Morgunblaðið - 31.03.2015, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Byrjaði sem sjálfboðaliði Hildur Tryggvadóttir Flóvenz segir námskeiðin jafnt fyrir stráka og stelpur.
sinnum í viku, þrjá tíma í senn og
yfirleitt seinni part dags.
Hagnýt þekking
Aðspurð hvort námskeiðin séu
einkum ætluð verðandi barnapíum
svarar Hildur neitandi. „En þau eru
líka fyrir verðandi barnapíur,“ árétt-
ar hún. „Námskeiðin Börn og um-
hverfi eru afar hagnýt fyrir alla þá
sem umgangast börn hvort sem það
eru systkini eða annarra manna börn.
Eftir námskeiðin eru unglingarnir
ábyggilega betur í stakk búnir en ella
til að ráða sig til slíkra starfa.“
Leiðbeinendur á námskeið-
unum Börn og umhverfi eru leik-
skólakennarar, kennarar og
hjúkrunarfræðingar, en þeir
síðastnefndu kenna skyndi-
hjálp og fræða um slysa-
gildrur í umhverfinu. „Nám-
skeiðið skiptist í tvo hluta,
annars vegar er kennt hvernig á að
umgangast og koma fram við börn.
Fjallað er almennt um þroska barna
til átta ára aldurs, um samskipti, aga,
hollar lífsvenjur, leiki og hentug leik-
föng svo dæmi séu tekin. Hinn hlut-
inn snýr að slysavörnum og -gildrum
og fer allítarlega í skyndihjálp, sem
getur verið mjög hagnýtt fyrir alla að
kunna, ekki síst þá sem annast börn.“
Fleiri stelpur en strákar
Að sögn Hildar hafa fleiri stelp-
ur jafnan sótt námskeiðin Börn og
umhverfi, yfirleitt séu um tveir strák-
ar í hverjum hópi. „Það hefur samt
sýnt sig að þeim finnst alveg eins
gaman og stelpunum. Við hvetjum
stráka eindregið til að skrá sig á þessi
vinsælu námskeið þar sem þátttak-
endur fá tækifæri til að spreyta sig og
sækja sé þekkingu sem þeir fá ekki
annars staðar,“ segir Hildur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
Mercedes-Benz
Glæsilegir notaðir eðalbílar
Árgerð 2013, ekinn 24 þús. km,
sjálfskiptur, dísil, 170 hö.
Búnaður: Metallic lakk, Artico
leðuráklæði, hlíf undir vél,
hiti í framsætum, 16" álfelgur,
hærri fjöðrun o.fl.
Verð 6.490.000 kr.
E 300 CDI HYBRID C 220 CDI
Árgerð 2011, ekinn 84 þús. km,
sjálfskiptur, dísil, 205 hö.
Búnaður: Torfærupakki,
inniljósapakki, krómpakki,
metallic lakk, hlíf undir
vél, fjarlægðarskynjarar,
dráttarbeisli, sportpakki
að innan ofl.
Verð 5.790.000 kr.
GLK 250 CDI 4MATIC
Árgerð 2013, ekinn 13 þús. km, sjálfskiptur,
dísil/Hybrid, 205 hö.
Búnaður: Leðuráklæði, nálgunarvarar, sóllúga,
17” álfelgur, hiti í framsætum, Avantgarde pakki ofl.
Verð 9.190.000 kr.
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • www.notadir.is
Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16Bílaármögnun Landsbankans
Hitt húsið býður upp á ókeypis Kundalini-jóga í dag í klukkutíma á milli kl.
17.30 og 18.30. Í allan vetur hefur Hitt húsið boðið upp á ókeypis Kundalini-
jóga tvisvar í viku á sama tíma á þriðjudögum og fimmtudögum. Kundalini-
jóga er sambland af jógaæfingum og hugleiðslu. Æfingakerfið ruddi sér til
rúms á 20. öldinni og þykir hafa mjög góð áhrif á heilsuna jafnt andlegu sem
líkamlegu en þetta er samofið, ekki aðskilið.
Allir eru hvattir til að mæta og kynna sér þessa mannbætandi jógaiðkun.
Ekki þarf að koma með neitt með sér annað en góða skapið.
Ókeypis námskeið í Hinu húsinu
Morgunblaðið/Ómar
Kundalini-jóga bætir og kætir
Kundalini-jóga Hver vill
ekki ná jafnvægi með
hjálp ókeypis jógatíma.
Ferðaskrifstofan Kilroy heldur kynn-
ingarfund í dag á Kaffi Sólon kl. 17
um ferðir til Afríku þar sem fólki
gefst tækifæri til að starfa í sjálf-
boðaliðastarfi. Kilroy er í samstarfi
við tvenn samtök í Afríku sem bjóða
upp á fjölbreytt verkefni tengd sam-
félagsþjónustu og dýravernd í Gana,
Kenýa, Suður-Afríku, Tansaníu og Úg-
anda.
Á fundinum eru gefnar upplýsingar
um hvaða verkefni eru í boði og fólk
sem hefur tekið þátt segir frá.
Samfélagsþjónusta og dýravernd
Samsett mynd/Ferðaskrifstofan Kilroy
Afríka Kynning á sjálfboðaliðastarfi.
Sjálfboðaliðastarf í AfríkuHera Lind Birgisdóttir fór ánámskeiðið Börn og umhverfi, í
fyrra þegar hún var tólf ára.
„Mamma vildi að ég færi svo ég
gæti passað litlu systur mína,
sem fæddist í júlí þegar ég var
núbúin á námskeiðinu. Mér
fannst það mjög fræðandi og
mun ábyggilega kunna það
sem ég lærði allt lífið,“
segir Hera, en henni
kom mest á óvart
hversu mörg leikföng
geta verið hættuleg.
Sum leikföng
eru hættuleg
HERA LIND BIRGISDÓTTIR
Hera Lind
Birgisdóttir