Morgunblaðið - Sunnudagur - 10.05.2015, Page 29
SJARMERANDI HÆÐ Í ÞINGHOLTUNUM
Þ
að fyrsta sem blaðamaður
tekur eftir þegar gengið er
inn í húsið er stórkostleg-
ur stigagangur, málaður af
Einari Jónssyni, með marmaram-
unstri í art deco-stíl. Stigagang-
urinn er friðaður, segir húsfrúin,
sem ekki vill láta nafns síns getið,
en hún hefur komið sér vel fyrir
ásamt þremur persaköttum. Hátt
er til lofts í íbúðinni og stórir upp-
runalegir gluggar veita mikla
birtu.
„Ég hef haft gaman af að heim-
sækja antíkbúðir og markaði gegn-
um tíðina, heimilið er því einhvers
konar samansafn af hinu og þessu,
ég er hrifin af frönskum og ítölsk-
um stíl,“ segir húsfrúin en hún
segir jafnframt liti og lýsingu
skipta sköpum á heimilinu. Áhugi
húsfrúarinnar á ferðalögum leynir
sér ekki þar sem gersemar hvað-
anæva úr heiminum prýða heimilið;
allt frá fallegum myndum yfir í
heillandi antíkmublur sem keyptar
voru á mörkuðum. Stíllinn á heim-
ilinu fer vel við upprunalegar inn-
réttingar og stíl byggingarinnar,
sem ljær heimilinu ákaflega
heillandi og notalegt yfirbragð.
Borðstofan er í miklu eft-
irlæti á heimilinu. Fallegir
munir hvaðanæva úr
heiminum skapa þar
notalega stemningu.
Stigagangurinn er friðaður en hann er málaður í art deco-stíl.
Loftið í stofunni málaði franskur
listamaður.
Franskur og
ítalskur stíll
í miðbænum
ÞINGHOLTIN Í REYKJAVÍK ERU HEILLANDI OG EFTIRSÓTT
HVERFI, ÞAR ER MIKIÐ AF ELDRI FALLEGUM HÚSUM MEÐ
STERKAN KARAKTER. SUNNUDAGSBLAÐIÐ LEIT INN Á
SJARMERANDI HÆÐ VIÐ BALDURSGÖTU.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Áhuginn á ferðalögum leynir sér ekki og hefur húsfrúin haft gaman af því að heimsækja antíkbúðir og markaði gegnum tíðina
10.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
25-70%AFSLÁTTUR
– fyrir lifandi heimili – Leggur grunn að góðum degi – fyrir lifandi heimili – Leggur grunn að góðum degi – fyrir lifandi heimili –
NN MEIRI AFSL
ÁTTUR!