Húnavaka - 01.05.1962, Side 50
48
H Ú N AVA K A
andlát af barnsburði að ræða, sem að sjálfsögðu er alltaf harmsaga.
Hér átti sér stað óvenjulegt slys og mistök í sambandi við barnsburð,
sem varð mönnum mjög minnisstætt, þó að nú muni að mestu fallið í
gleymsku. Frá þessum atburðum sagði mér, 100 árum eftir að þeir gerð-
ust, Signý Sæmundsdóttir frá Gafli, og fer hér á eftir frásögn hennar.
Tímanlega á 19. öld áttu heima á Geithömrum í Svínadal hjón nokk-
ur, Hólmfríður og Sigurður. Vor eitt fór Sigurður í lestaferð eins og
hann var vanur. Kona hans var þá þunguð og lagðist á sæng meðan
maður hennar var að heiman. Gat hún ekki fætt. Álitu þeir, sem við-
staddir voru, að hún væri skilin við. Var Hólmfríður þá borin út í
skemmu frammi á hlaðinu og lögð þar til. Morguninn eftir, þegar heim-
ilisfólkið ætlaði að fara í skemmuna, var eittthvað fyrir hurðinni, er
varnaði inngöngu. Brotizt var inn í skemmuna, en þá var konan í hnipri
innan við hurðina með barnið í fanginu, hvort tveggja látið. Konan
hafði verið í öngviti, þegar hún var borin út, en raknað við, fætt barnið
og komizt á fætur með það.
Hér lýkur frásögn Signýjar.
Enginn vafi er á, að hún er í aðalatriðum rétt. Signý er heldur ekki
ein til frásagnar, því að fleiri hafa kunnað skil á þessum atburðum.
Eitt atriði er þó í frásögn Signýjar, sem getur ekki verið rétt. Sigurður
hefir ekki verið í venjulegri lestarferð, þegar Hólmfriður veiktist. Lesta-
ferðirnar svokölluðu voru farnar miklu seinna á vorin Engin deili vissi
Signý á þeim Hólmfríði og Sigurði, en eftir að ég rakst á frásögnina í
kirkjubókinni, fór ég að leita mér upplýsinga um fólk þetta.
Konan, Hólmfríður þessi, var bóndadóttir frá Grund í Svínadal. For-
eldrar hennar voru: Jón Hálfdánarson (Guðmundssonar á Kornsá,
Oddssonar) og kona hans Þorbjörg Sveinsdóttir bónda á Grund, Bergs-
sonar. Þau Jón og Þorbjörg bjuggu góðu búi á Grund um áratugi, og
voru bæði látin, þegar þessir atburðir gerðust, Þorbjörg 30. júní 1787
og Jón 16. ágúst 1813.
Frá Jóni og Þorbjörgu er mikil ætt. Auk Hólmfríðar áttu þau hjón
6 börn, sem til aldurs komust. Elst þeirra og kynsælust var Sigríður, er
átti Jón Jónsson bólginn á Snæringsstöðum, en synir þeirra voru Kristján
í Stóradal og Pétur á Refsstöðum.
Hólmfríður Jónsdóttir var næst yngst þeirra Grundarsystkina, fædd
um 1772. Hún var kona hálffertug, þegar hún giftist bóndasyni á Geit-
hömrum, Sigurði að nafni.
Sigurður var fullum áratug yngri en konan, fæddur á Leifsstöðum í