Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 10

Reykjalundur - 01.06.1958, Síða 10
Hljómsveit urulir stjórn Carls Iiillich leikur vitf setningu II. þingsins. A veggnum á hak við er stórt málverk, sem Veturliði Gunnarsson listmálari gaf Reykjalundi i fyrra. í sveitum og árabátar í verstöðvum, þegar íslenzka þjóðin bæld og magnstola aí margra alda kúgun og harðrétti tók að nudda stír- urnar úr augum sér. Verkefni þjóðviðreisn- arinnar voru öll gersamlega óleyst og öll í vonum. Þá risu upp fylkingar hugsjóna- manna, sem tóku sér kjörorð og lausnarorð, eygðu fjarlæg markmið, réðust til sóknar á ægilegar torfærur, lögðu nótt með degi og ruddu öld nýrrar viðreisnar og þjóðmenning- ar braut í allar áttir. Þá var fyrst spurt um afrek, síðan um laun. Þá brann eldur hug- sjóna og stórra áforma í mörgum hjörtum og augu manna blikuðu af vonbirtu rísandi aldar. — Hugsjónavakning síðustu áratuga 19. aldar og fyrstu hinnar 20, er glæsilegasta tímaskeið íslenzku þjóðarinnar, tímaskeið sársaukans yfir glataðri reisn, vonbjartra hugsjóna, stórra áforma, mikilla afreka. — Og kynslóðin, sem óx upp í þessa baráttu, reyndist vel þess vaxin, að taka til höndun- um og sigra alla erfiðleika. — Okkur, hinum gömlu mönnum, sem þekktum skort, fátækt og seinunna baráttu, þykir stundum, sem við- reisn lands okkar hafi gerst með helzti skjót- um atburðum og að yngsta kynslóðin hafi með of snöggum hætti slitnað úr tengslum við arfleifð þjáninganna, að sú breyting sé á orðin, að nú sé fyrst spurt vun laun, síðan um afrek og eldur hugsjónamanna 19. aldar sé fallinn í fölskva. Þetta hefi ég talað til ykkar, kæru félags- systkini, á þessum tímamótum í aldursskeiði ykkar og starfsákvarðana, af því að þið hafið í starfi ykkar og stefnumiðum varðveitt hug- sjónaeld 19. aldar og valið ykkur lausnarorð, sem ekki fyrnist né deyr. Sjúkir menn, öryrkjar og lítilmagnar verða ávalt til, meðan mennimir heyja misfella- sama lífsbaráttu frá vöggu til grafar. Fyrir því verður þetta lausnarorð eilíft í sögu þjóð- arinnar, eilíft í starfi samtakanna. Þetta þing hefir með sérstakri samþykkt gefið þessu lausnarorði sterkari hljóm og fyllra gildi og ákveðið að armur samtakanna skuH ná, ekki til berklasjúklinga einvörðungu, heldur og til allra manna, sem af veikum kröftum berjast til sjálfsbjargar. Guð gefi þessu orði sigur. Guð blessi sam- tök okkar og veiti þeim bjarta og dáðríka framtíð. Jónas Þorbergsson. ☆ Sannleikurinn verður ekki sannaður með neinum raeirihluta. (Zwingli). 8 Reykjalundur

x

Reykjalundur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjalundur
https://timarit.is/publication/1120

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.