Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.03.2015, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.3. 2015
Heilsa og hreyfing
S
umir hafa græna fingur en
það er fólkið sem allt
blómstrar í höndunum á.
Mikil vinna liggur að baki
góðri uppskeru og fallegum garði
en flestir sem stunda garðyrkju og
ræktun gera það ánægjunnar
vegna. Þeir halda því oft fram að
þeim líði best í garðinum og ná
sumir einhvers konar hugleiðu-
ástandi eða ná að minnsta kosti að
róa hugann verulega á meðan ver-
ið er að reyta arfann í garðinum.
Blaðamaður veit meira að segja
um eina manneskju sem
býðst til þess að reyta
arfa í garðinum hjá vin-
um sem eru ekki garð-
yrkjulega sinnaðir til að
fá þessi góðu áhrif.
Ekki er nóg með að
störfin í garðinum láti
fólki líða vel heldur eru
þau orðin að við-
urkenndri meðferð.
Garðræktarþerapía (e.
horticultural therapy) hefur lengi
verið við lýði. Benjamin Rush, einn
af þeim sem skrifuðu undir sjálf-
stæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna og
er sagður vera faðir bandarískra
geðlækninga, var fyrstur til að
skrásetja jákvæð áhrif garðvinnu á
einstaklinga með geðsjúkdóma.
Meðferð og
samfélagslegt gildi
Á árunum eftir stríð varð garð-
ræktarþerapía ekki lengur notuð
aðeins á andlega sjúkdóma heldur
með góðum árangri á stríðshrjáða
hermenn. Núna er meðferðin not-
uð á margan mismunandi hátt, til
uppbyggingar einstaklinga og sam-
félaga.
Garðræktarþerapía er notuð til
að hjálpa einstaklingum til að læra
eitthvað nýtt eða í endurhæfingu.
Sannað hefur verið að hún bæti
minni og andlega getu, tungu-
málahæfileika og fleira. Hún hefur
ekki bara áhrif á andlega sviðið
heldur getur hún styrkt líkamann,
bætt samhæfingu, jafnvægi og út-
hald.
Meðferðina er hægt að nota með
sérhönnuðum görðum, til dæmis
hafa verið búnir til sérstaklega
vellyktandi garðar fyrir blinda þar
sem hægt er að þefa og snerta.
Ennfremur hefur meðferðin verið
notuð fyrir börn með einhverfu,
fatlað fólk og eldra fólk sem þjáist
af elliglöpum af einhverju tagi.
Hvað samfélagslegt gildi garð-
ræktar varðar hefur hún verið not-
uð í fangelsum og til þess að
hjálpa föngum að aðlagast lífinu
utan múranna eftir að þeir sleppa
út.
Nýleg könnun gerð fyrir Nation-
al Gardens Scheme í Bretlandi
leiddi í ljós að 39% aðspurða sögðu
að það að vera í garði léti þeim
líða betur á meðan 79% trúa því
að aðgengi að garði sé nauðsynlegt
fyrir almenna vellíðan.
Gott mótvægi við
skrifstofuvinnu
Garðyrkja er sérstaklega góð fyrir
fólk sem er bundið við skrifborðið
alla daga. Það er gott að reyna á
sig líkamlega og anda að sér
frísku lofti fyrir fólk
sem situr inni í
vinnunni. Það að rækta
eitthvað er líka sérlega
gefandi bæði andlega og
líkamlega og veitir
ákveðna tengingu við
hringrás lífsins. Ákveðin
fegurð felst líka í blóm-
unum sem lifna við af
fræi og trjánum sem
bruma á vorin.
Svo bragðast heimaræktað
grænmeti auðvitað betur, það er
líka svo nýtt þegar það fer á disk-
inn. Ræktun getur sameinað fjöl-
skyldur, jafnvel þó að þátttaka
yngstu meðlimanna felist mest í
því að borða uppskeruna. Börn
hafa reyndar sérstaklega gaman af
því að vökva.
Þeir sem hafa ekki stóran garð
eða gróðurhús geta byrjað á því
að prófa að rækta kryddjurtir í
eldhúsglugganum. Leiðbeiningar
við ræktun þeirra er að finna hér
til hliðar.
GARÐRÆKTARÞERAPÍA FYRIR ANDLEGA OG LÍKAMLEGA HEILSU
Græn vellíðan
Það er gott að reyna á sig lík-
amlega og anda að sér frísku
lofti fyrir fólk sem situr alla
daga inni í vinnunni.
Getty Images/iStockphoto
VINNA Í GARÐINUM LÆTUR FÓLKI LÍÐA BETUR OG AÐGANGUR AÐ GRÆNUM
SVÆÐUM GERIR MIKIÐ FYRIR HEILBRIGÐI FÓLKS. SÉRSTÖK GARÐRÆKTARÞERAPÍA
ER JAFNFRAMT MIKIÐ NOTUÐ TIL ENDURHÆFINGAR OG LÆRDÓMS.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
* Flestir sem stunda garðyrkjuog ræktun gera það ánægj-unnar vegna. Þeir halda því oft
fram að þeim líði best í garðinum
og ná einhvers konar hugleiðu-
ástandi þegar arfinn er reyttur.
Garðyrkjufélag Íslands býður upp á tveggja kvölda námskeið í ræktun og umhirðu gróðurs í
sumarhúsalandinu miðvikudaginn 18. mars og fimmtudaginn 19. mars frá kl. 19.30 til 22. Á
námskeiðinu verður meðal annars fjallað um val á fjölbreyttum gróðri í sumarhúsalandinu og
sérkenni tegunda með tilliti til ólíkrar notkunar og þarfa. Nánar á gardurinn.is.
Gróðurinn í sumarhúsalandinu
Önnur ástæða þess að garðvinnan
lætur fólki líða vel eru örverur sem
finnast í jarðveginum. Mycobacteri-
um vaccae hafa svipuð áhrif á heil-
ann og prozac. Þessar örverur örva
serótónínframleiðslu sem hjálpar
fólki að slaka á og lætur því líða bet-
ur. Til að fá þessi góðu áhrif þarf
bara að leika sér aðeins í moldinni.
Flestir garðyrkjuunnendur þekkja
þessi góðu áhrif en gaman er að fá
þau staðfest með rannsóknum. Há-
skólinn í Bristol er einn þeirra sem
hafa rannsakað þetta. Í hefðbundinni
garðvinnu andarðu örverunum að
þér, færð þær í þig í gegnum húðina
eða jafnvel í gegnum sár. Þessi góðu
áhrif geta varað í allt að þrjár vikur í
senn.
Það að hafa aðgang að grænu
svæði getur styrkt ónæmiskerfið og
bætt heilsu og ættu því allir að hafa
aðgang að slíku heilsueflandi svæði. Í
Bretlandi er það þó ekki raunin. Töl-
fræði frá Royal College of Nursing
sýnir að fólk sem býr á þeim svæð-
um sem eru minnst græn deyr að
meðaltali sjö árum á undan þeim
sem búa þar sem almenningsgarðar,
tré og dýralíf er aðgengilegt.
ÖRVERUR Í MOLDINNI AUKA HAMINGJU
Prozac í garðinum
Það er gott að róta í moldinni. Í hefðbundinni garðvinnu andarðu örverunum
að þér, færð þær í þig í gegnum húðina eða jafnvel í gegnum sár.
Getty Images