Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1962, Side 18

Húnavaka - 01.05.1962, Side 18
16 HÚNAVAKA — Já, það er okkar skoðun, að allt, sem gert er fyrir kýmar, borgi þær margfalt aftur, bætir Jónas við. — Hvað segir þú um búfjárrœktarstöð á góðum stað í héraðinu? — Halldór svarar: — Eg hefi áhuga á því. Svo margs er vant í okkar búskaparháttum, sérstaklega hvað snertir kynbætur. Mín stefna um langt árabil hefur verið sú, að ríkið eigi að reka kynbótabú og rækta þar úrvals fjárstofna, og þangað sæki bændur svo sína kynbótagripi. — Slík búfjárræktarstöð í okkar héraði væri mjög æskileg. — Hvað telur þú, almennt séð, hafa verið þýðingarmest fyrir þróun búskaþarhátta hér á landi — Það tel ég fyrst og fremst vera hin stórvirku jarðræktartæki og í kjölfar þeirra önnur smærri til heimilisnota. — Súgþurrkun álít ég ómiss- andi öryggisráðstöfun. Persónuleg reynsla mín þar af, er að sönnu ekki löng, en þó sýnist mér að þessi tækni stuðli mjög að bættri nýtingu heyja. Og þá kem ég að atriði, sem ykkur þykir ef til vill einkennilegt að heyra mig orða svo. Ég tel að íslenzkur landbúnður lifi ekki, nema byggðir færist saman. Með hverju ári, sem líður, fækkar þeim höndum, sem þarf til að fram- leiða vörur þær, er við þörfnumst. Fjármagni, sem fer í það að halda í byggð afskekktum dalabýlum og útnesjajörðum, er að mínum dómi ekki vel varið, þegar stórar gróðurlendur eru óunnar í miðjum þeim hér- uðum, sem við þjóðbraut liggja. Til eru dæmi um það, að varið hefur verið miklu fé, til þess að leggja vegi, síma eða jafnvel rafmagn á býli, sem nú þegar eru komin í eyði, og önnur dæmd til að fara í eyði á næstunni, ýmist vegna legu eða þá að landkosti skortir. Ég man þá tið að ég grét hvert það býli, sem fór í auðn, en nú hefur viðhorf mitt breytzt í samræmi við tímans rök. Það er villa að álíta, að um kotbúskap þurfi að vera að ræða, þótt byggð færist saman og hag- nýting afskekktu og kostarýru jarðanna svarar sér betur, er þær bætast við beitilönd handa auknum búpeningi. — Þú sagðir áðan, að þú hefðir snemma byrjað að fást við rœktun? — Já, svo var það — bæði fyrir sjálfan mig og aðra. Ég hafði mikið yndi af að vinna við plægingar, því auk þess, sem starfið er skemmtilegt, þá kynntist ég á þeim árum mörgu góðu fólki. Ég er þakklátur sýslung- um mínum fyrir þá kynningu, og fyrir umburðarlyndi þeirra þá og ágæt- an aðbúnað.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Húnavaka

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.