Fréttablaðið - 24.01.2015, Page 6
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 6
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuleiðangur
Hafrannsóknastofnunar eftir ára-
mótin sýnir hvað mestu útbreiðslu
loðnu fyrir Vestfjörðum og að Norð-
urlandi um langt árabil. Þegar ligg-
ur fyrir að aflaráðgjöf Hafrann-
sóknastofnunar verður aukin um
100 þúsund tonn hið minnsta.
Rannsóknaskipið Árni Friðriks-
son hefur frá 5. janúar verið við
loðnumælingar og mælt loðnu sem
fundist hefur frá Vestfjörðum og
að Norðurlandi. Jafnframt leitaði
og mældi Birtingur NK loðnu frá
Austfjörðum og að Norðurlandi síð-
ustu daga.
Loðna hefur fundist mjög víða í
leiðangrinum á öllu rannsóknasvæð-
inu nema úti fyrir Austurlandi.
Í kjölfar mælinga á stærð loðnu-
stofnsins í september og október
síðastliðnum lagði stofnunin til að
heildaraflamark vertíðarinnar yrði
260 þúsund tonn – en þar af var hlut-
deild Íslands 127.000 tonn. Í tilkynn-
ingu Hafró í gær sagði að enda þótt
endanlegum mælingum á stærð
veiðistofns loðnu ljúki ekki fyrr en
í næstu viku „telur Hafrannsókna-
stofnun rétt að fram komi að mæl-
ingin mun leiða til þess að stofnunin
leggi til aukningu í aflamarki fyrir
vertíðina 2014/2015. Miðað við var-
færnar forsendur á þessari stundu,
mun sú aukning að minnsta kosti
verða um 100 þúsund tonn.“
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri
Hafrannsóknastofnunar, vill ekki
sýna á spilin um hversu mikil aukn-
ing verði hugsanlega gerð á ráðgjöf-
inni til viðbótar við þau 100 þúsund
tonn sem eru í hendi. „En þetta lítur
alveg þokkalega út og við töldum
rétt að gefa mönnum upplýsingar
um það. Eftir því sem líður á ver-
tíðina skiptir hver dagur máli í því
að menn viti hver staðan er og menn
geti skipulagt veiðarnar í samræmi
við það,“ segir Jóhann og bætir við
að frekari mælingar taki nú við en
loðnan sé mjög dreifð og frekari
mælinga því þörf.
Hafrannsóknastofnun veitir
lokaráðgjöf sína um aflamark að
afloknum leiðangrinum. Mælingar
á stofninum í haust bentu til þess
að hrygningarstofninn yrði um
660 þúsund tonn á hrygningartíma.
Aflaregla gerir ráð fyrir að 400 þús-
und tonn séu skilin eftir til hrygn-
ingar. svavar@frettabladid.is
Hundrað þúsund tonnum
bætt við loðnukvótann
Hafrannsóknastofnun boðar að aflaráðgjöf í loðnu verði aukin verulega. Meira sést af veiðanlegri loðnu en
mörg undanfarin ár. Mælingar í haust bentu til þess að hrygningarstofninn yrði tæp 700 þúsund tonn.
Á VEIÐUM Mikilvægi uppsjávarveiða er gríðarlegt og gætu fréttirnar komið fram í hagvísum á næstunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ÓSKAR
Í svari Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi til Fréttablaðsins er útflutnings-
verðmæti loðnuafurða úr þessum auknu aflaheimildum, að tilteknum
fyrirvörum um ráðstöfun, gengi gjaldmiðla og ástand á mörkuðum, um
átta milljarðar króna.
GÆTI SKILAÐ UM ÁTTA MILLJÖRÐUM KRÓNA
2.590.000 kr.
KIA Cee’d LX
Árgerð 5/2013, ekinn 73 þús. km,
dísil, 1396 cc, 90 hö, beinskiptur,
eyðsla 4,4 l/100 km.
2.390.000 kr.
KIA Picanto EX
Árgerð 6/2014, ekinn 6 þús. km,
bensín, 1285 cc, 85 hö, sjálfskiptur,
eyðsla 5,6 l/100 km.
5.190.000 kr.4.690.000 kr.
KIA Sorento EX LuxuryKIA Sportage EX
Árgerð 5/2012, ekinn 76 þús. km,
dísil, 2199 cc, 198 hö, sjálfskiptur,
fjórhjóladrifinn, eyðsla 6,7 l/100 km.
Árgerð 11/2012, ekinn 29 þús. km,
dísil, 1995 cc, 136 hö, beinskiptur,
fjórhjóladrifinn, eyðsla 5,7 l/100 km.
