Morgunblaðið - 26.05.2015, Síða 20
20 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. MAÍ 2015
Sumarhús
Óska eftir
Staðgreiðum gull, demanta og úr
Hringar, hálsmen, armbönd, Rolex,
Cartier, Patek Philippe o.fl.
Hringdu núna og fáðu tilboð þér að
kostnaðarlausu!
www.kaupumgull.is
Opið alla daga 11–18.
Kringlan – 3. hæð
(Hagkaupsmegin)
Upplýsingar í síma 661 7000.
Ökukennsla
Vönduð, vel búin kennslubifreið
Subaru XV 4WD - árg. 2012.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Tökum að okkur viðhald, við-
gerðir og nýsmíði fasteigna
fyrir fyritæki húsfélög og einstak-
linga. Fagmenn á öllum sviðum.
Tilboð/ tímavinna. S. 858 - 3373.
brbygg@simnet.is
Hreinsa þakrennur,
laga vatnstjón, ryð á
þökum og tek að mér
ýmis smærri verkefni
Uppl. í síma 847 8704
manninn@hotmail.com
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Smáauglýsingar
✝ Indriði Páls-son fæddist í
Siglufirði 15. des-
ember 1927.
Hann lést á Land-
spítalanum í
Fossvogi 13. maí
2015.
Foreldrar hans
voru hjónin Páll
Ásgrímsson,
verkamaður og
síðar versl-
unarmaður í Siglufirði, f. 21.
mars 1892, d. 3. ágúst 1978,
og María Sigríður Jóhanna
Indriðadóttir, húsfreyja, f. 6.
mars 1900, d. 3. desember
1935. Albræður Indriða voru
Einar, f. 9. apríl 1929, d. 18.
júní 1977, og Ásgrímur, f. 13.
ágúst 1930, d. 17. desember
1984. Systkini frá seinna
hjónabandi Páls föður hans
eru Magnús, f. 6. september
1939, Sigríður, f. 10. desem-
ber 1940, og Lilja Kristín, f.
5. janúar 1948.
Indriði kvæntist þann 15.
janúar 1955 Elísabetu Guðnýju
Hermannsdóttur, húsfreyju, f.
16. júní 1928 á Seyðisfirði.
Foreldrar hennar voru Her-
mann Vilhjálmsson, útvegs-
bóndi á Hrauni í Seyðisfjarð-
arhr., f. 30. september 1984, d.
20. júlí 1967, og k.h. Guðný
Vigfúsdóttir, húsfreyja, f. 19.
stjóra Olíufélagsins Skeljungs
hf. frá 1. janúar 1959 til árs-
loka 1970. Ráðinn forstjóri
Skeljungs frá 1. janúar 1971
og gegndi því starfi til 30.
júní 1990. Indriði gegndi fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum í
þágu fyrirtækja og fé-
lagasamtaka. Hann var for-
maður Stúdentafélags HÍ
1949-50, var í sambandsstjórn
Vinnuveitendasambands Ís-
lands frá 1971 og í fram-
kvæmdastjórn þess frá 1972
til 1978. Í stjórn Versl-
unarráðs 1982 til 1990. Í
stjórn H.F. Eimskipafélags Ís-
lands frá september 1976 til
1999. Varaformaður stjórnar
1984 til 1992 og formaður
1992 til 1999. Í stjórn Flug-
leiða hf. frá 1988 til 2001 og
Úrvals-Útsýnar 1987 til 1992.
Formaður stjórnar Skeljungs
frá 1990 til 1999. Þá sat hann
í stjórnum ýmissa smærri fyr-
irtækja. Hann var félagi í Rót-
arýklúbbi Reykjavíkur, gegndi
þar stjórnarstörfum 1984 til
1987 og var forseti klúbbsins
1985-1986. Indriði var stór-
meistari Frímúrarareglunnar
á Íslandi frá september 1988
til febrúar 1999. Indriði var
sæmdur riddarakrossi hinnar
íslensku fálkaorðu 1988 og
stórriddarakrossi 1993. Eitt
helsta áhugamál hans var
söfnun íslenskra frímerkja og
hlaut hann alþjóðlegar við-
urkenningar fyrir vandað og
sérhæft safn sitt.
Útför Indriða fer fram frá
Neskirkju í dag, 26. maí 2015,
kl. 13.
nóvember 1893, d.
20. ágúst 1984.
Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA
1948, lauk embætt-
isprófi í lögfræði
frá HÍ 1954 og öðl-
aðist réttindi sem
héraðsdóms-
lögmaður árið
1958. Börn Indriða
og Elísabetar eru:
1. Sigríður, f. 13.
febrúar 1956, maki Margeir
Pétursson, f. 15. febrúar 1960.
