Húnavaka - 01.05.1962, Síða 17
15
HÚNAVAKA
fengizt við heyskap og átt ofurlítið af skepnum síðan ég var 14 ára strák-
ur. Hingað kom ég með eina kú og 40 kindur. Svo urðu fjárskiptin og
þá fékk ég 20 gimbrar og 1 hrút.
— Og hvað er svo margt núna?
— Já, hvað margt núna — um fjáreignina. — Það er nú víst ekki
komið neitt framtal um hana enn þá. En í fjósi eru 18 mjólkandi kýr og
eitthvað af geldrusli, og auk þess einn 4 ára tarfur, sem er nokkurs kon-
ar heimilisvættur.
Þegar ég byrjaði búskap hér á Leysingjastöðum, var túnið um 3 ha.
Nú fóðrar það þann búpening, sem við höfum. Ekkert hús er hér uppi-
standandi nú, sem þá var, en hróflað hefur verið upp í staðinn yfir fólk
og fénað.
— Okkur er sagt að þú hafir gagnsamasta fjós í Húnaþingi?
— Já, sem skýrslur eru sýndar yfir. — Og ég tel nautgriparæktina,
þ. e. mjólkurframleiðsluna gefa það mikið, að mikla hækkun þurfi á
kjötverði, svo að fjárbóndi beri sambærilegt úr býtum, móti því, sem
kýrnar gefa, séu kúabú rekin af hagsýni.
— Hvað hefur þú beztan grip i fjósi?
— Ef þið viljið eitthvað fræðast um fjósið, þá held ég að þið ættuð
að snúa ykkur til Jónasar míns. Hann hefur alveg með það að gera.
Sjálfur snerti ég ekki á fjósverkum og kem ekki í fjós, nema mér til
skemmtunar, eða ef eitthvað verður að grip.
— Við beinurn þá spurningu okkar til Jónasar.
— Bezta kýrin mjólkaði síðasta ár 5340 kg eða 22464 fitueiningar.
Einnig höfum við aðra kú, sem gaf yfir 20 þús. fitueiningar. Meðalnvt
10 fullmjólka kúa var 4460 kg eða 16690 fitueiningar.
— Og nú tala bændurnir:
— Búbót — Hjálma — tarfur frá Þingeyrum. Og þegar ég heyri
Stefán vin minn ræða þessi mál, þá finnst mér sem hér sé kominn bóndi,
en öll blaðamennska rokin fyrir borð. Ég heyri ekki betur en hann sé
farinn að fala kálf af Halldóri bónda — sá kálfur mun raunar ekki í
heiminn borinn. Einhvern veginn finnst mér, að í þessu máli geti Stefán
ekki vænzt stuðnings Jónasar. En allt virðist benda til að hér sé gripsvon,
sem fengur er að í hvert fjós.
— Og hverjar mundu svo aðalástœður fyrir þeim góða árangri, sem
þið hafið náð í ykkar nautgriparœkl, Halldór?
— Þar til færi ég þrjár samverkandi ástæður. — Bættan húsakost —
bætt umhirða — kynbætur.