Fréttablaðið - 07.01.2015, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 07.01.2015, Blaðsíða 20
 | 4 7. janúar 2015 | miðvikudagur „Það sá náttúrulega enginn þessa verð- lækkun fyrir en það sem hjálpar okkur er að við erum með ákveðna fasta samn- inga sem tryggja að við lifum þetta alveg af,“ segir Steingrímur Erlingsson, fram- kvæmdastjóri og stofnandi Fáfnis Off- shore, um áhrif hratt lækkandi olíuverðs á rekstur fyrirtækisins. Fáfnir sérhæfi r sig í þjónustu við olíu- borpalla og öðrum verkefnum á norðlæg- um slóðum. Fyrsta skip fyrirtækisins, Polar syssel, var sjósett í mars síðast- liðnum en það kostaði um 330 milljón- ir norskra króna eða rúma sex milljarða króna á þáverandi gengi. Verð á Norður- sjávarolíu (e. Brent Crude) hefur síðan þá fallið um tæp 52 prósent. Verðlækkunin hefur leitt til verkefnaskorts hjá mörgum fyrirtækjum sem þjónusta olíuiðnaðinn og neytt þau til að draga saman seglin. „Það er deginum ljósara að ef þorskverð myndi lækka um 50 prósent þá myndi það hafa áhrif og að sjálfsögðu fi nnum við fyrir því þegar verð á afurðinni sem allt snýst um hefur lækkað svona mikið. Þetta hefur fyrst og fremst þau áhrif á okkur að það eru mörg verkefni sett á bið því þau þykja kannski ekki arðvænleg. Þá er ekki verið að ráðast í það að bora eftir olíu hvort sem það heitir á Drekasvæðinu eða hvar í veröldinni sem það svo sem er,“ segir Steingrímur. Samningurinn á Svalbarða mikilvægur „Framboð á skipum er þar af leiðandi meira núna heldur en oft áður en að sama skapi eru ekki fl eiri skip atvinnulaus núna í augnablikinu heldur en á sama tíma á þessum árstíma. Þetta er alltaf lélegasti tími ársins,“ segir Steingrímur og útskýrir hvernig vetrarveður og hækkandi ölduhæð setja strik í reikninginn. „Verðið eru aftur á móti lægra heldur en verið hefur. […] Það þarf þó ekki að fara lengra til baka en til ársins 2009 þegar heimurinn gekk í gegnum svipaða hluti. […] Það eru þó allir á því að það sé ein- ungis spurning um hvenær þetta lagist því það er enginn að græða pening í dag og ekki einu sinni arabarnir þótt menn haldi öðru fram.“ Fáfnir gerði í fyrra tíu ára samning við norska ríkið um að sinna gæslustörfum á Svalbarða sem er sagður metinn á um sex milljarða króna. Fyrirtækið hefur einn- ig keypt annað og stærra skip, sem nú er í smíðum, og gerði í haust samning við Gazprom um að þjónusta olíuborpall rúss- neska stórfyrirtækisins í Pechora-hafi við norðvesturhluta Rússlands. „Það verkefni er búið að þessu sinni. Gazprom þarf ekki á okkur að halda núna því ísinn í Pechora-hafi er búinn að setja þennan borpall í vetrardvala.“ Áhöfn Polarsyssels sinnir þessa dagana birgðafl utningum fyrir Shell í Bretlandi og siglir skipinu á milli borgarinnar Aber- deen í Skotlandi og borpalls olíu- félagsins í Norðursjó. „Við eigum eftir að vera þar í viku í viðbót. Hvert við förum eftir það er ekki vitað en ég get sagt þér það að 1. maí verðum við aftur komin á Svalbarða.“ Lífeyrissjóðir eiga mikið undir Í síðasta mánuði greindi Fréttablaðið frá því að framtakssjóðurinn Akur, sem er í eigu þrettán líf- eyrissjóða, Íslandsbanka og VÍS, hefði keypt 30 prósenta hlut í Fáfni fyrir 1.260 milljónir króna. Fjárfestingarsjóður- inn Horn II er annar stærsti eigandi fyrir- tækisins eftir hlutafjáraukningu sem farið var í síðasta sumar. Horn II er í eigu líf- eyrissjóða, fjármálafyrirtækja og fag- fjárfesta. Fjárfesting Horns fór í kaup á nýju skipi en aðkoma Akurs er ekki eyrnamerkt neinu ákveðnu verkefni. „Núna undanfarið hafa einhverjir verið að spyrja af hverju lífeyrissjóð- irnir hafi verið að fjár- festa í þessu. Þær fjár- festingar voru gerðar þegar markaðurinn var nú kannski ekki alveg farinn eins og hann