Reykjalundur - 01.06.1958, Side 36
Brostnir hlekkir
Olafur A. Björnsson
F. 13. apríl 1912. — D. 22. febr. 1958.
Ólafur Björnsson, stjórnarformaður Vinnu-
heimilis S.I.B.S. að Reykjalundi var meðal
frumherja sambandsins og ávallt síðan í
flokki atkvæðamestu forustumanna þeirra
samtaka.
Kjörinn var hann í sambandsstjórn á öðru
þingi þess 1940 og átti þar sæti unz hann
varð að leita sér lækninga erlendis. Við heim-
komuna hlaut hann sæti formanns í stjórn
Vinnuheimilisins að Reykjalundi og gegndi
því starfi til dánardags, auk margra annarra
trúnaðarstarfa fyrir samtökin. Hann var
fyrsti formaður Berklavarnar í Reykjavík.
Ólafur var jafnan með í ráðum um allar
meiri háttar framkvæmdir og ákvarðanir,
sem samband okkar tók og voru ráð hans
mikils metin sem vænta mátti, enda var mað-
urinn fjölgáfaður, menntaður, röggsamur og
umfram allt góður maður og ráðhollur,
34
Frá tvítugsaldri átti hann við þungt sjúk-
dómsstríð að etja og bar mótlæti sitt af sannri
hetjulund. Svo vel leyndi hann þjáningum
sínum að aðeins fáir vissu hið sanna um
heilsufar hans.
Þótt Ólafur gengi aldrei heill til starfa. lá
mikið ævistarf eftir hann. Umfangsmiklum
trúnaðarstörfum gegndi hann um langt
skeið fyrir eitt af mestu verzlunarfyrirtækj-
um Reykjavíkur, af slíkri kunnáttu og trú-
mennsku, að vandfundinn mun maður í hans
stað. Þó mun brautryðjendastarf hans í þágu
S.I.B.S. halda nafni hans lengst á lofti. Víst
er um það, að meðan gerðabók sambandsins
varðveitist, eða saga þess finnst í prentuð-
um bókum, mun minning hans lifa, sem lýs-
andi tákn þess hve miklu góðu ein heilbrigð
sál og sterkur vilji geta áorkað, þótt sjúkdóm-
ar herji stanzlaust á líkamann og skilji eftir
sár við sár, þar til yfir lýkur. Samband okkar
mun lengi búa að starfi hans og uppskera
ávexti, sem hann hefir sáð til og njóta þeirra.
Ólafur var meðalmaður að vexti og fríð-
ur sýnum. Virðulegur var hann í fasi, þegar
það hæfði vel, annars léttur í viðmóti og
manna glaðastur í vinahóp og er slíkt fágætt
um menn, sem af vanheilsu þjást.
Ólafur dó að Reykjalundi, meðal vina
sinna og samstarfsmanna, einmitt á þeim
stað, er árangurinn af starfi hans blasti við
alþjóð.
Samband ísl. berklasjúklinga vottar Ólafi
Björnssyni alúðarfyllstu þakkir fyrir 20 ára
mikil og heillarík störf í þágu þess. Sam-
starfsmenn hans munu geyma minningu hans
og þakka það lán að hafa átt svo mætan mann
að vini og samherja.
Sambandið vottar ekkju Ólafs Björnsson-
ar, frú Ingibjörgu Þorsteinsdóttur, sam-
hryggð sína, sendir samúðarkveðjur af hlýj-
um bróðurhug. Þ.
, Revkjalundur