Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 4

Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 4
Myndar- heimiU. (Þess var jarið á leit við skáldið i Gljúfrasteini, að hann skrifaði litinn póst í Reykjalund, eitthvað varðandi S. I. B. S. eða starfsemi þess. Brást skáldið Ijiífmannlega við og sendi eftirfarandi grein um heimilið að Reykjalundi. Kunnum vér honum beztu þakkir fyrir. Ritstj.). Áður fyrri voru myndarheimili sem svo voru kölluð víða á Islandi. Þó ekki væri nema eitt í sveit, stuðlaði slíkt heimili að því að gera þá sveit góða. Myndarheimili voru ekki ævinlega ríkisheimili. því íór fjarri, heldur þeir bæir þar sem búið var með meiri þrifnaði innan stafs og utan en á öðrum stöð- um, og viðurgerníngur eftir því, svo við heimafólk sem gesti og gángandi. Sumar sveitir voru þó svo fátækar að þar var ekk- ert slíkt heimili til, eingin stjarna sem lýsti í svartnætti kurfsháttar, sóðaskapar og smekkleysis. í slíkum sveitum nutu hin fjar- lægu myndarheimili að vísu verðugs lofs, en það var vitnað til þeirra einsog hálf óraunverulegra staða sem menn kann að dreyma um, en einginn gerir sig svo djarfan 2 að ætla að stýra þángað sinni för. Samt var ekki dularfult í fari þessara heimila, né fólksins sem bjó þar, — nema það hafði tekið sóttkveikju menníngarinnar, ef ég mætti tala í öfugmælum; eða hafði haft hana í sér frá öndverðu. Siðmenníng er hlutur sem ekki fer einsog logi yfir akur. Á okkar dögum, þegar al- menn skólamentun allrar þjóðarinnar hefur verið lögskipuð, sannast það á, meðal ann- ars í skólunum sjálfum, að undarlega há hundraðstala þessarar litlu þjóðar virðist vera lítt næm fyrir siðmenníngaráhrifum af uppeldi. Ótrúlega margir íslendíngar í sveit og bæ á íslandi virðast vera „ósíviliséran- legir“. Oft virðast þessar lögboðnu skóla- gaungur verða til þess eins að draga fram Revkjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.