*Á
by
rg
ð
er
í
7
ár
f
rá
s
kr
án
in
ga
rd
eg
i b
if
re
ið
ar Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
ÁR
EFTIR AF
ÁBYRGÐ
Notaðir
Ábyrgð fylgir! Allt að 7 ára ábyrgð fylgir notuðum Kia*
NOTAÐIR BÍLAR
www.notadir.is
Kletthálsi 2
110 Reykjavík
590 2160
Opnunartímar:
Virka daga 10–18
Laugardaga 12–16
En þetta lítur alveg þokkalega út og við
töldum rétt að gefa mönnum upplýsingar
um það.
Jóhann Sigurjónsson,
forstjóri Hafrannsóknarstofnunar
ÚKRAÍNA „Af okkar hálfu verða ekki gerðar nein-
ar tilraunir til viðræðna um vopnahlé,“ sagði
Alexander Sakhartsjenkó, einn af helstu leiðtog-
um uppreisnarmanna í austanverðri Úkraínu.
Hann sagði uppreisnarmenn vera í sókn þessa
dagana og hafa því engan hag af friðarviðræð-
unum. Þeir myndu halda áfram að reyna að ná
stærra svæði á sitt vald. Donetsk-borg væri
þegar á valdi þeirra og nánast allt Donetsk-hér-
að sömuleiðis.
Úkraínski herinn yfirgaf í vikunni flugstöðv-
arbygginguna í Donetsk eftir hörð átök þar, en
uppreisnarmenn höfðu lengi haft flugvöllinn
sjálfan á sínu valdi. Uppreisnarmenn segja samt
að stjórnarherinn sé enn að gera árásir á flug-
völlinn.
Þrettán almennir borgarar létu lífið á fimmtu-
dag þegar sprengju flaug sprakk á strætisvagna-
stöð þar í miðborginni. Uppreisnarmenn saka
stjórnarherinn um að bera ábyrgð á þessari
árás, og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur
tekið undir það.
Atlantshafsbandalagið segir margt benda
til þess að hörð átök séu í uppsiglingu í austan-
verðri Úkraínu.
Sameinuðu þjóðirnar segja að átökin þar hafi
til þessa kostað meira en fimm þúsund manns
lífið. - gb
Aðskilnaðarsinnar í austanverðri Úkraínu segjast vera í sókn og friðarviðræður tilgangslausar:
Uppreisnarleiðtogi vill ekki vopnahlé
ALEXANDER SAKHARTSJENKÓ Leiðtogi uppreisnar-
manna, fyrir miðri mynd, umkringdur lífvörðum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LANDBÚNAÐUR Tollar eru helm-
ingur af verði á innfluttu ali-
fuglakjöti og milli 40 og 26 pró-
sent af verði á annarri innfluttri
kjötvöru. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu starfshóps um tolla-
mál á sviði landbúnaðar.
Þá bendir Félag atvinnurek-
enda á að stjórnvöld geti aukið
innflutning á landbúnaðarafurð-
um á lægri tollum verulega sam-
kvæmt samningnum um Alþjóða-
viðskiptastofnunina án viðræðna
við önnur ríki. Til að mynda er
heimilt að hækka tollkvóta á
alifuglakjöti úr 59 tonnum í 412
tonn. - ih
Hægt að bæta við tollkvóta:
Tollar halda
kjötverði háu
SKIPULAGSMÁL Úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála
hafnar kröfu um stöðvun fram-
kvæmda við frístundabyggð í
Stafafellsfjöllum í Lóni.
Eigendur sumarhúsa í Stafafells-
fjöllum kærðu ákvörðun bæjar-
stjórnar Hornafjarðar um nýtt
deiliskipulag á svæðinu og kröf-
uðst þess að hún yrði felld úr
gildi. Þangað til myndu fram-
kvæmdir verða stöðvaðar. Sveit-
arfélagið segir kröfuna ómál-
efnalega og ósanngjarna. - gar
Ný frístundabyggð í Lóni:
Hafna kröfu
um stöðvun
SVÍÞJÓÐ Peningaþvætti fer nú fram
í gegnum fyrirtæki sem hand-
leika reiðufé, eins og gjaldeyris-
skiptistöðvar, ferðaskrifstofur og
tóbaks sölur. Þetta segir Eva Fröj-
elin, yfirmaður sænsku efnahags-
brotastofnunarinnar.
Á vef DN segir að breyting á
lögum á miðju síðasta ári hafi veitt
fjármálastofnunum möguleika á að
frysta fé væri ekki hægt að skýra
uppruna þess. Fröjelin vænti þess
að miklu fleiri tilkynningar um
fryst fé myndu berast. - ibs
Efnahagsbrot í Svíþjóð:
Peningaþvætti
rannsakað
Í BÓNUS Tollar eru helmingur af inn-
fluttu fuglakjöti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
8
3
-A
A
7
C
1
7
8
3
-A
9
4
0
1
7
8
3
-A
8
0
4
1
7
8
3
-A
6
C
8
2
8
0
X
4
0
0
5
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K