Húnavaka - 01.05.1962, Blaðsíða 32
30
HÚNAVAKA
náttúru mikils virði. Ég býst við að hér fái hinn vinnandi maður jafnveí
fleiri tómstundir til að sinna sínum hugðarefnum utan hins daglega
starfs en t. d. í sveitinni og sé tæplega eins bundinn af starfi sínu a. m. k.
finnst mér það, borið saman við það sveitalíf, sem ég kynntist heima í
Skagafirði. Sjálfsagt endar maður svo í Reykjavík. Hann Bergur segir
að þar sé allt gert til að gera mönnum auðveldast að lifa.
— Já, verði ekki einhver breyting á, þá er það mín skoðun, bætir
Bergur við.
Þótt við gjarnan hefðum viljað sitja lengur og skeggræða við þessi
ágætu hjón, þá er nú langt liðið á kvöld, og ef til vill hefur skafrenn-
ingurinn lagt einhvern vegtálma fyrir okkur Stefán, svo að sjálfsagt er
að hugsa til heimferðar. Ingvar hreppstjóri þarf auk þess að sitja veizlu
einhvers staðar og þangað ætlar Stefán að flytja hann.
Og í von um að hafa síðar tækifæri til að taka upp þráðinn, þar sem
nú var frá horfið, þökkum við fyrir okkur og bjóðum góðar nætur.
Menn segja:
— að plastverksmiðja taki til starfa á komandi sumri.
— að byggð verði ný brú á Blöndu í sumar.
— að félagsheimilið verði tekið í notkun á þessu ári.
Það hefur heyrzt:
— að Þorsteinn Sigurjónsson frá Hamri sé væntanlegur hóteleigandi
á Blönduósi.
— að Vatnsdalsá hafi verið leigð fyrir 311 þús. kr.
— að ekkert harðindahljóð sé í bændum í Húnaþingi.
— að Kaupfélag Húnvetninga hafi í hyggju að reisa nýtízku verzlun-
arhús á Blönduósi á komandi sumri.
— að Verzlunarfélagið Valur ætli að byggja fullkomið sláturhús.
— að Bjöm Pálsson alþm. o.fl. séu að kaupa stórt fiskiskip.
— að eigendur Fremri-Laxár hyggi á laxaklak sér og öðrum Hún-
vetningum til gagns og ánægju.
— að 18 búðir séu á Blönduósi.
— að í skemmtiatriðum á Húnavökunni komi fram að minnsta kosti
150 manns.
— að stofnað hafi verið nýtt félag á Blönduósi „Svifflugfélag".