Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 18
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 18
Þar sem ég fékk 20. öldina á námstímanum í Englandi og klassíkina á Ítalíu held ég að verkin mín takist á í nútímanum og fortíð-inni,“ segir Steinunn Þór-
arinsdóttir myndhöggvari, sem er
um þessar mundir með þrjár sýn-
ingar í gangi í erlendum borgum. Í
Bandaríkjunum eru á ferðinni tvær
sýningar og í vor var opnuð sýning-
in Places sem nær yfir alla Kaup-
mannahöfn.
Fígúratífir skúlptúrar Steinunnar
eru mörgum kunnir, enda ratar stór
hluti verka hennar í almannarými
þar sem listin kemur til fólksins.
Viðbrögðin hafa heldur ekki látið
á sér standa því fjöldi manns um
allan heim tengir við óræðu mann-
eskjurnar hennar Steinunnar sem
verða til á vinnustofunni við Sól-
vallagötuna.
Myndheimur er ævistarf
„Mín verk hafa alltaf verið fígúra-
tíf. Það hefur kannski eitthvað að
gera með hvernig menntun mín er.
En skúlptúrinn, og þau efni sem ég
er að vinna með, hefur löngum þótt
karllægt element. Ég man t.d. að
galleristinn minn í Bandaríkjunum,
Scott White, sagði mér eitt sinn að
allir héldu að þetta væru verk eftir
karlmann. Skúlptúrinn var lengi
mikið karlasvæði og þegar ég kom
heim eftir nám um 1980 þá voru
bara um fimmtán manns í Mynd-
höggvarafélaginu og þar af örfáar
konur en þetta hefur breyst mikið.
Ég hef aldrei horft á þetta sem
eitthvað karlasvæði. Ég hef bara
alltaf verið fókuseruð á skúlptúr því
um leið og ég byrjaði að vinna þrívítt
þá féll ég fyrir því. Ég byrjaði á því
að vinna í leir þegar ég var í námi af
því hann er lífrænn og náttúrulegur
og ég gat notað áferðina til að tengja
verkin Íslandi. En stærðin var mjög
takmarkandi og það hentaði mér
ekki því ég vildi vinna í líkams-
stærð og því leitaði ég annarra leiða.
En fyrstu árin fóru svona mest í að
kynnast öllu; efnum, tækni og mögu-
leikum og átta sig á eigin myndheimi
sem tekur í sjálfu sér alla ævi.“
Augnablik hlutleysis
„Mín verk hafa löngum verið kyn-
laus – meira svona eins og ímynd
mannsins fremur en ákveðinn
maður. Það koma reyndar einstaka
verk inn á milli sem eru ekki kyn-
laus, en allt frá því að ég var í námi
þá varð þessi hugmynd um mann-
eskjuna sem slíka viðfangið. Líkam-
inn er nánast aukaatriði, því þetta
er ekki raunsæisverk, heldur meira
eins og rammi utan um það sem ég
er að gera. Það má kannski segja að
ég sé fremur að fást við að steypa
mannlegar tilfinningar og sálir. Í
raun er líkaminn í verkum mínum
eins og strigi málarans.
Með því að kynbinda verkið
kemur einhver sögn sem á kannski
ekki endilega að vera þarna – það
lokar merkingunni og ég hef kosið
að halda þeim frekar hlutlausum.
Ég vil að verkin hvísli að fólki frem-
ur en að þau æpi. Ég hef stundum
sagt að þau séu stödd í augnablikinu
rétt áður eða rétt eftir að eitthvað
gerist. Augnablik hlutleysis þar sem
maður er að reyna að átta sig pínu-
lítið á því hvað er í gangi. Lífið er
jú ráðgáta,“ segir Steinunn og hlær.
Huldufólk Steinunnar
Þrátt fyrir þessa kyrrð eru verk
Steinunnar engu að síður í ákveð-
inni samræðu sín á milli sem og við
umhverfi sitt. „Já, ég held að verk-
in séu nátengd einhvers konar íhug-
unarástandi, aðeins til hliðar við
raunveruleikann. En ég bý líka oft
til verk þar sem meira en ein mann-
eskja kemur fyrir og þegar maður
tengir saman tvær manneskjur
fer af stað allt önnur dýnamík.
Það getur stundum styrkt grunn-
hugmyndina að tengja saman tvær
manneskjur og svo með þeirri
þriðju gerist eitthvað allt annað.
Lokaverkefnið mitt í náminu
í Bretlandi fjallaði um huldar
verur, huldufólk. Þeir héldu nátt-
úrulega að ég væri orðin alveg
snar, en nálgunin var að tengja
þennan íslenska veruleika mínum
eigin verkum. Hugmyndin um
huldufólkið snýst ekki síst um
það að þú sérð það ekki nema að
þú staldrir við og gefir þér tíma.
Það sama gildir um verk mín. Það
að sýna verkin í opinberu rými á
götum og torgum úti er gefandi
og krefjandi í senn – því sam-
skipti fólks eru svo bein við verk-
in. Vegna þess að þau eru í líkams-
stærð geturðu faðmað þau, staðið
hjá þeim og stokkið upp á þau en
um leið þarftu að staldra við til
þess að taka þau inn.
Mér finnst frábært þegar fólk
er í sambandi við verkin mín en
um leið getur ýmislegt gerst. Þeim
er jafnvel stolið!“ segir Steinunn
og skellihlær. „Þessi samskipti
við almenning og um leið nún-
ingur finnst mér frábær en hann
getur líka verið dálítill haus-
verkur. Að koma með listina til
fólks í almannarými er allt annað
en að sýna innan hvítra veggja
sýningar salanna.“
Kardemommubærinn
Steinunn segir að viðtökurnar séu
nánast eins ólíkar og staðirnir eru
margir. „Sýningin í Kaupmanna-
höfn er búin að vera einstök reynsla
vegna þess að verkin eru staðsett
vítt og breitt um borgina. Fyrsta
verkið tekur á móti þér á Kaup-
mannahafnarflugvelli og síðan
geturðu gengið um alla borgina og
skoðað sýninguna.
En það var ótrúlega gaman hvað
Kaupmannahafnarborg var áhuga-
Stundum gerir maður
verk án þess að vita af
hverju og það finnst mér
gefa verkunum heilmikið
frelsi sem skiptir miklu
máli.
Hugmyndin um
huldufólkið snýst ekki síst
um það að þú sérð það
ekki nema að þú staldrir
við og gefir þér tíma.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Huldufólk og steyptar sálir
Verk Steinunnar Þórarinsdóttur myndhöggvara fara víða og eru mörgum kunn. Um þessar mundir eru í gangi þrjár sýning-
ar á verkum hennar í jafn mörgum erlendum borgum svo það er í mörgu að snúast hjá Steinunni sem nýtur þess að vinna.
MYNDHÖGGVARI Steinunni Þórarinsdóttur finnst frábært þegar fólk er í sambandi við verk hennar þó svo að því geti líka fylgt hausverkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARINÓ
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
3
-5
E
F
C
1
7
5
3
-5
D
C
0
1
7
5
3
-5
C
8
4
1
7
5
3
-5
B
4
8
2
8
0
X
4
0
0
3
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K