Morgunblaðið - 31.03.2015, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 31.03.2015, Qupperneq 35
sjónvarps og farsímasamband er ekki til staðar.“ Félagsmál Finnbogi hefur tekið virkan þátt í félagsmálastarfi. Hann hefur verið í stjórn Búnaðarfélags Hraunhrepps og síðar Búnaðarfélags Mýramanna. Þá var hann formaður í Félagi sauð- fjárbænda í Borgarfirði 1994-2000. Hann hefur tekið mikinn þátt í starfi ungmennafélagsins Björns Hítdæla- kappa og var lengi formaður þess fé- lags. Þá sat hann um tíma í stjórn UMSB. Finnbogi hefur í rúm 30 ár setið í sveitarstjórnum og á þeim vettvangi verið í ýmsum nefndum og stjórn- um. Hann tók sæti í hreppsnefnd Hraunhrepps 1984 á miðju kjör- tímabili, sat þar næstu tvö kjör- tímabil síðast sem oddviti hreppsins. Árið 1994 var Hraunhreppur eitt af þeim sveitarfélögum sem samein- uðust í sveitarfélagið Borgarbyggð. Tók Finnbogi þá sæti í sveitarstjórn Borgarbyggðar fyrir Framsóknar- flokkinn og hefur verið þar allar göt- ur síðan, hann er því á sínu níunda kjörtímabili í sveitarstjórn. „Það er krefjandi verkefni að sinna sveitar- stjórnarmálum, en ég er sérlega ánægður með samstarf við fulltrúa í sveitarstjórnum og starfsfólk sveit- arfélagsins allan þennan tíma. Ég hef ávallt haft áhuga á þjóð- málum. Þá fylgist ég grannt með íþróttaviðburðum og er knatt- spyrnan þar í forgangi, er dyggur stuðningsmaður Vals og Manchester United. Bókalestur hefur verið í uppáhaldi hvort sem um er að ræða skáldsögur eða fræðibækur. Bæk- urnar um íslenska knattspyrnu eru ávallt tiltækar.“ Finnbogi verður að heiman í dag. Fjölskylda Sambýliskona Finnboga er Erla Dögg Ármannsdóttir, f. 19.7. 1964, viðurkenndur bókari og vinnur hjá Stormi ehf. Foreldrar hennar: Krist- ín Óskarsdóttir, f. 27.7. 1925, d. 22.8. 2012 og Ármann Bjarnfreðsson, f. 20.3. 1928, d. 9.6. 1988. Fósturfor- eldrar: Hulda Tryggvadóttir, f. 5.2. 1927, d. 26.9. 2001 og Kjartan Hall- dórsson, f. 5.3. 1917, d. 11. 8. 2004. Börn Finnboga og Erlu: Leifur Finnbogason, f. 23.9. 1989, af- greiðslumaður, bús. í Hítardal; Tinna Kristín Finnbogadóttir, 6.1. 1991, skákkona, íslenskufræðingur og háskólanemi, bús. í Kópavogi, maki: Sigurboði Grétarsson tónlist- armaður; Hulda Rún Finn- bogadóttir, f. 15.5. 1996, nemi við Menntaskólann við Hamrahlíð, bús. í Hítardal. Systir Finnboga er Sigríður Leifs- dóttir, f. 18.7. 1956, starfsmaður Omnis, bús. í Borgarnesi, maki: Sig- urður Arilíus Emilsson. Foreldrar Finnboga: Leifur Finn- bogason, f. 25.4. 1913, d. 17.10. 1991, bóndi í Hítardal, og Guðrún Jóns- dóttir, f. 23.11. 