Morgunblaðið - 26.05.2015, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2015
Skógarhlíð 18 • Sími 595 1000
www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
um
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ð
ir
ás
ki
lja
sé
r
ré
tt
til
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
.a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t
án
fy
rir
va
ra
.
Albir&
Benidorm
Bókaðu sól á
SÉRTILBO
Ð
& allt að15.000 kr.
bókunara
fsláttur á
mann
Valdar dag
setningar,
valin hótel
.
Samningafundur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
og samninganefndar ríkisins sem haldinn var síðdegis í
gær bar ekki árangur og ekki hefur verið boðað til nýs
fundar. Á síðu félagsins segir að meiri líkur en minni
séu á því að verkfall hefjist á miðnætti. Á myndinni eru
fulltrúar hjúkrunarfræðinga að fundi loknum.
Árangurslaus samningafundur
Morgunblaðið/Kristinn
Verkfall hjúkrunarfræðinga á stofn-
unum ríkisins hefst að öllum líkind-
um á miðnætti í kvöld. Hjá ríkinu eru
um 1.600 stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga og af þeim eru um 500 nú þegar
á undanþágulista,
að sögn Ólafs G.
Skúlasonar, for-
manns Félags ís-
lenskra hjúkrun-
arfræðinga (Fíh).
Því eru um 1.100
stöðugildi á verk-
fallsskrá.
Ólafur sagði að
von væri á fleiri
undanþáguum-
sóknum í dag.
Hann sagði að forsvarsmenn heil-
brigðisstofnana hefðu sagt honum að
þeir treystu sér ekki til að reka
stofnanirnar með þeim fjölda hjúkr-
unarfræðinga sem tilgreindur hafði
verið á undanþágulistanum.
Í Fíh eru um 4.100 félagsmenn. Af
þeim voru 2.146 á kjörskrá um boðun
verkfalls hjá ríkinu. Þeir hjúkrunar-
fræðingar sem fara í verkfall starfa
hjá ríkisstofnunum, m.a. Landspítal-
anum, Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, embætti Landlæknis og
hjá heilbrigðisstofnunum á lands-
byggðinni. Undir þær heyra t.d.
sjúkrahúsin úti á landi.
Samningafundi Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga og samninga-
nefndar ríkisins lauk kl. 15.30 í gær.
„Það hefði mátt ganga betur á
fundinum, hann var aðeins 45 mín-
útur og við þokuðumst ekki nær
samkomulagsátt,“ sagði Ólafur að
fundinum loknum. „Við ræddum ým-
is efni kröfugerðarinnar og almenn
efni en fengum enga niðurstöðu.“
Ólafur sagði ríkið ekkert hafa
komið til móts við kröfur hjúkrunar-
fræðinga um 14 – 25% hækkun á
dagvinnutöxtum. „Nú förum við
bara í lokaundirbúning verkfalls,“
sagði Ólafur í gær. gudni@mbl.is
Stefnir í verk-
fall hjá ríkinu
Verkfall hjúkrunarfræðinga líklegt
Ólafur G.
Skúlason
Malín Brand
malin@mbl.is
Allsherjarverkfall hjúkrunarfræð-
inga sem starfa hjá ríkinu hefst á
miðnætti að óbreyttu. Heilbrigðis-
stofnanir hafa aldrei staðið frammi
fyrir jafnviðamiklum aðgerðum fyrr
því verkfall aðildarfélaga BHM
stendur að auki yfir.
Á sjúkrahúsinu á Akureyri hefur
starfsfólk búið sig undir skerta starf-
semi, rétt eins og á öðrum heilbrigð-
isstofnunum. „Við keyrum á neyðar-
mönnun samkvæmt þeim undan-
þágulistum sem gefnir hafa verið út
og munum gera allt sem við getum til
að tryggja öryggi sjúklinganna,“
segir Hildigunnur Svavarsdóttir,
framkvæmdastjóri hjúkrunar.
Að lágmarki þarf um 85 til 90
hjúkrunarfræðinga á sólarhring til
að sinna sjúklingum sjúkrahússins
en undanþágulistinn gefur aðeins
heimild fyrir um helmingi færri
hjúkrunarfræðingum á vakt á sólar-
hring. „Miðað við þá mönnun sem
leyfð er samkvæmt undanþágulista
er líklegt að ástandið verði mjög
skjótt þess eðlis að neyðarástand
skapist, fáist ekki viðbætur við und-
anþágulistann.“
Ýmsar deildir lokast
Á ýmsum deildum innan Kvenna-
og barnasviðs Landspítalans skerð-
ist þjónusta við sjúklinga og nokkrar
deildir lokast alveg. Til sviðsins
heyra kvennadeildir og fæðingar-
þjónustan, Barnaspítali Hringsins,
BUGL og Rjóður. Verkfall ljós-
mæðra hefur þegar haft töluverð
áhrif á fæðingarþjónustuna. Við það
bætist að Rjóðrið, hvíldar- og endur-
hæfingardeild í Kópavogi, lokar al-
veg og það sama er að segja um dag-
deildarhluta legudeildar kvenlækn-
ingadeildar. Dagdeild barna sem
opin er fjóra daga vikunnar alla
jafna, lokar í verkfallinu og falla því
flestar rannsóknir niður sem kalla á
innlögn.
