Reykjalundur - 01.06.1958, Side 22
Barnaheimili
finnska berklavarnasambandsins.
(Guðmundui Lövc félagsmálafulltrúi S.í.lt.S.
dvaldist mánaðartíma á Norðurlöndum í sumar og
kynnti sér félagsmálastarfsemi berklavamasamband-
anna í þeirn löndum. Meðal annars sótti hann félags-
málanámskeið sænska sambandsins, er haldið var í
Bommersvík 24. júlf—2. ágúst. — Segir Guðmundur
lítillega frá því námskeiði á öðrum stað í blaðinu.
í eftirfarandi grein segir hann frá stórmerkum
þætti í starfsemi finnska sambandsins.
Svo sem kunnugt er, hefur S.Í.B.S. á síðari árurn
stóraukið félagsmálastarfsemi sína, einkum að því
er varðar ýmiskonar aðstoð við berklasjúklinga. Ann-
ast Guðmundur Löve þau störf fyrir sambandið og
hefur þegar orðið ómetanlegur árangur af þeim.
Finnar eiga við mikla erfiðleika að stríða
vegna styrjaldanna tveggja, sem þeir lentu
í á meðan síðasta heimstyrjöld stóð.
Fjölda margir hermannanna særðust og
örkumla menn skipta þúsundum. Lífsviður-
væri var af skornum skammti og þjóðin því
illa á vegi stödd gagnvart hverskonar sjúk-
dómum.
Berklaveikin herjaði finnsku þjóðina og
herjar enn mun meira en aðrar Norðurlanda-
þjóðir. Öll heilsuhæli eru yfirfull og margir
verða að bíða hælisvistar. Árið 1956 veiktust
sjö þúsund þar af berklum og þurftu þeir
allir á hjúkrun að halda. Finnska ríkið berst
harðri baráttu gegn vágestinum og nýtur
stuðnings finnska berklavarnasambandsins,
sem er voldugur og vel skipulagður félags-
skapur. Berklavarnasambandið hefir reist og
rekið vinnuskóla, þar sem berklasjúklingum
er gert kleift að nema iðngreinar, sem veita
þeim full réttindi, þegar út í lífið er komið.
20
Barátta heilbrigðisyfirvalda og berkla-
varnasambandsins hefir borið þann árangur,
að árið 1957 hafði sýkingunum fækkað og
veiktust tæp sex þúsund af berklum það ár.
Þegar húsmæður veikjast af berklum, fara
þær venjulega heim að hælisvist lokinni og
taka upp fyrri störf við heimili sín.
Barnmargar fjölskyldur veita húsmóður-
inni enga hvíldarstund og um sumarfrí þess-
ara kvenna hefir ekki verið að ræða, þótt
þær þyrftu meira á því að halda, en flestir
aðrir.
Til þess að bæta úr þessu, stofnaði berkla-
varnasambandið barnaheimili og gaf þessum
konum kost á að senda þangað börn sín í
mánaðartíma, án endurgjalds. Þetta hefir
reynzt mæðrunum ómetanleg hjálp og hefir
félagsskapurinn því bætt við hverju heimil-
inu af öðru. í sumar átti félagið heimili, sem
Reykjalundur