Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Síða 3

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Síða 3
Otrivin Comp, nefúði, lausn. Innihaldslýsing: Xýlómetazólínhýdróklóríð 0,5 mg/ml og ipratrópíumbrómíð. Ábendingar: Einkenni nefstíflu (þrútinnar nefslímhúðar) og nefrennslis af völdum kvefs. Skammtar og lyfjagjöf fyrir fullorðna eldri en 18 ára: 1 úðun í hvora nös allt að þrisvar á sólarhring. Milli tveggja skammta skulu líða að minnsta kosti 6 klukkutímar. Ekki nota fleiri en þrjár úðanir í hvora nös á sólarhring. Meðferð skal ekki vara lengur en í 7 daga. Til að draga úr líkum á aukaverkunum er mælt með því að meðferð sé hætt þegar dregið hefur úr einkennum og einnig áður en 7 sólarhringar eru liðnir. Ekki er mælt með notkun Otrivin Comp fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára. Takmarkaðar upplýsingar liggja fyrir um notkun hjá sjúklingum eldri en 70 ára. Fyrir fyrstu notkun þarf að virkja úðadæluna með því að úða 4 sinnum út í loftið. Eftir það er úðadælan jafnan tilbúin til notkunar. Ef úðadælan úðar ekki þegar þrýst er á hana, eða ef lyfið hefur ekki verið notað lengur en í 6 sólarhringa, þá þarf að virkja hana að nýju eins og lýst er að framan. Ekki má nota lyfið ef þú ert með ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, ofnæmi fyrir atrópíni eða svipuðum efnum (t.d. hýoscýamíni eða skópólamíni), ef þú hefur gengist undir aðgerð í gegnum nefið eða munninn, kvef með óeðlilega þurri nefslímhúð hjá sjúklingum (rhinitis sicca) eða ert með gláku. Ráðfærðu þig við lækni áður en lyfið er notað ef þú ert: Þunguð, með barn á brjósti, næmur fyrir adrenvirkum efnum, hjarta- eða æðasjúkdóm, skjaldvakaóhóf, sykursýki, háþrýsting, erfiðleika við þvaglát (stækkaðan blöðruhálskirtil), æxli í nýrnahettum, ef þú færð oft blóðnasir (t.d. aldraðir), ert með þarmalömun eða slímseigjusjúkdóm. Forðast skal notkun í eða nálægt augum. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað er að nota lyfið. Sjá notkunarleiðbeiningar í fylgiseðli. Markaðsleyfishafi:Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ. Otrivin Comp bæði gegn nefstíflu og nefrennsli Tvíþætt áhrif gegn nefstíflu og nefrennsli Inniheldur ekki rotvarnarefni og veldur því síður ertingu í nefi Andaðu með nefinu Nýjar umbúðir!

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.