Húnavaka - 01.05.1962, Page 27
HÚNAVAKA
25
V.
I Höfðakauþstað.
Við sitjum andspænis hávöxnum, bjarthærðum manni, breiðum yfir
herðar og þykkum undir hönd. Hér er Jón Ivarsson skipstjóri á
m/b Helgu frá Skagaströnd. Þessi ungi maður, sem nú er aðeins 28
ára gamall, hefur stundað sjó frá því hann var 15 ára gamall, lengst
af á Auðbjörgu frá Skagaströnd. Við Stefán höfum að ráði Ingvars
hreppstjóra, gengið heim til hans og biðjum hann nú að segja okk-
ur eitthvað frá starfi sínu og þeim lífsviðhorfum, sem það hefur skap-
að. Og nú gefum við Jóni orðið:
— Um sjómennskuna er það að segja, að ég gæti ekki til þess
hugsað að skipta um atvinnu, og hér á Skagaströnd vil ég helzt hafa
staðfestu. Ef til vill er það vegna þess að hér er ég fæddur og upp-
alinn, að viðhorf mitt er slíkt, en mér finnst mjög margt mæla með
því að stunda sjó héðan. Höfnin er góð og ekki langt að sækja, sigl-
ingaleið örugg og ekki áhættusöm landtaka.
Afli virðist vera að glæðast hér á Húnaflóa, og teljum við þar sé
farið að gæta útfærzlu landhelginnar. Veiðarfæraslit er hér miklu minna
en við Suðurland, svo að sá kostnaður verður minni. Aftur á móti
þarf að fara með alla stærri báta suður til aðgerðar. Einnig tel ég eins
og nú er, að óhjákvæmilegt sé að stærri bátarnir séu einhvern hluta
vertíðar við Suðurland, til þess að tryggja afkomu sína. Hins vegar
hygg ég að 10—15 tonna bátar, sem hér er nokkuð af, hafi sæmilega
ársútkomu.
Þegar ég byrjaði að róa, var stærsti báturinn þriggja tonna, en
er nú 75 tonn. Það er m/b Húni, en á honum er skipstjóri Hákon
Magnússon, ættaður af Ströndum.
Sá bátur, sem ég fer með er 55 tonn. Nú á þessari vertíð mun láta
nærri að meðalafli bátanna, þeirra stærri, sem róa með 40 bjóð (þ. e.
160 strengir eða 16000 krókar) hafi verið 5!/2 tonn í róðri.
Stærri bátarnir sækja mest út með Ströndum, allt frá norðri og
norðvestri héðan frá Skagaströnd. Minni bátamir róa frekar út með
Skaganum og út fyrir „Skalla“, sem kallað er. Það er heldur styttri
sigling. Stærri bátarnir fara allt að 4 stunda siglingu og stundum lengra.
Haustið er fengsælasti tíminn til róðra héðan — október til desem-
ber. Hásetahlutur er venjulega, ef sæmilega aflast eða miðað er við
líkan afla og nú, 5—600 kr. í róðri og róðrafjöldi allt upp í 20 og jafn-
vel yfir 20 á mánuði, ef ekki eru því verri gæftir.