Dóttir þeirra er Elísabet, f. 31.
janúar 1985. Sambýlismaður
hennar er Arnór Gauti Hauks-
son. 2. Einar Páll, f. 8. maí
1963, maki Halla Halldórs-
dóttir, f. 10. janúar 1964. Börn
þeirra eru: a) Indriði, f. 23.
nóvember 1992, sambýliskona
hans er Aðalheiður Ósk Pét-
ursdóttir, b) Halldór, f. 9. júní
1996, og c) Ingibjörg, f. 29.
júní 1999.
Indriði var fulltrúi hjá Sam-
einuðum verktökum á Kefla-
víkurflugvelli frá apríl 1955
til ársloka 1956. Indriði rak
eigin lögfræðistofu í Reykja-
vík frá 1. janúar 1957 til 31.
desember 1958 og var jafn-
framt frkvstj. Félags lögg.
rafvirkjameistara 1957-58 og
Meistarasambands bygging-
armanna 1958-59. Fulltrúi for-
Ég kynntist Indriða Pálssyni
fyrir rúmum þrjátíu árum í að-
draganda þess að ég kvæntist
Sigríði dóttur hans. Hann tók
mér afar vel á sinn hátt, enda
naut ég þess að móðurætt mín
er frá Siglufirði svo ekki þynnt-
ist Siglufjarðarblóðið út í okkar
kynslóð. Þær nöfnur, amma
mín og móðir hans, voru jafn-
öldrur, vinkonur og samherjar í
verkalýðsbaráttunni.
Indriði minntist ávallt berns-
kuára sinna nyrðra með gleði
og þakklæti en þann dimma
skugga bar á að Sigríður móðir
hans lést þegar hann var sjö
ára gamall. Indriði var maður
sem aldrei barmaði sér en móð-
urmissirinn hefur væntanlega
mótað skapgerð hans frá blautu
barnsbeini. Hann varð snemma
sjálfstæður og dugmikill, gekk
til allra starfa og kunni að taka
mótlæti.
Indriði vann á sumrin í síld-
inni og í Menntaskólanum á
Akureyri urðu straumhvörf í
lífi hans er hann kynntist
glæsilegri stúlku frá Seyðis-
firði, Elísabetu Guðnýju Her-
mannsdóttur. Þau felldu hugi
saman og gengu í hjónaband
þegar efni og aðstæður leyfðu.
Að loknu laganámi vann Indr-
iði ýmis lögfræðistörf en hugur
hans stóð fremur til athafna-
lífsins. Réði hann sig til Olíufé-
lagsins Skeljungs þar sem
hann varð síðar forstjóri um
tuttugu ára skeið. Indriði
reyndist snemma dugmikill,
traustur og til forystu fallinn
og var því eftirsóttur til trún-
aðarstarfa. Hann sat 23 ár í
stjórn HF Eimskipafélags Ís-
lands, síðustu sjö árin sem for-
maður, þar til hann hætti giftu-
samlega árið 1999. Ferill hans
allur var með fádæmum farsæll
enda skynsamur forystumaður
og mannþekkjari sem margir
leituðu ráða hjá. Á meðal þess
minnisstæðasta voru samning-
ar við Sovétríkin á tímum
kalda stríðsins. Þaðan kom
megnið af eldsneyti Íslands en
reynt var að greiða í vörum til
að spara gjaldeyri. Fór Indriði
margar og strangar ferðir í
Austurveg til erfiðs samninga-
þjarks.
Það var með ólíkindum
hvernig hann náði að sinna öll-
um sínum skyldum af eins mik-
illi ró og yfirvegun og raun ber
vitni. Elísabet var hans styrk-
asta stoð og ævifélagi sem létti
honum lífið. Frímúrarareglan
var Indriða hugleikin. Þangað
hefur hann vafalaust sótt and-
legan styrk og þá hógværð sem
einkenndi hann alla tíð, þrátt
fyrir mikil mannaforráð. Hann
hóf ungur að safna frímerkjum
en á fullorðinsárum þróaði
hann safn sitt af svo mikilli þol-
inmæði og útsjónarsemi að lík-
ara varð vísindum en tóm-
stundagamni.
Um aldamótin hafði Indriði
náð að létta af sér skyldum og
fékk meiri tíma til að sinna
ættingjum og vinum auk sinna
mörgu hugðarefna. Hann
stundaði sund og hitti félagana
daglega á góðum stundum.
Hann fylgdist áfram vel með
viðskiptum og stjórnmálum án
þess að fella palladóma en
brosti stundum útí annað og
naut sín í hlutverki áhorfand-
ans. Árin liðu, svo fór að eig-
inkonan missti heilsuna og
þurfti á aðstoð að halda. Því
verkefni sinnti Indriði af ein-
stakri alúð þar til yfir lauk.
