Fréttablaðið - 07.01.2015, Blaðsíða 27
7 | 7. janúar 2015 | miðvikudagur
iPhone
Aukahlutir
bær viðbrögð og margir þekkja
vörumerkið. Svo eru vörurnar til
sölu í svo fl ottum verslunum. Þetta
skiptir allt miklu máli og ég held
að maður hafi kannski vanmetið
það örlítið í upphafi hvað góður
árangur á þessum litla heima-
markaði, að hafa trausta fótfestu
þar, getur skipt miklu máli.“
Mikilvægt að hitta fólk
Á síðasta ári seldi Tulipop vörur
sínar í hátt í tuttugu verslunum í
Bretlandi. Þær stöllur hafa feng-
ið mikið af fjölmiðlaumfjöllun þar
í landi og í lok síðasta árs fengu
þær viðurkenningar frá Junior
Awards, fremstu hönnunarverð-
launum á sviði barnavara. Þá hafa
þær ráðið sér sölufulltrúa í Lond-
on sem sér um að sinna viðskipta-
vinum þeirra þar, sýna vörur og
taka við pöntunum.
Helga: „Þetta gengur vel. Það
eru alltaf fleiri og fleiri búðir
farnar að hafa samband að fyrra
bragði við okkur og maður veit
ekki alltaf alveg af hverju það
stafar. Sérstaklega í lok síð-
asta árs.
Signý: „Það er alltaf
miklu skemmtilegra
þannig heldur en að
við séum að hafa sam-
band með vörurnar
okkar. Til dæmis seld-
um við til eistneskrar
keðju fullt af vörum,
þá hafði kona þaðan
komið á vörusýn-
ingu þar sem við
sýndum. Stundum
dettur bara eitthvað
inn þótt maður
sé ekkert að
reyna.
Þær segja vörusýn-
ingarnar skila miklu, þar myndi
þær tengsl og fá tækifæri til að
sýna vörulínurnar í sínu rétta
umhverfi .
Helga: „Fyrst vorum við
ekki vissar hverju þetta myndi
skila. Veltum því fyrir okkur
hvort þetta væri kannski svo-
lítið „gamla leiðin“ sem virkaði
best fyrir tíma internetsins. En
þær eru mjög mikilvægar. Flest-
ir innkaupastjórar verslana fara
á svona sýningar að skoða. Þótt
þeir panti kannski ekki endilega
á sýningunni sjálfri þá myndast
þar tengsl sem eru dýrmæt.
Signý: „Það skiptir líka máli að
hitta fólk af holdi og blóði. Það
gildir greinilega enn þá að það er
dýrmætt að hitta manneskjur aug-
liti til auglitis og taka í hendurnar
á þeim í stað þess að vera bara í
rafrænum samskiptum.“
Vilja vera alls staðar
En hver er draumastaðan hjá Tuli-
pop?
Signý: „Markmiðið
hjá okkur í upp-
hafi var að
framleiða
vörur sem
allir væru
ánægð-
i r me ð ;
mömmur
og pabbar
og börnin.
Að það séu
allir glað-
ir þegar
heim er
komið
með vör-
una. Foreldrarnir eru glaðir af
því að vörurnar eru smekklegar
og þeir eru til í að hafa þær heima
hjá sér. Börnin eru líka glöð. Það
hefur sýnt sig á vörusýningun-
um að þau sogast að þessu, sem
er gott.“
Helga: „Svo hafa fullorðnir líka
verið að kaupa vörurnar okkar.
Við höfum heyrt af fólki sem
hefur sett matarstellin okkar á
brúðkaupsgjafalistana sína. Það
er skemmtilegt.“
Signý: „En draumastaðan er
sífellt að breytast. Fyrir rúmu ári
síðan var það bara að geta lifað
af þessu á sæmilegum launum.
Nú hefur það ræst og þá verð-
ur draumurinn annar og maður
gleymir hinu. Svo breytist þetta
enn aftur þegar sá rætist.
Helga: „Draumastaðan í upphafi
var bara að búa til vörur utan um
karaktera sem gætu náð árangri
á heimsvísu.“
Signý: „Ætli draumurinn sé ekki
að vera á endanum komnar með
teiknimyndir, bíómyndir, leik-
föng, tölvuleiki og vera bara alls
staðar.“
Markmiðið hjá
okkur var að
framleiða vörur sem
allir væru ánægðir
með, mömmur, pabb-
ar og börnin. Að það
séu allir glaðir þegar
heim er komið með
vöruna.
TULIPOP-HEIMURINN Í Tulipop búa
krúttlegar og heillandi persónur
eins og sveppastrákurinn hugljúfi
Bubble, sem ann öllu sem hrærist,
og systir hans Gloomy, hugrakka
og ævintýragjarna sveppastelpan
sem hræðist ekkert.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:5
3
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
7
A
-4
5
E
C
1
7
7
A
-4
4
B
0
1
7
7
A
-4
3
7
4
1
7
7
A
-4
2
3
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
4
8
s
_
6
_
1
_
2
0
1
5
C
M
Y
K