Húnavaka - 01.05.1962, Qupperneq 30
28
HÚNAVAKA
Hvað snertir möguleika til vinnslu á því hráefni, sem hér fellur til, þá
er okkar aðstaða mun iakari en þeirra, sem betra hráefni hafa, eins og
t. d. vinnslustöðvarnar við Faxaflóa. Fiskur hér á Húnaflóa er smærri
og auk þess oft í honum mjög mikill ormur. I því sambandi má geta
þess að tilgátur eru um það að ormurinn í fiskinum sé meiri, þar sem
mikill selur er á fiskislóð eða í námunda eins og t. d. hér á Húnaflóa,
þar sem selalátur eru meðfram öllum ströndum og sums staðar jafnvel
svo langt gengið að friða hann. Fyndist mér eðlilegt að þessi mál væru
hugleidd og athuguð. Þótt ég telji sjálfsagt að halda uppi rekstri þessara
vinnslustöðva hér, þá er mér ljóst, að eins og er, þá er ekki grundvöllur
fyrir hagrænum rekstri þeirra.
Vinnsla er 30% dýrari og hagnýting 7—8% lakari á því hráefni, sem
berst hér á land, sé miðað við Faxaflóa og veiðisvæðin sunnanlands.
Tekjumöguleikar þeirra, sem vinna hér að sjóvinnu, eru sem hér seg-
ir: Trygging fyrir sjómenn á bátum: kr. 6158.60 á mánuði. Fyrir land-
menn, sem vinna við bát, þ. e. bcitingu: 5689.90 kr. Trygging skipstjóra:
kr. 9237.90; I. vélstjóra: 9237.90; II. vélstjóra 7697.85 og trygging
stýrimanns: 8211.46. Hjá öllum miðað við mánuð.
Á vertíðinni í haust höfðu landmennirnir hjá mér tæpar 12 þúsund
kr. á mánuði og sjómenn eitthvað meira.
Hér í Höfðakaupstað mun vera eini staðurinn á öllu landinu, þar sem
konur hafa sama kaup og karlar.
Hér í Höfðakaupstað er nú verið að reisa nýtt félagsheimili og greiða
atvinnurekendur 1% af útborguðum vinnulaunum til {reirrar fram-
kvæmdar og auk þess '/4%, sem dregst frá kaupi fólksins. Mun þetta
fyrirkomulag mjög fátítt.
Síld hefur brugðizt hér í Húnaflóa undanfarin ár, og við því orðið
útundan þar. Þótt síld hafi komið hér á vestursvæðið hefur hún verið
flutt til Siglufjarðar, en eins og kunnugt er þá er stór og fullkomin síld-
arvinnslustöð hér.
Nú er nýverið farið að veiða rækju á Ingólfsfirði. Rækjan skapar
mikið fjármagn í vinnulaunum. Þar skapast möguleikar, sem við höfum
í huga að hagnýta og skapa hér aðstöðu til rækjuvinnslu.
Því ber að fagna, að fiskiþing hefur nú ákveðið að gera út skip til
að leita að rækju og humri, og teljum við von til þess að sú rannsókn
fari m. a. fram á Húnaflóa, sem heita má órannsakaður.
Að mínu viti er engu því fjármagni á glæ kastað, sem varið er til