Efnileg barnabörnin léttu oft
lundina og þegar Siglufjörð bar
á góma var stutt í brosið. Þeir
feðgar Einar og Indriði gerðu
góða ferð á æskustöðvarnar
síðastliðið sumar og Indriði
veitti Hellunni í Fjallabyggð
ýtarlegt viðtal sem birtist í
vorhefti þess. Er það vandað
og vel myndskreytt, ber þó af
mynd sem Elísabet tók þar
sem hann horfir glaðlegur yfir
Siglufjörð úr hlíðinni fyrir ofan
bæinn. Hennar missir er lang-
mestur þótt öll söknum við
trausts og góðs drengs. Bless-
uð sé minning Indriða Páls-
sonar.
Margeir
Pétursson.
Indriði
Pálsson
✝ Indriði varfæddur í Ár-
nesi í Lýtings-
staðahreppi, 5.
nóvember 1933.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnuninni
á Sauðárkróki, 14.
maí 2015.
Foreldrar hans
voru Margrét
Helga Magn-
úsdóttir, f. 1896, d.
1986, frá Gilhaga í Lýtings-
staðahreppi og Sigurjón
Helgason, f. 1895, d. 1974 frá
Ánastöðum í sömu sveit.
Systkini Indriða eru; Helga
f. 1918-1994, Sigfús, f. 1921,
d. 2005, Steindór Kristján f.
1923, d. 2003, og Magnús
Heiðar, f. 1929. Drengur, f.
1931, lést fárra vikna gamall
og drengur fæddist andvana
árið 1942. Faðir Helgu og Sig-
fúsar var Steindór Kristján
Sigfússon, f. 1895, d. 1921.
Eiginkona Indriða (g. 1.
jan. 1966) er Rósa Björns-
dóttir, f. 1941, dóttir
hjónanna Þorbjargar Ólafs-
dóttur og Björns Hjálm-
arssonar frá Mælifellsá í Lýt-
ingsstaðahreppi. Dætur
Indriða og Rósu eru 1. Eydís
Þorbjörg, f. 1960, maki Jó-
hann G. Jóhannesson, sonur
hans er Guðmundur Óli. 2.
Margrét Heiður, f. 1964, maki
Ægir Pálsson, börn þeirra;
Rósa Dögg, Heið-
ar og Nína, dóttir
Ægis er Bylgja. 3.
Helga Rós, f.
1969, maki Magn-
ús Sigmundsson,
börn hans eru
Andres og Inga
Katrín. 4 Berg-
lind, f. 1976, maki
Unnar Víðisson,
börn þeirra; Ísak
Indriði og Ólöf
Rán.
Þegar Indriði var fimm ára
gamall fluttist fjölskylda hans
frá Árnesi að Nautabúi í Lýt-
ingsstaðahreppi. Þar stundaði
hann þá skólagöngu sem í boði
var á þeim tíma og vann með
foreldrum sínum og bræðrum
við bústörfin. Hann fór
snemma að fást við akstur í at-
vinnuskyni og var meðal ann-
ars mjólkurbílstjóri í fram-
sveitum Skagafjarðar. Árið
1960 keyptu Rósa og Indriði
jörðina Hvíteyrar og bjuggu
þar blönduðu búi. Samhliða bú-
störfunum vann Indriði við
vörubifreiðaakstur, grenja-
vinnslu og vinnuvélaviðgerðir.
Árið 2008 fékk Indriði heila-
blóðfall og dvaldi eftir það að
mestu á hjúkrunardeild á Heil-
brigðisstofnuninni á Sauð-
árkróki.
Útförin fer fram frá Mæli-
fellskirkju í dag, 26. maí 2015,
kl. 11.
Kynni mín af Indriða Sig-
urjónssyni hófust er ég var
fimm ára sendur til sumardval-
ar til þeirra Rósu móðursystur
minnar að Hvíteyrum í Skaga-
firði. Oft hefur verið grínast
með það að þrátt fyrir að ég
hafi grenjað mig í svefn fyrsta
kvöldið, þá átti ég eftir að
strekkja mjög í sumardvölina
hjá þeim hjónum næstu fjórtán
sumur, enda leið mér vel hjá
þeim og undi hag mínum vel.
