Húnavaka


Húnavaka - 01.05.1962, Page 73

Húnavaka - 01.05.1962, Page 73
GUÐRÚN S. JÓHANNSDÓTTIR, Kagaðarhóli: Hesturinn okkar Reiðhesturinn er dásamlega skemmtilegur. Það er gaman að eiga hann að vini og félaga. Sú tryggð og vinátta, sem hann sýnir eiganda sínum, sé hann góður og nærgætinn við hann, er mikils virði. Það á að fara vel með hestinn, sýna honum nærgætni í notkun á allan hátt, þá koma hans beztu kostir og vitsmunir betur í ljós, og hann fær traust á manninum, sem umgengst hann. Því miður er ekki alltaf búið svo vel að þessu göfuga og fallega dýri sem skyldi. Eg gæti sagt margar sögur um vit og snilli reiðhestsins, einnig um hans sérstöku ganghæfni, til dæmis töltið, sem enginn hestur í heiminum kann, nema íslenzki hesturinn. Ég ætla að setja hér eina stutta frásögn um unga stúlku og reiðhestinn hennar. Fyrir mörgum árum átti ung stúlka, sem hét Steinunn, heima í smá- þorpi. Hún var fátæk eins og margir voru á þeim dögum, hafði bara sína vinnu, og kaup var lágt á þeim árum. Móðir hennar var orðin ekkja fyrir nokkru. Steina var sjaldan heima hjá móður sinni, hún var oftast í vinnu annars staðar. Steina átti reiðhest, bleikan að lit með dökka rönd í faxi. Hesturinn var gjöf frá afa hennar, og gæðingur hinn mesti. Frekar var hann smár vexti, en snotur og snyrtilegur, bar sig mjög hátt og var reistur undir manni. Hann hafði góðan, ljúfan vilja ásamt hreinum, fínum gangi, þó var töltið sérstaklega mikið og fallegt, einnig hafði hann mikið skeið, væri því beitt. Steina elskaði og dáði þennan hest, nefndi hún hann Faxa, og átti margar yndisstundir á baki hans. Ekki þurfti Steina nema tala við Faxa, þá skildi hann vel hvað við átti. Ætíð kom hann á móti henni, þegar hún sótti hann í haga og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Húnavaka

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Húnavaka
https://timarit.is/publication/1122

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.