Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 12
18. júlí 2015 LAUGARDAGURSKOÐUN GUNNAR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞRÓUNARSTJÓRI: Tinni Sveinsson tinni@365.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRAR: Andri Ólafsson andri@365.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 MÍN SKOÐUN: JÓN GNARR Ég hef lengi verið unn-andi góðrar heimspeki. Sem ungur maður varð ég fyrir miklum áhrif- um frá taóisma í gegnum Bókina um veginn eftir Lao Tse. Ég held að engin bók hafi haft jafnmikil áhrif á mig, líf mitt og karakter og hún. Og eins og með svo marg- ar bækur þá liggur sá galdur ekki bara í orðanna hljóðan heldur frekar í einhverri dularfullri og ljóðrænni tilfinningu, sem les- andinn tengir við handan text- ans. Og ég held að það sé þessi tilfinning sem knýr mig til að lesa. Ég er að leita að þessu sífellt þegar ég les. Ég hef tekið syrpur í lestri í gegnum árin. Sem krakki las ég Þórberg. Ég var heillað- ur af Ofvitanum og las því allt hitt. Þegar ég var ungur fannst mér ég þurfa að lesa allar hinar svokölluðu heimsbókmenntir. Þá staulaðist ég í gegnum Tolstoj og Dostojefskí. Svo eins og margir Íslend- ingar las ég helstu rit Hall- dórs Laxness. Ég tók nokk- ur ár í að lesa það sem ungir menn þurftu að lesa til að geta talist hipp og kúl og vel lesnir. Það voru mikið bækur eftir drykkfellda Amerík- ana og evrópska tilvistarkrypp- linga. Svo kom suðurameríska tímabilið. Þá las ég allt sem ég fann eftir Gabríel García Mar- ques, Isabellu Allende, Migu- el Asturias og fleiri. Inn á milli slæddust svo ýmsir enskir og skandinavískir höfundar. Oft var þetta ekki með ráðum gert heldur slysaðist ég óvart inn á einhverja braut vegna einhverra utanað- komandi áhrifa. Vinir mínir voru ötulir við að gauka að mér bókum „sem ég yrði að lesa“ og stundum las ég bara það sem hendi var næst. Mér hefur jafnvel oft fund- ist bækurnar frekar velja mig en ég þær, eins skrítið og það kann að hljóma. Framan af las ég aðal- lega skáldsögur. Ég tók syrpu í ljóðabókum og las líka fjöldann allan af leikritum. Ég hellti mér líka út í lestur sjálfshjálparbóka á tímabili. Það var einhver tíska hér á landi og það gerðist einmitt á krítískum tíma í mínu eigin lífi. Það leiddi mig svo út í lestur alls konar andlegra fræða og trúar- bragða og varð seinna til þess að ég ákvað að gerast kristinn og las þá Biblíuna, Tomás de Kempis og Thomas Merton og allt annað sem ég náði mér í. Svo kom hjá mér langt reyfaratímabil. Þá grúfði ég mig yfir James Ellroy, Dashiell Hammett, Sjöwall og Wahlö, P.D. James og fleiri. Heimspeki er lífsstíll Minna Móse, meira Spinósa Framan af ævinni var bóka-úrvalið nokkuð bundið af þýðingum, ég las helst það sem kom út á íslensku en með batnandi enskukunnáttu fór ég að lesa fleiri bækur á ensku. Síðustu tíu árin hef ég aðallega lesið enskar bækur. Ég hef aðal- lega lesið fræðibækur um vísindi og heimspeki. Eftir að ég byrj- aði að lesa heimspeki þá varð ég soldið hissa á sjálfum mér að hafa ekki byrjað á þessu fyrr. Ég held að ástæðan fyrir því hve fá heimspekirit hefur rekið á fjörur mínar sé fyrst og fremst skortur á framboði. Það hefur merkilega lítið verið þýtt og það sem til er reynist oft erfitt að nálgast. Hlut- ur heimspeki er grátlega lítill í almennri uppfræðslu ungmenna. Það eru fáar bækur um heim- speki fyrir börn og unglinga og það litla sem hefur komið út er yfirleitt ófáanlegt. Á meðan er offramboð af kristilegum bók- menntum fyrir sama aldurshóp og er það aðallega íslenska ríkið sem stendur fyrir þeirri útgáfu. Ólíkt heimspeki þá er kristin trú ekki mikið að velta fyrir sér hug- leiðingum um raunveruleikann og eðli tilverunnar heldur meira að fullyrða og alhæfa um hluti sem enginn veit með vissu. Það væri vel hægt að gefa út barna- bók með titlinum „Guð er til og hann elskar þig“. En það er ólík- legt að bókin „Guð er ekki til og ef hann er til þá er hann ekkert að pæla í þér“ verði gefin út á næstunni. Lestur heimspeki og umræð-ur um hana virðist því miður bundinn við ákveðn-ar kreðsur. Það er ólíklegt að heimspekirit reki á fjörur ungs fólks nema það skrái sig sérstak- lega í einhvern kúrs eða beinlín- is læri heimspeki. Mér finnst það ömurlegt. Ég vildi óska að ég hefði uppgötvað Friedrich Nietzsche þegar ég var yngri. Mér finnst að allir Íslendingar sem vilja telja sig hipp og kúl og vel