Fréttablaðið - 24.01.2015, Blaðsíða 104
24. janúar 2015 LAUGARDAGUR| SPORT | 60
HANDBOLTI Fyrir HM í Katar gengu
margir svo langt að spá Dönum
heimsmeistaratitlinum enda liðið
ógnarsterkt með frábæra leikmenn í
hverri einustu stöðu. Liðið hefur þar
að auki farið í úrslit á fjórum stór-
mótum í röð. Liðið hikstaði í upp-
hafi móts en virðist nú komið í gang,
þrátt fyrir að Danir þurfi að sætta
sig við að hafa ekki landað toppsæti
D-riðils keppninnar í Katar.
Lykilmaður í uppgangi danska
landsliðsins síðasta áratuginn eða
svo er Ulrik Wilbæk. Hann hætti
sem landsliðsþjálfari eftir níu ára
starf í fyrra og var Guðmundur
Guðmundsson, fyrrverandi þjálfari
íslenska landsliðsins, ráðinn í hans
stað sem kunnugt er.
Allir þeir Danir sem ofanritaður
hefur rætt við hér í Katar eru sam-
mála um eitt – að það yrði erfitt
fyrir hvern sem er að fylgja í fót-
spor Wilbæk, enda goðsögn í dönsk-
um handbolta.
Guðmundur fær nú það hlutverk
og Wilbæk hefur ekki áhyggjur.
Er rólegur í stúkunni
„Þetta var sérstakur leikur [gegn
Argentínu í fyrstu umferð riðla-
keppninnar]. Við vorum lengst af
í forystu en stundum gerist svona
lagað í handbolta. Það er mikil
pressa sem fylgir þessari stöðu og
ef til vill get ég hjálpað honum hvað
mest að því leyti,“ sagði Wilbæk í
samtali við Fréttablaðið eftir blaða-
mannafund danska liðsins á dögun-
um.
Á fundinum sat Guðmundur
fyrir svörum hinnar fjölmennu
fjölmiðlasveitar Dananna. Wilbæk
sat í öfustu röð í salnum og hlýddi
hljóður á.
„Mér líður vel í þessu nýja hlut-
verki og það fer vel um mig á aft-
asta bekk,“ segir hann brosandi.
„Mitt hlutverk er nú að styðja
við Guðmund og hans fólk og ég
reyni að sinna því af bestu getu,“
bætir hann við en Wilbæk gegnir
nú stöðu íþróttastjóra hjá danska
handknattleikssambandinu.
Wilbæk var líflegur á hliðar-
línunni – rétt eins og Guðmundur
hefur alltaf verið – en hann á ekki í
erfiðleikum með að hemja sig uppi
í stúku. „Það er ekkert mál. Ég er
róleg persóna nema þegar ég stend
á hliðarlínunni.“
Mikil áhrif á feril minn
Markvörðurinn Niklas Landin er
lykilmaður í liði Dana enda einn
allra besti markvörður heims – ef
ekki sá besti. Hann og Guðmundur
hafa starfað lengi saman.
„Ég á virkilega gott samband
við Gumma. Ég var 19-20 ára gam-
all þegar hann gaf mér tækifæri í
GOG Gudme og svo 22 ára þegar
hann gaf mér tækifæri í þýsku
úrvalsdeildinni með Rhein-Neckar
Löwen. Hann hefur haft mikil áhrif
á feril minn,“ segir hann.
„Mestu máli skiptir að hann
hefur gefið mér mínútur inni á vell-
inum. Þar að auki ræðum við alltaf
mjög mikið saman, bæði fyrir leiki
og eftir þá. Ég myndi segja að við
þekkjumst virkilega vel.“
Hann segir að það sé ekki mikill
munur á því að hafa Guðmund sem
félagsliðsþjálfara og landsliðsþjálf-
ara. „Hann vinnur næstum eins í
Eiríkur Stefán
Ásgeirsson
eirikur@frettabladid.is
Gummi fær sinn tíma með liðinu
Ulrik Wilbæk og Niklas Landin hafa mikið álit á Guðmundi Guðmundssyni, þjálfara danska landsliðsins, á HM í Katar. Landin, einn besti
markvörður heims, segist eiga Guðmundi margt að þakka: „Þetta snýst um að vinna réttu leikina– ekki endilega alla,“ segir Wilbæk.
Á HLIÐARLÍNUNNI Guðmundur Guðmundsson sést hér stýra danska liðinu á HM í Katar. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Niklas Landin skrifaði á síðasta ári undir samning við
THW Kiel, þýsku meistarana sem Alfreð Gíslason þjálfar.
Þangað fer hann eftir að tímabili hans með Rhein-
Neckar Löwen lýkur í vor.
