Húnavaka - 01.05.1962, Page 71
69
HÚNAVAKA
ingar eru allir fjárræktarmenn, jafnvcl hversu hátt sem þeir eru settir
og Höfðabúar eru engin undantekning.
Oll vinna við fjárræktina er aukastarf eða tómstundavinna og margir
daglaunamenn hér leggja mikið aukaerfiði á sig fyrir fénað sinn, sem
er mest kindur. Kúm og hestum fer mjög fækkandi. Fjárræktin er
stunduð af alúð og kostgæfni og er mikill yndisauki þeirra, sem við hana
fást. Túnrækt er orðin mikil og mest notaðar vélar við túnræktunina
og heyöflun. Þegar verkamenn hafa lokið daglaunavinnu hjá atvinnu-
rekendum dag hvern, stunda þeir heyskap á sumrin, en fjárliirðingu á
veturna. Sauðfjárræktarfélag hefur starfað hér síðan 1955, og þó að það
sé hvorki fjármargt né öflugt, sýna skýrslur þess, að hér er bæði arð-
samt og vel gert fé. Það hefur verið ræktað hér bæði vestfirzkt og þing-
eyskt fé, bæði einstakt og blandað saman. Sérstaklega með þingeysku
sæði í vestfirzkar ær. Hefur það reynst mjög vel. Frá 60% og upp í
90% ánna eru tvílembdar. Sauðfjárland er mjög gott til sumarbeitar
í Skagaheiði, en alger innistaða er hér á fé á veturna.
Tvílembingar eru fast að því eins vænir og einlcmbingar. Meðal-
kroppþungi dilka mun vera 15 til 16 kg. Tekjur af landbúnaði munu
vera eitthvað á aðra milljón kr., eins og nú er, en kostnaður er líka mik-
ill. Síðastliðið haust voru seldir héðan yfir 20 hrútar, bæði lömb og full-
orðnir til kynbóta, hér í sýsluna og til Skagafjarðar.
Húsbyggingar eru hér með minna móti, þó er félagsheimili í bygg-
ingu. Vörubifreiðar eru hér nokkrar, og sæmileg atvinna, vöruflutningar,
hafnarvinna og vegavinna. Verzlanir eru hér sjö, en allt einstaklings-
eign nema Kaupfélag Skagstrendinga, sem rekur almenna verzlun, og
er líka stærsti atvinnurekandinn.
Hrognkelsaveiði er stunduð hér á vorin, til nokkurra hagsbóta. Hér
fer á eftir skýrsla um framleiðsluverðmæti á árinu 1961.
Skýrsla um framleiðslu á árinu 1961.
Hraðfryst fiskflök........................ 22.505 ks.
Heimasala á fiski............................ 140 tonn
Saltfiskur .................................. 156 tonn
Skreið (fullþurr) ............................ 70 —
Freðsíld ................................... 1131 tunna
Saltsíld (uppsaltaðar) ..................... 2963 tunnur
Fiskhrogn ................................ 63 —