Bókasafnið - 01.10.2008, Blaðsíða 17
BÓKASAFNIÐ 32. ÁRG. 2008 15
Inngangur
Háskólaárið 2006-2007 hélt bókasafns- og upplýs-
ingafræðiskor upp á hálfrar aldar afmæli kennslu
greinarinnar við Háskóla Íslands. Í upphafi haust-
misseris 2005 hófst undirbúningur afmælisársins. Dr.
L. Anne Clyde prófessor heitin, sem þá var skorarfor-
maður, kom að máli við Jóhönnu Gunnlaugsdóttur
föstudaginn 16. september það ár. Hún vildi að stofn-
uð yrði afmælisnefnd og Jóhanna yrði í forsvari fyrir
nefndinni. Það þyrfti síðan að bera upp á næsta skor-
arfundi. Þá kom Anne með tillögu um að þær skrifuðu
bókarkafla um sögu og þróun greinarinnar í Háskóla
Íslands í 50 ár til birtingar í afmælisriti Charles Stuart
University í Ástralíu. Afmælisritið átti að gefa út í til-
efni af 30 ára afmæli bókasafnsfræðikennslu þar en
Anne hafði kennt við skólann á árum áður. Af þeirri
samvinnu gat auðvitað ekki orðið. Að beiðni ritstjóra
varð þó úr að bókarkafli var skrifaður um kennslu
greinarinnar við Háskóla Íslands í hálfa öld sem birt-
ist í afmælisritinu (Jóhanna Gunnlaugsdóttir, 2006).
Ótímabært andlát Anne bar að tveimur dögum eftir
fund þeirra, hinn 18. september 2005, eins og kunn-
ugt er.
Þrátt fyrir erfiða tíma var ákveðið að halda áfram
undirbúningi vegna afmælisins og á skorarfundi
22. september 2005 var dagskrá lauslega rædd.
Ákveðið var að stofna vinnuhóp um afmælið og jafn-
framt var samþykkt að Jóhanna yrði í forsvari fyrir
honum (Bókasafns- og upplýsingafræðiskor, 2005).
Afmælisnefnd var síðan skipuð og í henni sátu Ágústa
Pálsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir (formaður) og
Kristín Ósk Hlynsdóttir, kennarar í bókasafns- og upp-
lýsingafræði; Heiðrún Dóra Eyvindardóttir, Sigríður
Halldóra Gunnarsdóttir og Steinunn Aradóttir, full-
trúar nemenda í bókasafns- og upplýsingafræðiskor;
Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður; Inga
Dís Karlsdóttir, fulltrúi Félags um skjalastjórn, og
Guðrún Pálsdóttir, fulltrúi Upplýsingar. Fyrsti fundur
nefndarinnar var haldinn 1. júní 2006.
Afmælisatburðir
Þó svo að afmælisnefndin kæmi ekki saman fyrr en 1.
júní 2006 og afmælisárið hæfist ekki formlega fyrr en
með nýju háskólaári 1. júlí 2006 ákvað skorin að taka
forskot á sæluna og efna til tveggja afmælisatburða,
málþinga, í lok fyrra háskólaárs eða í apríl 2006.
Fyrra málþingið var haldið 24. apríl í Háskóla Íslands
í samvinnu við NORSLIS og var um rannsóknir
í upplýsingahegðun og heilsueflingu. Sigrún Klara
Hannesdóttir landsbókavörður flutti ávarp í upphafi
málþingsins. Hún minntist afmælisins og atburða
úr sögu greinarinnar. Erindi fluttu fræðimenn frá
Åbo Akademi í Finnlandi; Mariam Ginman próf-
essor, Stefan Ek sérfræðingur og Kristina Eriksson-
Backa kennari, auk Ágústu Pálsdóttur, lektors við
bókasafns- og upplýsingafræðiskor Háskóla Íslands.
Fundarstjóri var Þórdís T. Þórarinsdóttir, formaður
Upplýsingar.
Á síðara málþinginu, sem haldið var 27. apríl í
Háskóla Íslands, var fjallað um rannsóknir nem-
enda í skorinni. Það hlaut heitið Fjölbreytt þekking-
arsamfélög: Nýjar rannsóknir í bókasafns- og upp-
lýsingafræði. Málþingið hófst með myndasýningu úr
námi og starfi skorar í áranna rás. Þá setti Sigríður
Halldóra Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri málþings og
nemandi í bókasafns- og upplýsingafræði, þingið.
Stefanía Júlíusdóttir, bókasafns- og upplýsingafræð-
Heiðrún Dóra Eyvindardóttir og
Jóhanna Gunnlaugsdóttir
Að loknu afmælisári
Málþing 2006 – séð yfir salinn.