1925, húsfreyja í Hítardal. Úr frændgarði Finnboga Leifssonar Finnbogi Leifsson Guðný Hannesdóttir húsfreyja á Kvennabrekku Helgi Helgason bóndi í Syðri-Hraundal á Mýrum, síðar í Dölum, lengst á Kvennabrekku Finnbogi Helgason bóndi í Hítardal Sigríður Teitsdóttir ljósmóðir og húsfreyja í Hítardal Leifur Finnbogason bóndi í Hítardal Kristín Bergþórsdóttir húsfreyja á Meiðastöðum í Garði og í Rvík Teitur Pétursson skipasmiður í Garði og hafnsögumaður í Rvík Þorsteinn Helgason bóndi á Mel í Hraunhr., Mýr Bjarni Þorsteinsson, prestur, tónskáld og þjóðlagasafnari á Siglufirði Halldóra Helgadóttir húsfreyja á Svínhóli í Miðdölum Helgi Jóhannesson aðalgjaldkeri Rafmagnsv. Rvík Hörður Helgason fv. skólameistari á Akranesi Orri Harðarson rithöfundur á Akureyri Ingimundur Jónsson vélstjóri Elías Svavar Jónsson stöðvarstj. Pósts og síma Pétur Finnbogason skólastjóri á Dalvík og Akureyri Gunnar Finnbogason skólastjóri í Reykjavík Kristján Finnbogason verkstjóri og trésmiður á Selfossi Bergþór Finnbogason kennari á Selfossi Héðinn Finnbogason héraðs- dómslögmaður í Reykjavík. Sigrún Dagmar Elíasdóttir húsfreyja í Borgarnesi Sigurður Stefánsson bóndi á Brúará Sigríður Jónsdóttir húsfreyja á Brúará við Bjarnarfjörð Halldór Jón Sigurðsson bóndi á Brúará, Klúku og Bjarnarnesi Jórunn Agatha Bjarnadóttir húsfreyja á Brúará, Klúku og Bjarnarnesi Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Hítardal Bjarni Þorbergsson bóndi á Bassastöðum og Klúku Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja á Bassastöðum og Klúku í Bjarnarfirði Sigurður Ingimundarson fv. körfuknattleiksmaður Valur Ingimundarson fv. körfuknattleiksmaður ÍSLENDINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MARS 2015 Steingrímur var sonur þjóð-skáldsins Matthíasar Joch-umssonar og konu hans Guð- rúnar Runólfsdóttur. Hann fæddist í Reykjavík 31. mars 1876 og ólst upp í Odda á Rangárvöllum og á Akureyri. Hann varð stúdent frá Lærða skól- anum 1896 og var inspector scholae. Steingrímur lauk námi í læknisfræði frá Hafnarháskóla 1902. Eftir emb- ættisprófið gerðist hann skipslæknir hjá Austur-Asíufélaginu í eitt ár. Hann lýsti reynslu sinni í bók sinni „Frá Japan og Kína“. Hann var að- stoðarlæknir héraðslæknisins á Ak- ureyri 1902-03, og í Reykjavík 1905- 06 og kenndi þá einnig við læknadeild HÍ. Hann var héraðslæknir og sjúkrahúslæknir á Akureyri 1907-36 en starfaði síðan í Danmörku og í Nexö á Borgundarhólmi til 1948. Steingrímur þótti farsæll læknir. Hann var með þeim fyrstu til að gera keisaraskurð þar sem bæði barn og móðir lifðu, bjargaði mannslífi með því að bora gat á höfuðkúpu við ut- anbastsblæðingu og innleiddi all- margar nýjungar. Hann kunni vel að meta góða hesta til að fara í vitjanir. Hann var formaður sjúkra- hússtjórnar á Akureyri, Rauða kross- ins og slysavarnadeildar á Akureyri um árabil. Steingrímur varð landskunnur fyr- ir ritstörf sín og kennslu. Hann skrif- aði greinar í innlend og erlend lækna- rit og kennslubækur í heilsufræðum fyrir lærða sem leika. Nefna má ritin Áhrif áfengis á líkama mannsins, Heilsufræði, Ný matreiðslubók fyrir fátæka og ríka, Freyjukettir og Frey- jufár, Hjúkrunarfræði og lækn- ingabók, Annað líf í þessu lífi. Steingrímur var í uppvexti mikill gleðigjafi foreldra og systkina. Hann annaðist foreldra sína af mikilli alúð á efri árum