Þau hjónin byggðu upp stórt,
blandað bú á þess tíma mæli-
kvarða og því var alltaf í nógu
að snúast í sveitinni. Byggt var
nýtt fjós, tún voru ræktuð,
landið girt og hirt, með öllum
þeim verkefnum sem því til-
heyra. Ég byrjaði ungur að
fylgja Indriða til flestra verka,
en auk bústarfanna var hann
sérstaklega laginn við vélar og
járnsmíðar. Þannig smíðaði
hann sjálfur allt járnvirki í 80
gripa fjós, milligerðir, stíu-
grindur, stoðir o.fl. Allt viðhald,
viðgerðir og endurbætur á vél-
um og tækjum vann Indriði
sjálfur af mikilli alúð og elju.
Indriði var hávaxinn og
myndarlegur maður, snyrtileg-
ur í útliti og umgengni og fór
helst aldrei af bæ öðruvísi en
að búa sig sérstaklega upp til
ferðarinnar. Það var því auð-
velt að læra sem ungur dreng-
ur að bera virðingu fyrir hon-
um, en einnig vegna þess hve
traustur og góður leiðbeinandi
hann var í daglegum störfum.
Hann hafði stórar hendur,
hendur hins sanna verkmanns.
Indriði var mikill skapmaður
og gat auðveldlega reiðst mjög
ef honum mislíkaði. Aldrei man
ég þó til þess að Indriði reidd-
ist mér, þótt oft hafi hann feng-
ið tilefni til þess. Aldrei ræddi
hann það t.d. einu orði við mig,
þegar ég níu ára ók dráttarvél-
inni á heimilisbílinn og
skemmdi hann. Það atvik
ræddum við fyrst u.þ.b. 35 ár-
um síðar í afmælisveislu Indr-
iða. Hann kímdi og tók þétt í
höndina á mér þegar hann
þakkaði mér fyrir ræðuna, þar
sem ég rifjaði atvikið upp.
Indriði stundaði grenja-
vinnslu í sveitinni um áratuga-
skeið, lengst af með Jóni á
Vatni, en þeir voru miklir vinir.
Áhugi Indriða á þessu starfi
sínu var ósvikinn og hann
þreyttist aldrei á því að rifja
upp sögur af lágfótu og kenjum
hennar. Oft voru þeir félagar
dögum saman á fjöllum, ef tófa
lá á greni, enda þurfti iðulega
mikla þolinmæði við að upp-
ræta þennan vágest sauðfjár-
bóndans. Ég hef oft furðað mig
á því hve auðvelt Indriði átti
með að fella tófur og yrðlinga,
þar sem hann vildi helst aldrei
sjálfur aflífa dýr á bænum,
enda var Jón á Vatni oftast
kallaður til ef þess þurfti.
Það var mikið áfall þegar
Indriði fékk heilablóðfall fyrir
níu árum, enda var hann bund-
inn hjólastól frá þeim tíma.
Slíkt átti ekki sérlega vel við
minn mann, enda var honum
erfitt að sætta sig við það hlut-
skipti sitt. Nú er hann laus úr
prísundinni, kominn á betri
stað, frjáls eins og fuglinn. Það
var mikið lán að ég skyldi send-
ur í sveitina á sínum tíma. Þar
lærði ég margt sem reynst hef-
ur mér vel, bæði til verka og
ekki síður mótaði sveitavistin
víðsýnni afstöðu ungs manns til
lífsins og tilverunnar. Fyrir það
vil ég þakka af heilum hug.
Megi allar góðar vættir fylgja
minningu Indriða Sigurjóns-
sonar um ókomna tíð.
Björn Þorri.
Indriði
Sigurjónsson
Fleiri minningargreinar
um Indriða Pálsson bíða birt-
ingar og munu birtast í blað-
inu næstu daga.
ERFIDRYKKJUR AF ALÚÐ
Hótel Saga annast erfidrykkjur af virðingu og hlýju
Fágað umhverfi, góðar veitingar og styrk þjónusta
Sími: 525 9930 • hotelsaga@hotelsaga.is • www.hotelsaga.is
Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS ELLERT GUÐMUNDSSON,
Vallholti 20,
355 Ólafsvík,
lést á Dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík,
föstudaginn 22. maí.
Útför hans fer fram frá Ólafsvíkurkirkju, föstudaginn 29. maí kl:
14:00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á minningarsjóð Dvalarheimilisins Jaðars,
reikningsnúmer 0190-05-60761 kt. 510694-2449.
.
Lára Jóna Ólafsdóttir,
Björn Erlingur Jónasson, Kristín Vigfúsdóttir,
Hreinn Jónasson, Ingunn Jóna Gunnarsdóttir,
Ágústa Jónasdóttir, Stefán Hjaltason,
Magnús Jónasson, Sædís Einarsdóttir,
Laufey Jónasdóttir, Reynir Viðar Georgsson,
Jónas Jónasson, Kristín Kristófersdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.