er núna en það sem er að gerast núna hefur allt gerst áður,“ segir Steingrímur og heldur áfram: „Það er deginum ljósara að við sem stofnuðum til þess- arar útgerðar, allir sem hafa lagt pening í þetta, við vorum ekki að horfa á þetta til einnar nætur. Hugsjón- in á bak við Fáfni Offshore er að þetta er langtímaverkefni þar sem við ætlum að koma okkur upp ákveðnum fl ota. […] Eitt er alveg ljóst. Það kaupir enginn svona bát, eða fer inn í svona bransa nema til langs tíma. Fáfnir er því kominn til að vera og við ætlum að koma okkur upp í ákveðna stærð og kynna þennan iðnað fyrir íslensku samfélagi og viðskiptalífi .“ Það eru þó allir á því að það sé einungis spurning um hvenær þetta lagist því það er enginn að græða pening í dag og ekki einu sinni arabarnir þótt menn haldi öðru fram. ORKUMÁL Haraldur Guðmundsson haraldur@frettabladid.is Samkeppniseftirlitið hefur sam- þykkt kaup Samherja á 80 prósenta hlut í fjárfestingarfélaginu ESTIA hf. Samherji er eftir kaupin meiri- hlutaeigandi í Slippnum Akureyri hf. Samþykkið er veitt með skilyrð- um um að sjávarútvegsfyrirtækið fái ekki forgang að þjónustu skipa- smíða- og málmvinnslufyrirtækis- ins. „Telur Samkeppniseftirlitið að skilyrðin leysi hin samkeppnislegu vandkvæði sem af samrunanum kunna að stafa,“ segir í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Greint var frá kaupum Sam- herja á 80 prósenta hlut í ESTIA í Markaðinum í október síðastliðn- um. Kaupverðið er trúnaðarmál en ESTIA á 71 prósents hlut í Slippnum sem rekur skipasmíðastöð, dráttar- braut og fl otkví á Akureyri. Eiríkur S. Jóhannsson, stjórnar- formaður Samherja, segir stjórn- endur fyrirtækisins ekki hafa nein áform um breytingar á rekstri Slippsins. „Það eru engar byltingar í vænd- um og fyrirtækið mun halda áfram í óbreyttum rekstri,“ segir Eiríkur og heldur áfram: „Það er eðlilegur fyrirvari í sam- þykkinu um að skip Samherja og tengdra aðila njóti ekki forgangs hjá Slippnum. Að okkar mati er það eðlilegt vegna þess að Slippurinn var ekki keyptur með það í huga að hygla Samherja heldur til að gera gott fyrirtæki enn betra.“ - hg Kaup sjávarútvegsfyrirtækisins á fjárfestingarfélaginu ESTIA hf. hafa verið samþykkt af Samkeppniseftirlitinu: Samherji fær að eiga meirihluta í Slippnum SLIPPURINN Samherji er nú meirihlutaeigandi í stærsta skipasmíðafyrirtæki lands- ins. FRÉTTABLAÐIÐ/AUÐUNN Vinna fyrir Shell í Bretlandi en lækkun olíuverðs hefur sett strik í reikninginn Framkvæmdastjóri Fáfnis Offshore segir mikla lækkun olíuverðs hafa komið á óvart. Fyrirtækið sinnir nú verk- efnum fyrir Shell í Bretlandi sem lýkur í næstu viku. Framhaldið er óljóst en stefnan er sett á Svalbarða í maí. SKIPIÐ Polarsyssel er dýrasta skip Íslandssögunnar og er sérútbúið til að þjónusta olíuiðnaðinn. MYND/HAYVARD Verð á einni tunnu af Norður- sjávarolíu féll í gær niður fyrir 53 Bandaríkja- dali og hafði þá ekki verið lægra síðan í mars 2009. Raftækja- framleið- andinn Sony hefur ákveð- ið að fram- leiða nýjan spilara undir heitinu Walkman ZX2. Nafnið vísar til vinsæla kasettuspilarans Walkman sem Sony framleiddi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar. Sony kynnti spilarann til sög- unnar á tækniráðstefnu í Las Vegas á dögunum. Spilarinn mun kosta 1.110 dollara, um 142 þús- und krónur, innihalda 128 gíga- bæta geymsluminni og mun geta tengst öppum í gegnum Google Play. - hg Kostar 140 þúsund krónur: Sony kynnir Walkman ZX2 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :5 3 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 7 B -0 B 6 C 1 7 7 B -0 A 3 0 1 7 7 B -0 8 F 4 1 7 7 B -0 7 B 8 2 8 0 X 4 0 0 6 A F B 0 4 8 s _ 6 _ 1 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.