þeirra á Akureyri. Steingrímur kvæntist Kristínu Thoroddsen og eignuðust þau átta börn og misstu tvær dætur og einn son á unga aldri. Steingrímur lést á Landspítalanum 27. Júlí 1948 og var bálför hans með þeim fyrstu sem gerðar voru hér á landi. Hann var jarðsettur í grafreit foreldra sinna á Akureyri. Merkir Íslendingar Steingrímur Matthíasson 95 ára Þorsteinn Þorsteinsson 85 ára Ásta Lovísa Pálsdóttir Gunnar Pétursson Sigurjón Guðmundur Jóhannesson 80 ára Hilmar Pálsson Kristín Andrea Schmidt Theodóra Steinunn Káradóttir 75 ára Gísli Ólafur Pétursson Hlíf Leifsdóttir Jón Ólafur Hjartarson 70 ára Guðmundur Hafliðason Ingólfur Ingólfsson Ragnar Þórðarson Sigtryggur Eyfjörð Benediktsson Sigurbjörg Sveinsdóttir 60 ára Díana Björk Hólmsteinsdóttir Guðmundur Örn Njálsson Guðrún Sverrisdóttir Gunnar Þorláksson Hanna Kristinsdóttir Helga Guðbjörg Skúladóttir Helgi Svavar Reimarsson Jóhann Viðar Jóhannsson Linda Sjöfn Hreiðarsdóttir Oddný Inga Hólmsteinsdóttir Ragnar Þór Arnljótsson Sigrún Sigurðardóttir Sölvi Steinn Alfreðsson 50 ára Betty Wahl Birgir Þór Birgisson Harpa Björnsdóttir Indriði Björnsson Jóna Sigríður Einarsdóttir Líney Ingvarsdóttir Miroslaw Rzepnicki Þórhallur Borgarsson 40 ára Alicja Brygida Sadowska Bragi Guðjónsson Grzegorz Winiarski Halldór Guðjónsson Lilja Guðríður Karlsdóttir Mario Arlovic María Bjarnadóttir Norbert Luszczewski Ólafur Páll Höskuldsson Sólveig Dagmar Erlendsdóttir Theódóra Bjarnadóttir 30 ára Agnieszka Teresa Ploszaj Andrea Maraschi Anna María Halldórsdóttir Arkadiusz Michal Dworak Auður Adda Halldórsdóttir Ellen Svava Rúnarsdóttir Guðmundur Þór Ármannsson Karólína Kristín Óskarsdóttir Lilly Aletta Jóhannsdóttir Linda Gunnarsdóttir Malgorzata Wierzbicka Natan Jónsson Ragnar Þór Georgsson Tinna Sædal Jónsdóttir Til hamingju með daginn 40 ára Ólafur er Skaga- maður og er vaktstjóri hjá Elkem á Grundartanga. Maki: Lára Björk Gísla- dóttir, f. 1978, hjúkrunar- fræðingur á HVE. Börn: Aldís Birta, f. 2008, Elmar Gísli, f. 2010, og Viktor Ísak, f. 2013. Foreldrar: Karvel Karvelsson, f. 1952, pípu- lagningameistari, og Ólafía Ólafsdóttir, f. 1953, d. 1993, húsmóðir á Akranesi. Ólafur Lindberg Karvelsson 30 ára Helgi Gunnar er Reykvíkingur og verk- fræðingur hjá verk- fræðistofunni Vatna- skilum. Maki: Kristín Líf Valtýs- dóttir, f. 1985, verkfræð- ingur hjá Marel. Börn: Hákon Hrafn, f. 2013. Foreldrar: Gunnar H. Eg- ilson, f. 1949, þýðandi, og Dagný Helgadóttir, f. 1949, arkitekt hjá Reykja- víkurborg. Helgi Gunnar Gunnarsson 30 ára Gunnar er Keflvík- ingur en býr í Rvík og er lögfr. hjá Fjármálaeftirl. Maki: Halldóra Þ. Hall- dórsdóttir, f. 1986, er í fæðingarorlofi. Börn: Ardís Marela, f. 2003, Svava Lind, f. 2008, og Ásdór Þór, f. 2014. Foreldrar: Ásgeir Eiríks- son, f. 1957, lögfr. hjá Sýslum. í Keflavík, og Ólöf Jónsdóttir, f. 1960, heim- ilisfr.kennari í Heiðarsk. Gunnar Þór Ásgeirsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.