lesna eigi að þekkja Bertrand Russell og Saga vestrænnar heimspeki ætti að vera í skinnbandi á hverju heim- ili. Okkur vantar hreinlega meira af heimspeki í allt samfélagið. Það mundi bæta mjög mikið hér. Ég held að ástæðan fyrir því hvað við Íslendingar eigum mikið af stór- kostlegum rithöfundum en fáa og jafnvel enga frambærilega heim- spekinga, sé kannski sú að það hafi kannski aldrei verið nein sér- stök stemning fyrir raunveruleik- anum hér á landi. Jesú kom aldrei til Íslands og sýndi þessu landi engan áhuga. En Ludvig Wittgen- stein var hér! Ég legg því til að það verði gert þjóðarátak í meðvitund og uppfræðslu heimspeki á Íslandi. Heimspeki sem lífsstíl! Wittgenstein var á undan Jesú til Íslands B BC hefur löngum þótt fyrirmynd annarra ríkismiðla. Í vikunni birtu bresk yfirvöld opinbera skýrslu um starfsemi BBC. Þótti skýrsluhöfundum sjálf fyrirmyndin hafa misst sjónar á kjarnahlutverki sínu. Hún ætti að starfa í almanna- þágu en ekki hafa vinsældir og áhorfstölur að leiðarljósi. Fleiri ríkismiðlar hafa villst af braut. Þar má nefna Ríkisútvarp okkar Íslendinga – rekið fyrir almannafé. Hlutverk Ríkisútvarpsins hefur verið afmarkað. Það skal bjóða fjölmiðlaþjónustu í almannaþágu – stuðla að lýðræðislegri umræðu, menningarlegri fjölbreytni og félagslegri samheldni. Því ber að leggja rækt við íslenska tungu og varðveita menningararfinn. Hið afmarkaða hlutverk Ríkisútvarpsins aðskilur það frá einka- reknum miðlum. Rekstrarfé úr sjóðum almennings undirstrikar þann aðskilnað. Ríkisútvarpinu er ekki ætlað að vera í samkeppni. Því er ekki ætlað að leggja stein í götu einkarekinna miðla. Því er ætlað afmarkað hlutverk í almannaþágu – hlutverk sem miðillinn vanrækir, afvegaleiddur af viðskiptasjónar- miðum. Ríkisútvarpinu ber að tryggja jafnan hlut kynjanna í dagskrá sinni. Það var því bagalegt hvernig farið var með sjónvarpsrétt að heimsmeistaramóti kvenna í knatt- spyrnu á dögunum. Fékk mótið litla fyrirferð þrátt fyrir mikinn áhuga á kvennaknattspyrnu hérlendis. Þrátt fyrir aukna meðvitund og sterka kvennaslagsíðu í samfélaginu. Starfsmenn Ríkisútvarps- ins leituðu skjóls í rökleysu á borð við undirmönnun, áhugaleysi og kostun. Það leyndist þó engum – forgangsröðun ríkismiðilsins var skýr. Kvennaíþróttir víkja fyrir karlaíþróttum. Ríkisútvarpið brást hlutverki sínu. Það brást kvennaboltanum. Það brást þeim fjölda Íslendinga – af báðum kynjum – sem áhuga hafa á íþróttinni. Það er flestum ljóst að breyta þarf kreddukenndum hugmyndum um hlutverk kynjanna og þeim viðhorfum sem ríkja til kvennaíþrótta. Þeirri vegferð ætti Ríkisútvarpið að veita leiðsögu – enda hver betur til þess fallinn en ríkismiðill kostaður af almannafé? Hlutverk Ríkisútvarpsins hefur löngum verið umdeilt. Mörgum þykir miðillinn færa sig nær samkeppnisrekstri. Þannig raski hann viðskiptaumhverfi og skapi óréttlát skilyrði á íslenskum fjölmiðla- markaði. Ríkismiðill rekinn fyrir almannafé eigi ekki að keppa á auglýsingamarkaði. Hann eigi ekki að stjórnast af vinsældum og áhorfsmælingum, sem einkamiðlar þurfa alltaf að hafa til hliðsjónar. Taka verður undir þessi sjónarmið. Samkeppnisrekstur rímar illa við skilgreint hlutverk ríkismiðla. Viðskiptalegar áherslur geta skaðað meginstarfsemi og dagskrárval Ríkisútvarpsins. Slíkar áherslur höfðu skaðleg áhrif á heimsmeistaramót kvenna í knattspyrnu og þær hafa áhrif víðar. Þar er í mörg horn að líta. Á upplýsingaöld þegar almenningur treystir á veraldarvefinn er netfréttaþjónusta miðilsins neyðarleg. Einkamiðlar skara fram úr Ríkisútvarpinu í framleiðslu á innlendu sjónvarpsefni og menningarhlutverkinu er illa sinnt. Ríkisútvarpið virðist áttavillt. Þrátt fyrir afmarkað hlutverk hefur það flækst inn á umráðasvæði einkamiðla og látið samkeppnis- sjónarmið ráða rekstrinum. Eðlilegt jafnvægi þarf að ríkja á fjöl- miðlamarkaði svo sjálfstætt starfandi fjölmiðlar geti keppt við réttlát skilyrði. Það er mikilvægt að ríkismiðill rekinn fyrir almannafé skapi ekki torfæru í viðskiptaumhverfi einkamiðla. Ríkisútvarpið þarf að rifja upp sérstöðu sína og hlutverk sitt í almannaþágu. Þar mega vinsældakosningar ekki ráða för. Áttavillt og um- deilt Ríkisútvarp Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 5 -6 A 5 C 1 7 5 5 -6 9 2 0 1 7 5 5 -6 7 E 4 1 7 5 5 -6 6 A 8 2 8 0 X 4 0 0 9 A F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.