„Ég þekki ekki Alfreð vel en ég hlakka virkilega mikið
til að fara til Kiel og ég er spenntur að sjá hvað næsti
íslenski þjálfari gerir,“ segir Landin brosandi en Guð-
mundur Guðmundsson þjálfaði
hann hjá tveimur félagsliðum og
er nú landsliðsþjálfarinn hans.
„Ég veit ekki hvað það er sem
gerir íslenska þjálfara svona góða en
þeir eru úti um allt. Það er ótrúlegt,“
segir Landin.
Hlakka til að kynnast nýjum íslenskum þjálfara
HANDBOLTI Lars Krogh Jeppesen,
fyrrverandi landsliðsmaður Dana og
sérfræðingur DR um HM, segir að
Guðmundur Guðmundsson hafi átt
fullan rétt á því að skamma danska
fjölmiðla í Doha í gær.
Guðmundur sagðist aldrei áður
hafa lent í því á 25 ára þjálfaraferli
sínum að frétt komi fram um lið hans
sem sé uppspuni frá rótum. Í fyrra-
dag var fullyrt að Kasper Sönder-
gaard væri ósáttur við hlutverk sitt
í danska liðinu en hann þrætti fyrir
það um leið. „Þegar fjölmiðlar grípa
fréttir úr lausu lofti þá á sér stað
trúnaðarbrestur,“ sagði Jeppesen
við Fréttablaðið í gær en hann segir
að ábyrgð fjölmiðla í umfjöllun sinni
um danska liðið sé mikil.
„Það eru 5,5 milljónir íbúa í Dan-
mörku og í síðasta leik voru tvær
milljónir að horfa. Það er því mikil
ábyrgð sem fylgir umfjöllun fjöl-
miðla. Danska landsliðið er yndi
dönsku þjóðarinnar og allt sem Guð-
mundur segir og gerir skiptir máli.“
Danir hikstuðu í upphafi móts en
unnu svo sigur á Rússlandi í fyrra-
dag. Liðið mætir Pólverjum í dag
þar sem annað sæti riðilsins er í
húfi. Danmörk og Pólland eru jöfn
að stigum en Dönum dugir jafntefli
til að tryggja annað sætið.
„Heilt yfir finnst mér að danska
liðið geti spilað betur en það hefur
gert. Nú er það leikurinn gegn Pól-
landi sem skiptir máli og ég vona
að Danir standi sig vel í honum. Við
skulum svo sjá til hvort við mætum
Íslandi í 16-liða úrslitunum,“ segir
Jeppesen og bætir við að Ísland væri
óskamótherji hans þar. „Það virðist
sem Íslendingar hafi ekki komist á
sitt eðlilega getustig hér úti.“
- esá
Trúnaðarbrestur á milli Guðmundar og danskra fj ölmiðla
Lars Krogh Jeppesen, fyrrverandi landsliðsmaður Dana, segir að danska handboltalandsliðið sé yndi dönsku þjóðarinnar.
EVRÓPU-
MEISTARI
FYRIR SJÖ
ÁRUM
Lars Krogh
Jeppesen
fagnar hér
eftir að Danir
urðu Evrópu-
meistarar í
handbolta árið
2008 eftir sigur
á Króötum í
úrslitaleiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/
GETTY
báðum stöðum. Æfingarnar eru
eins og undirbúningurinn líka,“
segir Landin sem er enn á mála hjá
Rhein-Neckar Löwen en Guðmund-
ur hætti þar í vor til að einbeita sér
að danska landsliðinu.
„Já, ég sakna hans aðeins. En ég
er nú með danskan þjálfara [Niko-
laj Bredahl Jacobsen] sem er held-
ur ekki slæmt.“
Vinna réttu leikina
Wilbæk segist sannfærður um að
Guðmundur fái tíma til að komast
almennilega á skrið með danska
landsliðið.
„Ég hef engar áhyggjur og Guð-
mundur fær sinn tíma með liðinu.
Það er enn nóg eftir af HM. Eftir
að núverandi fyrirkomulag með
16- og 8-liða úrslitum var tekið
upp vita öll liðin að þetta snýst um
að vinna réttu leikina – ekki endi-
lega alla.“
Bókaðu golfferðina þína á www.gbferdir.is eða í síma 534 5000
og kynna:
frá kr. 99.000-
pr. mann í tvíbýli
GOLFFERÐIR
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
5
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
8
4
-2
5
E
C
1
7
8
4
-2
4
B
0
1
7
8
4
-2
3
7
4
1
7
8
4
-2
2
3
8
2
8
0
X
4
0
0
7
B
F
B
1
1
2
s
_
2
3
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K