Reykjalundur - 01.06.1958, Side 40
ar heilsu, dauft líf manneskju í höndum
góðrar hjúkrunarkonu, heldur en í höndum
kærulausrar og önugrar — jafnvel aðeins af
því getur líf slokknað — enda þótt uppskurð-
ur og þreytandi vinna læknisins hafi heppn-
ast eins og bezt verður á kosið.
Svo líður tíminn, en síðan þetta skeði, hefi
ég rekist á ýmislegt, sem mér virðist stað-
festa þessar hugleiðingar mínar.
Nefni ég þá fyrst bókina: „Hvers vegna,
vegna þess“, sem gefin var út um aldamótin
af Bókmenntafélaginu. Þar er minnst á ó-
heppileg áhrif mjög þurrs loftslags á líkam-
ann. Húðin, sem þurfi að anda, lokast þá,
sem er óeðlilegt. Þessi lokun húðarinnar er
nauðsynleg, því annars mundi maður þorna
upp. Fer þá útgufunin fram, aðeins í gegn
um lungun, sem er þá aukið álag á þau. Og
ekki bætir úr, ef þau eru veik fyrir.
Menn tala um vorveikindi, jafnvel er þeim
nokkuð lýst í bókinni „Landnám Ingólfs“ (í
kafla Þórbergs?). Það er álit manna að þessi
vorveikindi stafi af lömun eftir veturinn, en
ég held að svo sé ekki að öllu leyti, heldur
þetta skyndilega þurra loft, sem er samfara
mánuðunum apríl og maí. Það mætti því
losna við þau með því að fara til staða, sem
hefðu rakara loftslag — ja, og kannske bara
með því að metta líkamann nægilega með
vatni — dagleg böð — og dvelja hæfilega
lengi í baðinu — sturta e. t. v. nægileg.
☆
Hér tek ég upp kafla úr bandarískri al-
fræðibók, kaflinn heitir
VEÐUR
Raki cr nauðsynlegur til heilsusamlegs lífs. Venju-
lega fellur rakastigið i íbúðunt vorum á vetruin, og
sama er að segja um skrifstofur og aðra vinnustaði,
allt niður í 20—30%. Það er ca. 35% lægra en vera ætti
(= 55—65%, eða meira en helmingi lægra en það á-
kjósanlega. Innsk. þýð.). I'egar rakastigið er komið svo
iágt. er það komið niður fyrir eyðimerkurloftslag við
sama liitastig.
Slíkt þurrt loftslag framkallar hraða uppgufun og
þurrkun í slímhúðum öndunarfæranna, stöðuga ertingu
hinna rajög svo viðkvæmu slímhúða, og gerir þær mót-
tækilegri fyrir smitun. Einnig eykur svo þurrt loft, út-
gufunina gegn um húðina, sem leiðir svo af sér lækk-
un líkamshitans, en það dregur úr mótstöðu gegn ýms-
um kvillum, og eykur vanlíðan.
Hitatæki húsa ,ekki síst sjúkrahúsa, en þó sérstaklega
berklaspítala, þarf að stilla við ákveðna rakaprósentu,
ca. 60% („relative humidity"). I>að sparar líka elds-
neyti (sé rakinn meiri. Innsk. þýð'.), því kæliáhrif mjög
raks lofts, útheimtir hærra hitastig.
Aftur á móti getur of mikill raki í loftinu orsakað
likamlega vanlíðan. Það liindrar útgufun úr líkaman-
um í gegnum húðina, sem er öryggisventill fyrir lík-
amshitann og lík.amshitinn hækkar. Afleiðing þess verð-
ur svo vanlíðan.
☆
I framhaldi af þessu vil ég svo geta bókar,
sem ber heitið, „Energy and Sleep“, („Þrótt-
ur og svefn“), eftir Donald A. Laird og Char-
les G. Muller, World Publ. Co. New York.
Það tók fimmtán menn sex ár við „The Col-
gate University", að fullgera þessa bók, sem
er með tilvitnunum í ca. 75 bækur og vís-
indalegar ritgerðir. Kaflarnir heita: 1) „Why
sleep“? 2) „What sleep has to conpensate
for“. 3) „What happens to us while we
sleep?“ 4) „To get the most out of sleep“.
Þessum köflum er svo skipt niður í smærri
kafla. Jafnvel, og ekki sízt um rúm þau, sem
menn sofa í, og þó sérstaklega sjúklingar. Það
þarf að henda í burtu miklu af ófærum
sjúkrarúmum hér á landi, sem kosta margar
svefnlausar nætur og mikið magn af svefn-
lyfjum og það í beinhörðum gjaldeyri. Helgi
Ingvarsson sagði einu sinni við mig: svefn-
leysi er ekki til — ég skildi það ekki þá, en
ég sé það nú að það er alveg rétt. — Það er
afleiðing af einhverju — annaðhvort í manni
sjálfum eða einhverju utan við mann, en nú
er að finna þetta „eitthvað“.
Eg tek svo hér hluta úr kafla þessarar bók-
ar, þessi hluti heitir:
☆
VEÐUR, SEM GERIR OSS ÞREYTT
(Er of rakt og of þurrt loft stórhœttulegt fyrir sjúka?
Innskot þýð.).
Þegar hitamælirinn fer upp eða niður fyrir 20 gr. c.
Þá færist sókn og vörn í aukana. Það verður erfiðara
að halda aga meðal skólabarnanna — slysum í verk-
smiðjum fjölgar — við verðum meira vör við þreytu-
tilfinningu, sem gerir oss syfjuð.
38
Reykjalundur