Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 16
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 16
Gyða Lóa
Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
Á GAMLA MÁTANN Það verður margt við að vera á Árbæjarsafni á morgun og gestir geta meðal annars spreytt sig á skyrgerð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRIMARINÓ
FARÐU á KRÁS Götumarkaðinn
í Fógetagarði sem verður í
blússandi stuði á laugardag frá
klukkan 13.00 til 18.00.
LESTU Allt á hreinu eftir þrifa-
snillinginn Margréti D. Sigfús-
dóttur og segðu þessum sól-
bökuðu rykmaurum að hypja sig.
HLUSTAÐU Á The Wolves Are
Whispering, spánnýja afurð
Bang Gang.
HORFÐU Á Litlu gulu hænuna
sem Leikhópurinn Lotta setur
upp við bláu kirkjuna á Seyðis-
firði á sunnudaginn.
HELGIN
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR
FARÐU
HLUSTAÐU
LESTU
HORFÐU...
225g mjúkt smjör
1 bolli púðursykur
¼ bolli sykur
1 tsk. vanilludropar
2 egg
2½ bolli Kornax-hveiti
1 tsk. matarsódi
¼ tsk. salt
1 bolli karamellukurl
1 bolli grófsaxað hvítt súkkulaði
Hitið ofninn í 190°C og setjið bökunarpappír á
ofnskúffur.
Blandið smjöri, púðursykri og sykri mjög vel
saman. Bætið því næst vanilludropunum út í.
Blandið eggjunum saman við, einu í einu.
Blandið hveiti, matarsóda og salti saman í skál.
Blandið þeirri blöndu síðan varlega saman við
smjörblönduna.
Að lokum er karamellukurli og hvítu súkkulaði
blandað saman með sleif.
Gerið litlar kúlur úr deiginu og raðið á ofnskúff-
urnar með fínu millibili. Bakið í akkúrat 10 mínútur,
þó að kökurnar virðist vera of lítið bakaðar – þær
eiga að vera svona.
Hvítt súkkulaði og karamellukurl í kökur
Uppskrift að dásamlegum kökum sem Lilja Katrín Gunnarsdóttir, á www.blaka.is, á heiðurinn af.
Það verður nóg um að vera á
Árbæjar safni á morgun á viðburð-
inum Mjólk í mat og ull í fat, en þar
mun gestum safnsins verða veitt
innsýn inn í horfinn heim og jafn-
framt gefast kostur á að taka virkan
þátt í hinum ýmsu störfum.
„Við ætlum að gera skyr og
strokka smjör og leyfa gestunum að
spreyta sig á því. Svo verður kona
uppi á baðstofulofti sem verður að
spinna, eldsmiður í eldsmiðjunni og
teymt undir krökkum,“ segir Sigur-
laugur Ingólfsson, verkefnastjóri
Árbæjarsafns, glaður í bragði en að
auki verða ýmsar aðrar uppákomur.
Viðburðurinn er haldinn árlega
og hentar allri fjölskyldunni.
„Þemað er sem sagt Mjólk í mat og
ull í fat, sem var svona viðkvæði
áður fyrr, að til þess að vera full-
gild eiginkona þurftir þú að kunna
að koma ull í fat og mjólk í mat og
við erum svona að upphefja þennan
hluta af heimilisstörfunum,“ segir
hann.
Að sögn Sigurlaugs tekur allt að
40-50 mínútur að strokka smjör og
segir hann að börnunum finnist
gaman að fylgjast með smjörgerð-
inni og ekki síður að fá að spreyta
sig. „Það fær þau kannski til að
hugsa um hvernig þetta var gert í
gamla daga. Vörurnar voru ekki til
í ísskápunum, enda enginn ís skápur
til.“
Það verður nóg við að vera á safn-
inu á morgun því auk sér stakrar
dagskrár verða mjaltir venju sam-
kvæmt, kassabílar, leikfangasýn-
ing og messa í kirkju Árbæjarsafns
klukkan 14.00 þar sem Kristinn
Ágúst Friðfinnsson predikar og
að venju verður heitt á könnunni í
Dillons húsi.
Safnið verður opnað klukkan
10.00 á morgun og stendur dag-
skráin fram eftir degi. Inn á safnið
kostar 1.400 krónur fyrir fullorðna,
en aðgangur er ókeypis fyrir börn
undir 18 ára aldri, eldri borgara
yfir sjötugu og öryrkja.
Gera skyr og strokka smjör
Á morgun verður nóg um að vera á Árbæjarsafni en þar munu gestir safnsins eiga kost á að fá innsýn inn í
hin ýmsu störf og geta meðal annars virt fyrir sér eldsmið að störfum og spreytt sig í skyr- og smjörgerð.
AÐEINS 10 MÍNÚTUR Í OFNI Ekki örvænta þótt kök-
urnar virðist of lítið bakaðar - þær eiga að vera svona.
Unnur Eggertsdóttir
söng- og leikkona
Fer í brúðkaup
Ég er að fara í brúðkaup í dag hjá
frænda mínum og ekki nóg með það,
þá er ég líka að fara að syngja í kirkj-
unni. Þetta verður mjög mikil snilld.
Svanhildur Gréta Kristjánsdóttir
ritstjóri Blævar
Grillar með vinum
Ég ætla í grillpartí með vinum mínum
og skreppa í Stykkishólm til ömmu.
Gera sem flest til þess að gleyma því
að ég er ekki á LungA.
Salóme R. Gunnarsdóttir
leikkona
Hefur það gott í London
Ég verð í London og hef ekki hug-
mynd hvað ég ætla að gera, en mig
grunar nú að það verði ekki mikið
mál að finna gott leikhús, gott
fólk og góðan mat að borða.
Uppástungur eru vel þegnar
með hugskeyti.
Júlí Heiðar Halldórsson
leikari
Garðpartí aldarinnar
Ég er að fara í garðpartí aldarinnar
hjá tilvonandi bekkjarfélaga mínum í
Listaháskólanum. Svo verð ég örugg-
lega að vinna á kaffihúsinu Hendur í
Höfn í Þorlákshöfn.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-E
4
4
C
1
7
5
3
-E
3
1
0
1
7
5
3
-E
1
D
4
1
7
5
3
-E
0
9
8
2
8
0
X
4
0
0
5
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K