Fréttablaðið - 18.07.2015, Síða 27
Styr vakti athygli fyrir tveimur árum þegar hann var valinn til að fara með
aðalhlutverk í bíómyndinni Falsk-
ur fugl. Hann hefur alla tíð haft
áhuga á leiklist og er ánægður
með þá miklu reynslu sem hann
fékk á þessum tíma. „Kvikmynda-
gerð hefur alltaf heillað mig ekki
síður en leiklistin. Ég gæti vel
hugsað mér að starfa við eitt-
hvað henni tengt í framtíðinni,“
segir hann. Styr fór með hlut-
verk Arnaldar í myndinni, sem
var byggð á skáldsögu Mikaels
Torfasonar, og fékk mjög góða
dóma. Meðal annars var sagt um
leik Styrs í myndinni: „Þar spilar
aðalleikarinn, Styr Júlíusson,
stóran þátt, og eina stundina
langar mann að gefa honum
vinalegt faðmlag og þá næstu vill
maður helst senda hann í sveit.
En þarna er hæfileikaríkur piltur
á ferðinni sem spennandi verður
að fylgjast með,“ sagði Haukur
Viðar Alfreðsson í Fréttablaðinu.
ÓVÆNT TILBOÐ
Það komu þó önnur tilboð en
leikur í bíómyndum upp í hend-
urnar á Styr. Hann fór í ferðalag
með móður sinni fyrr á þessu ári
til Parísar og þá varð kúvending
í lífi hans. „Við mamma fórum út
að borða í París og þá kom fólk
frá þessari umboðsskrifstofu og
bauð mér að koma á skrifstofuna
og hitta sig. Ég hef reyndar lent
í slíku áður en síðan hefur lítið
orðið úr hlutunum. Ég ákvað
samt að fara í heimsókn daginn
eftir og í framhaldinu var mér
boðið að sýna fyrir Sacai á tísku-
vikunni í París,“ segir Styr.
Þess má geta að Sacai er risa-
stórt hönnunarmerki og býður
bæði kven- og herrafatnað. Sacai
á uppruna sinn í Japan en merkið
fæst nú um allan heim. „Ég var
síðan í tveimur stórum verkefn-
um hjá New Madison fyrr í þess-
um mánuði, fór meðal annars til
New York og svo fór ég í verkefni
fyrir tímarit. „Mér fannst gaman
að prófa þennan bransa og sér-
staklega að fá að ferðast. Ég von-
ast til að það verði fleiri ferðalög
í haust,“ segir Styr sem er núna í
fríi á Íslandi og starfar sem þjónn
á veitingahúsinu Snaps.
STYR JÚLÍUSSON, FYRIRSÆTA OG LEIKARI „Ég var heppinn,“ segir Styr sem
hlakkar til spennandi hausts í fyrirsætubransanum. MYND/ERNIR
UPPGÖTVAÐUR Í PARÍS
FRAMABRAUT Styr Júlíusson er 22 ára og þegar kominn með fyrirsætusamn-
ing hjá þekktri franskri umboðsskrifstofu, New Madison. Honum var boðið
módelstarf þegar hann sat á veitingahúsi í París. Hann er í fríi núna en síðan
verður haldið til Frakklands á ný og jafnvel Asíu.
MEIRIHÁTTAR ÚTITÓNLEIKAR
Tólf tíma maraþontónleikar verða í KEXPorti í dag.
Dúndurtónleikar þar sem tólf bönd koma fram. Ekki sak-
ar að það er ókeypis inn og margt skemmtilegt í boði.
Síða 4
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
5
-C
8
2
C
1
7
5
5
-C
6
F
0
1
7
5
5
-C
5
B
4
1
7
5
5
-C
4
7
8
2
8
0
X
4
0
0
1
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K