
78% vildu semja á
grundvelli vinnumats
Guðríður
Arnardóttir
Vegagerðin telur að eðlilegt sé
að skipulagsmálin, bæði hvað
varðar léttlestarkerfi og há-
hraðalest, verði unnin mjög ýt-
arlega áður en farið verður í
frekari rannsóknir á kostnaði og
hagkvæmni. Búast megi við að í
lok árs 2016 muni liggja fyrir
skipulagstillögur af hálfu sveit-
arfélaganna, sem verði mik-
ilvægar forsendur fyrir áfram-
haldandi vinnu.
Ýtarleg vinna
LESTIR OG SKIPULAG
Gísli Örn Bjarnhéðinsson, fram-
kvæmdastjóri Búseta, segir að
frumvarpið um endurskoðun á
lögum um húsnæðissamvinnu-
félög, sem afgreitt var úr ríkis-
stjórninni í gær, sé löngu tíma-
bært. Um sé að ræða mjög
þarfar og nauðsynlegar breyt-
ingar á lögunum.
Frumvarpinu er ætlað að auð-
velda starfsemi húsnæðissam-
vinnufélaga hér á landi. Eygló
sagði í samtali við mbl.is í gær-
kvöldi að í raun væri verið að
nútímavæða lögin.
„Breytingarnar skýra ákveð-
inn starfsramma fyrir félögin,
skerpa á réttindum og skyldum
búseturétthafa og skapa mögu-
leika á sterkari og sjálfbærari
rekstrargrundvelli fyrir félögin.
Þau geti þá þróað sig betur eins
og tíðkast hefur á Norðurlönd-
unum,“ segir Gísli.
Tímabærar
breytingar
NÚTÍMAVÆÐA LÖGIN