„Legudeild BUGL sinnir ein-
göngu bráðatilfellum og rúmum
fækkar þar. Á legudeild Barnaspít-
alans verða engar innkallanir eða
skipulögð starfsemi, hvort sem það
eru rannsóknir eða aðgerðir,“ segir
Jón Hilmar Friðriksson, fram-
kvæmdastjóri kvenna- og barna-
sviðs. Skert þjónusta verður á mörg-
um göngudeildum og ekki verður
fullmannað á bráðamóttöku barna.
Rjóðrið á meðal deilda
sem lokast á miðnætti
Allsherjarverkfall hjúkrunarfræðinga hefst á miðnætti
Ummæli Sig-
mundar Davíðs
Gunnlaugssonar
forsætisráðherra
í fréttum Stöðvar
2 á sunnudag
komu kjara-
viðræðum BHM
og ríkisins í upp-
nám, að mati
Páls Halldórs-
sonar, formanns samninganefndar
BHM. Ummælin voru á þá leið að
ekki yrði samið við BHM fyrr en
samið hefði verið á almennum
vinnumarkaði. BHM lýsti því yfir
að ráðherrann hefði dregið samn-
ingsrétt ríkisstarfsmanna í efa.
„Þessi orð forsætisráðherra standa
auðvitað eins og þau eru. Viðræður
voru aðeins komnar í gang þarna á
tímabili og þó mikið vantaði upp á
þá var það samt breyting. Þessi
ummæli eru ákveðið bakslag og ég
vona bara að það takist að vinna úr
því,“ sagði Páll.
Bakslag í
kjaravið-
ræðurnar
Páll Halldórsson
Óvinsæl ummæli
Deilur á vinnumarkaði
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Forsvarsmenn samninganefnda VR,
LÍV, Flóabandalagsins, StéttVest og
Samtaka atvinnulífsins (SA) náðu í
gær samkomulagi um frestun verk-
fallsaðgerða um fimm sólarhringa.
„Það hafa verið í gangi viðræður
sem eru komnar það áleiðis að menn
treystu sér til að fresta því að keyra
þetta í lokafasa,“ sagði Þorsteinn
Víglundsson, framkvæmdastjóri SA.
Hann sagði ljóst að áfram yrðu stíf
fundahöld.
Þorsteinn vildi ekki tjá sig neitt
um efnisatriði viðræðnanna. Að-
spurður hvort ríkið hefði komið að
þeim með einhverjum hætti sagði
Þorsteinn að það hefði verið rætt við
ríkið um mögulega aðkomu allan
tímann, en ekkert verið endanlega
útfært í þeim efnum. Aðkoma rík-
isins væri þó eitt af því sem þyrfti að
skoða betur.
Þorsteinn sagði að samtöl og
þreifingar um hvítasunnuhelgina
hefðu skilað mönnum á þennan stað.
Það væri jákvætt að verkföllum
hefði verið frestað og aðilar hefðu
sett sér það markmið að ljúka samn-
ingum ekki síðar en næstkomandi
fimmtudag, 28. maí.
Stóru samninganefndir um-
ræddra stéttarfélaga verða kallaðar
saman. Þannig hefur t.d. yfir 100
manna hópur í stóru samninganefnd
Flóabandalagsins verið kallaður
saman til fundar í kvöld og eins mun
um 40 manna samninganefnd Stétt-
arfélags Vesturlands funda í kvöld.
Á þessum fundum verða samn-
ingsdrögin kynnt og þar ræðst hvort
samningamenn félaganna fá umboð
til að halda áfram á þessum nótum.
Í tilkynningu frá stéttarfélögun-
um kom fram að ekki yrði upplýst
um einstaka efnisþætti viðræðna að-
ila fyrr en gengið hefði verið frá
drögum að samningi. Stefnt er að því
að niðurstaða liggi fyrir í síðasta lagi
28. maí n.k.
Heimildarmaður orðaði það þann-
ig að verkföllum væri ekki frestað að
ástæðulausu. Hefði útlitið verið
slæmt hefðu menn látið verkföllin
skella á, en nú hefðu þeir ákveðið að
fara yfir málin og þyrftu svigrúm í
þessari viku til þess.
Verkfallsaðgerðir félaganna áttu
að hefjast þann 28. maí n.k. en eiga
þess í stað að byrja 2. og 3. júní og
verða tveggja daga aðgerðir hjá hin-
um ýmsu atvinnugreinum til 10. júní.
Ótímabundið allsherjarverkfall á
síðan að hefjast á miðnætti 11. júní.
Óbreytt hjá SGS
Staða Starfsgreinasambandsins
(SGS) var óbreytt í gær, að sögn
Björns Snæbjörnssonar, formanns
SGS. Boðað verkfall SGS hefst að
öllu óbreyttu aðfaranótt næstkom-
andi fimmtudags og fara þá yfir 10
þúsund félagsmenn aðildarfélaga
SGS í allsherjarverkfall í tvo sólar-
hringa. Ótímabundin vinnustöðvun
SGS á síðan að hefjast á miðnætti að-
faranótt 6. júní n.k. semjist ekki fyrir
þann tíma. Björn sagði í gær að eng-
ar viðræður hefðu þá verið í gangi en
hann átti von á að fundað yrði hjá
ríkissáttasemjara fyrir boðað verk-
fall á fimmtudag.
Kynna á samninganefndum
drög að kjarasamningi í dag
Verkfallsaðgerðum VR, LÍV, Flóabandalagsins og StéttVest frestað til 2. júní
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Fiskvinnsla SGS hefur boðað verk-
fall á fimmtudag og föstudag.