Fréttablaðið - 18.07.2015, Síða 24

Fréttablaðið - 18.07.2015, Síða 24
KYNNING − AUGLÝSINGÞjóðhátíð LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 20152 Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000 Umsjónarmaður auglýsinga: Jónatan Atli Sveinsson, s. 512-5446, jonatan@365.is Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson. Þegar Stefán var spurð-ur hvað hefði komið til að Sálin var fengin til verks- ins að þessu sinni, svaraði hann: „Þetta hafði komið til tals fyrir nokkrum árum, en varð ekki af fyrr en núna. Það var líklega kom- inn tími á þetta.“ Stefán viðurkennir að það hafi verið svolítið snúið að gera text- ann og það hafi tekið hann nokk- urn tíma. „Það þarf að huga að ýmsu, hann þarf að vera sæmi- lega samsettur, hæfilega Eyja- legur, en þó almennur og helst innihalda smá sumar og róman- tík. Mér fannst það takast nokk- uð vel,“ segir hann og er ánægð- ur með viðtökur lagsins. „Mér skilst að þetta sé eitt vinsælasta lag landsins, það er alltént ofar- lega á helstu listum.“ Stefán er ekki alveg ókunnug- ur þjóðhátíðarlögum því hann hefur komið við sögu í þremur þeirra. Hann söng nokkrar línur í þjóðhátíðarlaginu 1989 sem heit- ir Í Brekkunni – Bræðurnir Brekk- an. „Ég kom víst einnig við sögu í tveimur öðrum lögum, man þó ekki hvaða ár það var. En þetta er í fyrsta skiptið sem Sálin stendur að slíku lagi.“ Þegar Stefán er spurður hvort hann hlakki til að f lytja lagið í Herjólfsdal segist hann vera ró- legur enn þá. „Það verður þó vafalaust spennandi og skemmti- legt að stíga á sviðið þegar þar að kemur. Það er auðvelt að skemmta sér á Þjóðhátíð, jafnvel þótt maður sé að skemmta öðrum í leiðinni.“ Á síðasta ári f lutti Jón Jóns- son þjóðhátíðarlagið en árið þar á undan var lagið samið af Birni Jörundi og flutt af hljómsveitinni Nýdönsk. Oftast verður þjóð- hátíðarlagið að vinsælum sumar- smelli. Hér má sjá textann við lagið Haltu fast í höndina á mér sem Sálin f lytur. Allir sem ætla á þjóðhátíð þurfa að kunna hann. Þjóðhátíðarlag 2015 Úr Ægi köldum eyland í suðri rís og góður er byr. Á ölduföldum í ágústbyrjun þangað siglum sem fyrr. Þar söngvar óma í sæludalnum og í sálinni á mér. Og augu ljóma því æði margir finna ástina hér. Má ég kíkja í tjaldið hjá þér? Við elskum lífið þessar ljúfu nætur þá logar lýsa upp ævintýraheim. Hér rætast draumar ef að líkum lætur. ||: Haltu fast í höndina á mér. :|| Svo kemur dagur og kannski sólin okkur kyssi um stund. Hve hann er fagur hamarinn hái sem við liggjum hér und. En tíminn flýgur, sjá fyrr en varir fölna urtir og láð. Sumarið líður svo fljótt — en varla mér úr minni í bráð. Tökum síðar upp þennan þráð. Við elskum lífið þessar ljúfu nætur þá logar lýsa upp ævintýraheim. Hér rætast draumar ef að líkum lætur. ||: Haltu fast í höndina á mér :|| — þessa nótt... Hæfilega samsett af sumri og rómantík Sálin flytur þjóðhátíðarlagið í ár sem hefur skotist upp vinsældalistann. Lagið nefnist Haltu fast í höndina á mér. Það var Guðmundur Jónsson sem samdi lagið en Stefán Hilmarsson textann. Lagið er þegar orðið að einu vinsælasta lagi landsins. Stefán Hilmarsson samdi textann við nýja þjóðhátíðarlagið. Páll Óskar Hjálmtýsson leikur stórt hlutverk á Þjóðhátíð í ár. Hann byrj- ar á því að spila á Húkkaraballinu á fimmtudag, en það hefur stækk- að með hverju árinu og í fyrra var aðsóknarmet slegið þegar fjórtán hundruð miðar voru seldir. Á föstu- dag tekur hann svo þátt í barnadag- skrá Þjóðhátíðar og hefur sama hátt- inn á og hann hefur haft frá árinu 2008. „Ég tek nokkur af mínum bestu lögum á litla sviðinu en eftir það verður aðalatriðið – þá spyr ég hvort einhver á svæðinu vilji fá selfí með mér eða áritað plakat og þá verður allt vitlaust,“ segir hann og hlær. Palli tekur um tvo tíma í að af- greiða alla því hann lætur engan fara heim í fýlu. „Ég tek mér góðan tíma og sinni krökkunum vel því ég veit að það getur skipt þau gríðar- legu máli seinna meir. Þegar ég var fjórtán ára beið ég í fimm klukku- tíma röð til að fá áritun frá hljóm- sveitinni Five Star, sem var svar Breta við Jackson 5. Þegar ég sagði þeim að lögin þeirra hefðu komist á toppinn á Íslandi tóku öll í spaðann á mér og ég sveif út á bleiku skýi. Ég á árit- aða plötuna enn þá. Þetta er ástæð- an fyrir því að þegar einhver kemur til mín og biður um áritun eða selfí segi ég aldrei „nei“. Ég hef ekki efni á að segja „nei“ við áreitunum þegar ég hef unnið að því hörðum höndum í tuttugu ár að verða eins frægur og ég get.“ Á sunnudagskvöld snýr Palli aftur til Eyja og byrjar á því að taka þátt í Brekkusöngnum með Buffinu og öðrum valinkunnum gestasöngv- urum. „Ég verð svo með Pallaball í Herjólfsdal frá klukkan þrjú um nóttina og hætti ekki fyrr en sólin verður komin upp. Ég hef fengið að gera þetta nokkrum sinnum áður og ég elska þessa töfra sem myndast í Herjólf sdal á þessum tíma, þetta er alveg magnað og þessa stemningu sem myndast fær maður örugglega hvergi annars staðar að upplifa,“ segir Palli og brosir. Byrjar og endar á Þjóðhátíð Páll Óskar spilar á Húkkaraballinu, syngur sín bestu lög fyrir börnin og býður þeim með sér í myndatöku, tekur þátt í Brekkusöngnum og slær svo upp alvöru Pallaballi í Herjólfsdal aðfaranótt mánudags og spilar þar til sólin kemur upp. Það verður nóg að gera hjá Palla um verslunarmannahelgina og leikur hann stórt hlut- verk á Þjóðhátíð. FYRIR ÞÁ TM 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 5 4 -7 3 7 C 1 7 5 4 -7 2 4 0 1 7 5 4 -7 1 0 4 1 7 5 4 -6 F C 8 2 8 0 X 4 0 0 6 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.