Morgunblaðið - 26.05.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2015
Prófaðu þetta
heyrnartæki í 7 daga
Bókaðu tíma í fría heyrnarmælingu
Sími 568 6880
www.heyrnartaekni.is
Heyrnarskerðing er þreytandi!
Heyrnartækni | Glæsibæ | Álfheimum 74 | 104 Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Sími 568 6880
Ofurnett - ósýnileg í eyra eða falin á bak við eyra
Alta2 heyrnartækin frá Oticon búa yfir
einstakri tækni sem kallast BrainHearing™.
Þessi tækni hjálpar heilanum að vinna
betur úr hljóði þannig að þú upplifir það
eins eðlilega og hægt er. Með Alta2
heyrnartækjunum verður auðveldara fyrir
þig að heyra og skilja, hvort heldur sem
um lágvært samtal er að ræða eða
samræður í krefjandi aðstæðum.
„Með þessu er Írland að tala einni
röddu til stuðnings jafnrétti,“
sagði Leo Varadkar, heilbrigð-
isráðherra Írlands, eftir að úrslit í
þjóðaratkvæðagreiðslu um hjóna-
band samkynhneigðra lágu fyrir á
laugardaginn. Tillagan var sam-
þykkt með 62,3% atkvæða, eins og
fram kemur á fréttaveitu BBC. Va-
radkar er fyrsti írski ráðherrann
sem kemur út úr skápnum.
Írar kusu um að breyta stjórn-
arskránni til að leyfa fólki af sama
kyni að ganga í hjónaband. Sam-
tals samþykktu 1.201.607 manns
tillöguna en 734.300 voru andvígir
henni.
Úrslitin eru söguleg því Írland
er þar með fyrsta landið sem sam-
þykkir hjónaband fólks af sama
kyni í þjóðaratkvæðagreiðslu.
„Þjóðfélagsbylting“
Kaþólski erkibiskupinn, Di-
armuid Martin, sagði þegar úrslit-
in lágu fyir að kirkjan ætti mikið
verk fyrir höndum. Hann sagði
einnig að þetta væri staðfesting á
því hver viðhorf yngra fólks væru
og kirkjan þyrfti að horfast í augu
við veruleikann. „Ég geri mér
fulla grein fyrir því hvernig
hommum og lesbíum hlýtur að líða
í dag, að þetta sé eitthvað sem
auðgi líf þeirra. Mér finnst þetta
vera þjóðfélagsbylting,“ sagði
Martin.
Ekki voru allir ánægðir með nið-
urstöðu atkvæðagreiðslunnar.
John Murry, frá kaþólsku sam-
tökunum Iona Institute sem börð-
ust gegn frumvarpinu, var einn af
þeim sem lýstu yfir óánægju sinni.
„Þetta eru vonbrigði,“ sagði hann.
Írar samþykkja hjóna-
band samkynhneigðra
Kaþólska kirkjan
þarf að horfast í
augu við veruleikann
AFP
Sögulegt Mikil fagnaðarlæti brut-
ust út í Dublin þegar úrslit þjóð-
aratkvæðagreiðslunnar voru gerð
ljós á laugardaginn.
Lögreglan í Malasíu hefur fundið
139 grafir og lokað 28 búðum við
landamærin að Taílandi, þar sem
fólki var haldið vegna mansals, Lík
flóttamanna eru sögð liggja í gröf-
unum. Ríkislögreglustjórinn Khalid
Abu Bakar segir að í sumum graf-
anna liggi fleiri en eitt lík. Taílensk
yfirvöld hafa á sama tíma lokað leið-
um sem glæpasamtök hafa notað til
að flytja flóttamenn á milli svæða.
Glæpasamtökin urðu því að flytja
flóttamennina með bátum sjóleiðina
til Malasíu.
Þúsundir flóttamannanna eru hins
vegar strand eftir að glæpasamtökin
yfirgáfu fólkið á miðri leið og engin
lönd vilja taka við þeim.
