Reykjalundur - 01.06.1958, Qupperneq 21
Þórður Benediktsson sextugur
Þórður Benediktsson forseti S.Í.B.S og
framkvæmdastjóri Vöruhappdrættis S.Í.B.S.
varð sextugur 10. marz s.l.
Þórður hefur lagt gjörva hönd á margt um
dagana, í sveit og við sjó, í borg og í bæ. M. a.
hefur hann átt sæti í bæjarstjórn Vestm.eyja
og á Alþingi. Ekki urðu þó stjórnmálin lífs-
starf Þórðar eða köllun.
Árið 1943 varð Þórður að hverfa af Al-
þingi, eftir skamma setu þar, og lagðist á
Vífilsstaðahæli vegna berklaveiki. Má með
sanni segja, að þá hafi örlög hans verið ráð-
in.
Þeir, sem þekkja Þórð Benediktsson, vita
hversu brennandi hugsjónamaður hann er, en
um leið maður framkvæmda, gæddur bjart-
sýni og trú á sigur góðs málstaðar. Ekki
hafði Þórður lengi legið á Vífilsstöðum, þeg-
ar hann hafði fyllst logandi eldmóði fyrir
framgangi Sambands íslenzkra berklasjúk-
linga og gert málstað þess að sínum. Og þá
þegar, meðan hann var sjúkur, vann hann
margt og mikið í þágu sambandsins. — Einn-
ig var hann lífið og sálin í félagsstörfum
sjúklinga á staðnum.
Eftir að Þórður komst til heilsu aftur gerð-
ist hann starfsmaður sambandsins og hvíldu
brátt á honum mikil störf við umfangsmiklar
fjársafnanir og uppbyggingu samtakanna og
Reykjalundar.
Þórður var kosinn í sambandsstjórn 1944
og hefur verið í henni síðan, lengst af vara-
forseti. Forseti sambandsins hefur hann verið
síðan 1956.
Frá stofnun Vöruhappdrættis S.Í.B.S. hef-
ur Þórður verið framkvæmdastjóri þess og
átt höfuðþáttinn í skipulagningu þess og
framgangi.
Störf Þórðar Benediktssonar í þágu ís-
lenzkra berklasjúklinga — og um leið al-
þjóðar, verða vart metin sem vert væri.
Samband íslenzkra berklasjúklinga og árs-
rit þess, Reykjalundur, óska þess af heilum
hug, að Þórðar megi lengi enn njóta við, til
ötulla starfa fyrir gott málefni — því að enn
eru næg verkefni fyrir höndum, þótt vel hafi
verið unnið og drjúgt hafi miðað að loka-
markinu.
Heill Þórði Benediktssyni sextugum!
Á. G.
þings S.Í.B.S. og endurskoðast þá í Ijósi feng-
innar reynslu.“
(Tillaga þessi er háð samþykki heilbrigðis-
yfirvaldanna).
III.
„11. þing S.Í.B.S. vill beina þeim ákveðnu
tilmælum til heilbrigðismálastjórnarinnar að
fresta um sinn þeim ráðstöfunum að leggja
Kristneshæli niður sem heilsuhæli fyrir
berklasjúkt fólk.
Lítur þingið svo á, að með þeim aðgerðum
væri of fljótt slakað á þeim vörnum, sem
komið hefur verið upp gegn berklaveikinni
á íslandi."
Sjúklingafjöldi á Heilsuhælunum
Á Vífilsstöðum voru:
í ársbyrjun 1954: 180 Á árinu komu: 162
— 1955: 143 — — 170
— 1956: 130 — — 147
— 1957: 104 — — 134
— 1958: 82
Á Kristnesi voru:
í ársbyrjun 1954: 71 Á árinu komu: 39
— 1955: 58 — — 29
— 1956: 50 — — 30
— 1957: 53 — — 44
Reykjalundur
19