Morgunblaðið - 31.03.2015, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015
ÉÉg er nýorðin móðir í annað sinn,“ segir Una Sveinbjarnar-dóttir fiðluleikari sem eignaðist dóttur síðastliðið föstudags-kvöld. „Fram undan hjá mér eru því rólegheit um páskana,
bækur, tónlist og kvikmyndir og náttúrlega mömmó. Það er rosalega
hollt og inspírerandi að vera mamma. Svo ég er mjög þakklát þessum
stúlkum í nipple-dæminu, þær ryðja brautina og ég get gefið brjóst út
um allt. Við erum reyndar vön því að vera á Ísafirði um páskana á
Aldrei fór ég suður og það er smá söknuður yfir því að geta ekki verið
þar en maðurinn minn, Skúli Þórðarson, Skúli mennski, er þaðan.
Hann var að senda frá sér nýja plötu sem heitir „Tíu ný lög sem gætu
breytt lífi þínu í engri sérstakri röð“.“ Fyrra barn þeirra Skúla er
Þórður sem er 6 ára gamall en hann er hæstánægður með litlu systur.
Hvað með afmælisdaginn sjálfan, ertu búin að ákveða eitthvað sér-
stakt þann daginn? „Þá ætla ég að fá mér rosalega góðan morgunmat,
egg benedikt, hlusta á fallega tónlist og taka það gríðarlega rólega.“
Síðasta tónleikarnir sem Una hélt voru hluti af tónleikaröð í
Hafnarborg. Þeir voru haldnir á konudaginn þar sem voru flutt verk
eftir Elínu Gunnlaugsdóttur og Kaju Saariaho. „Mitt síðasta verk var
að flytja sólóverk eftir Kaju og þá rak ég fiðlubogann aðeins í bumb-
una. Það má því segja að þá hafi ég fengið rauða spjaldið um að taka
mér smá pásu frá fiðlunni, en ég er með nokkrar hugmyndir sem ég
er að vinna úr og það er gott að hafa ró og næði og intróvert stemn-
ingu til þess.“
Una Sveinbjarnardóttir er fertug í dag
Morgunblaðið/Einar Falur
Fiðluleikari og tónskáld Una er með nokkrar hugmyndir í kollinum
sem hún ætlar að vinna úr meðan hún sinnir móðurhlutverkinu.
Eignaðist dóttur
á föstudaginn
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Grindavík Katrín Ósk Tómasdóttir fæddist 27. október 2014 kl. 3.14. Hún vó
3.360 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Guðný Rut Hafsteinsdóttir og
Tómas Tandri Jóhannsson.
Nýr borgari
F
innbogi Leifsson fædd-
ist 31. mars 1955. Hann
gekk í barnaskóla í
Varmalandi í Mýra-
sýslu, fór síðan í gagn-
fræðaskóla í Borgarnesi. Skóla-
ganga hans varð ekki lengri þrátt
fyrir að hann væri góður náms-
maður, enda var hann þá orðinn stoð
og stytta foreldra sinna í búskapn-
um í Hítardal.
„Ég var í sameiginlegum bú-
rekstri með foreldrum mínum þar til
við Erla hófum þar sjálfstæðan bú-
skap fyrir nærri 30 árum.“ Hafa þau
verið með sauðfjárbú, nú rúmlega
400 kindur, en þau hafa fækkað bú-
stofni nokkuð hin síðari ár vegna
veikinda Finnboga og vinnu Erlu ut-
an bús. „Hítardalur er fjallajörð, af-
skekkt á árum áður og að sumu leyti
enn, þangað liggur holóttur malar-
vegur, þar nást ekki útsendingar
Finnbogi Leifsson, sauðfjárbóndi í Hítardal – 60 ára
Við Jökulsárlón Finnbogi og Erla ásamt yngsta barni þeirra, Huldu Rún, við Jökulsárlón fyrir nokkrum árum.
Afskekkt byggð án
sjónvarps og farsíma
Börnin Leifur, Hulda Rún og Tinna Kristín á réttardegi í Hítardalsrétt.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift
að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
Hlaupakettir
og talíur
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288
Skaft- og keðjutalíur úr áli og stáli
- lyftigeta allt að 9000 kg.
Rafdrifnar keðjutalíur
- lyftigeta allt að 4000 kg.