„Bara beinin og skinnið“
Árum saman hafa glæpasamtök
notað frumskóginn í Suður-Taílandi
og Norður-Malasíu til að smygla
fólki til Malasíu. Meirihluti þess til-
heyrir rohinga-múslimum sem flýja
ofsóknir í Búrma, að sögn mannrétt-
indasamtaka. Aðrir eru frá Bangla-
dess og vonast til að finna vinnu í
Malasíu.
Alþjóðlega fólksflutningastofn-
unin segir að í kjölfar aðgerðanna
hafi fjöldi fólks fundist á vergangi í
taílenska frumskóginum. „Þau eru
bara beinin og skinnið, með enga fitu
á líkamanum,“ sagði formaður sam-
takanna við fréttaveitu BBC.
AFP
Mansal Malasíska lögreglan birti þessa mynd í gær af einum þeirra búða í
taílenska frumskóginum þar sem flóttafólki var haldið vegna mansals.
Fjöldagrafir fund-
ust í Malasíu
139 fjöldagrafir og 28 mansalsbúðir
Íhaldsmaðurinn Andrzej Duda vann
síðari umferð forsetakosninganna í
Póllandi en úrslitin voru kynnt í gær.
Hlaut hann 51,55% atkvæða. Kom
sigur hins 43 ára lögfræðings töluvert
á óvart því sitjandi forseti landsins,
Bronislaw Komorowski, þótti sig-
urstranglegri samkvæmt skoð-
anakönnunum.
Duda bar einnig sigur úr býtum í
útgönguspám sem birtar voru í fyrra-
dag en þær boðuðu að hann hlyti 53%
atkvæða á móti 47% atkvæða til
handa sitjandi forseta landsins. Í
fyrstu umferð kosninganna náði
Duda þó ekki 50% atkvæða sem hann
hefði þurft til að fara með sigur af
hólmi, segir á fréttaveitu BBC.
Forsetinn hefur takmarkaðar vald-
heimildir en er yfirmaður hersins og
getur beitt neitunarvaldi gegn nýjum
lögum.
Vill breytingar í Póllandi
„Ég virði ykkar val,“ sagði Komo-
rowski við kjósendur á samkomu
stuðningsmanna sinna. „Ég óska
mótherja mínum farsæls kjör-
tímabils,“ sagði hann einnig.
Í Varsjá þakkaði Duda forsetanum
fyrir keppnina í kosningabaráttunni
og einnig þakkaði hann fyrir ham-
ingjuóskir hans í sinn garð. „Þeir sem
kusu mig, kusu breytingar. Saman
getum við breytt Póllandi,“ sagði
hann jafnframt.
Framundan eru þingkosningar í
Póllandi í haust og voru þessar nið-
urstöður því reiðarslag fyrir Ewa Ko-
pacz, forsætisráðherra landsins og
samherja Komorowski.
Þessi sannfærandi sigur Duda kom
mörgum álitsgjöfum í opna skjöldu
þar sem hann var tiltölulega lítt
þekktur og Komorowski hafði verið
vinsæll forseti. Sýndi það að Pólverj-
ar hefðu sóst fast eftir breytingum.
Kaþólskur þjóðernissinni
Duda lofaði því í aðdraganda kosn-
inganna að hækka laun fólks og náði
einnig eyrum bæði ungs fólks og
eldriborgara. Hann er þjóðernissinni
og vill að landið sé bandamaður
Bandaríkjanna og að NATO sé með
herstöð í Póllandi. Þá vill hann ekki
að Pólland taki upp evru. Duda er
kaþólskur og því andvígur fóstureyð-
ingum, hjónabandi fólks af sama kyni
og tæknifrjóvgunum. Árið 2012
studdi hann frumvarp þess efnis að
læknar sem byðu upp á tæknifrjóvg-
anir yrðu fangelsaðir. laufey@mbl.is
Andrzej Duda kjörinn nýr forseti Póllands
Hlaut 51,55% atkvæða gegn Komorowski, sitjandi forseta
AFP
Sigur Andrzej Duda sigraði sitjandi
forseta með 51,55% í seinni umferð.