Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 28
FÓLK|
ÁHUGI Á LEIKLIST
OG KVIKMYNDUM
Styr er ekki alveg ókunnugur í
París. Móðir hans, Linda Björg
Árnadóttir, fagstjóri fata hönn-
unar deildar Listaháskóla Íslands,
starfaði þar sem hönnuður eftir
að hann fæddist. „Ég átti heima
í París fyrstu árin mín og mér
líður alltaf vel þegar ég kem
þangað,“ segir hann. Styr segir
að þetta nýja starf hafi eiginlega
verið eins konar heppni fyrir
hann. „Mér finnst skemmtilegt
að kynnast einhverju nýju. Núna
hef ég umboðsskrifstofu sem sér
um öll mál fyrir mig, sem er mjög
þægilegt. Ég þurfti ekkert að hafa
fyrir þessu en það er ekki sjálf-
gefið fyrir þá sem vilja feta þessa
braut.“
Frá því að Styr lék í Fölskum
fugli hefur hann tekið að sér lítil
verkefni, eins og hann orðar það.
Hlutverk í stuttmyndum, þar af
var eitt útskriftarverkefni fyrir
nema í Listaháskóla Íslands. „Ég
hef mestan áhuga á kvikmyndum
og tónlist,“ bætir hann við. „Það
hefur hins vegar ekkert stórt,
spennandi hlutverk enn komið
upp í hendurnar á mér,“ segir
hann og hlær. „Maður vonar þó
auðvitað að eitthvað bjóðist í
framtíðinni. Ég er opinn fyrir
öllum verkefnum. Ég hef aðeins
unnið fyrir Eskimo models á
undanförnum árum og það hefur
sömuleiðis verið mjög fínt.“
Styr hefur ekki langt að sækja
listræna hæfileika sína. Móðir
hans er vel þekktur hönnuður og
hann segir að faðir sinn, Júlíus
Þorfinnsson, hafi dútlað við leik-
list á árum áður. „Hann er ekkert
síður listrænn en mamma,“ segir
hann.
ÍSLENSKUR VÍKINGUR
Styr er fremur óvenjulegt nafn
og óþjált fyrir Frakka. Þeir kusu
því að kalla hann Julius. „Ég
vildi hafa mitt raunverulega
nafn en Frakkarnir töldu betra
að hafa þetta svona. Nafnið mitt
þótti ekki nógu grípandi. Það er
reyndar alltaf mjög skemmtilegt
þegar ég reyni að segja fólki hvað
ég heiti þarna úti. Annars er
þetta forníslenskt nafn, komið af
víkingum,“ útskýrir Styr. „Nafnið
þýðir „stríð eða styrjöld“.“
Styr segir að módelbransinn,
eins og hann kynntist honum
á tískuvikunni í París, sé bæði
skrýtinn og skemmtilegur. „Allir
ljósmyndarar sem ég vann með
eru frábærir karakterar. París er
tískuborgin og þar er allt á iði í
kringum tískuviku. Það var sér-
staklega ánægjulegt að kynn-
ast því,“ segir Styr. Hann segist
ekki hafa kynnst skuggahliðum
tískuheimsins en viðurkennir að
hafa heyrt ýmsa hluti. „Ég var
einungis með gott fólk í kringum
mig.“
Er auðveldara fyrir stráka en
stelpur að feta þessa braut? „Ég
gæti trúað því. Það er hörð sam-
keppni hjá stelpum í módelheim-
inum. Ég var hins vegar heppinn
þar sem starfið kom óvænt upp
í hendurnar á mér.“ Styr segist
hlakka mikið til þegar hann fer
aftur út í september. „Ég held
að allt ungt fólk dreymi um að
flytja til annarra landa í einhvern
tíma. Auka víðsýnina og kynn-
ast nýjum hlutum, ég er einn af
þeim.“
elin@365.is
HEIMA Í FRÍI „Það var skemmtilegt að kynnast tískuheiminum í París.“ MYND/ERNIR
HELGIN
Dagana 24.-27. júlí standa Heilsudrekinn og Wushu bardagaíþróttafélagið Drekinn í samstarfi við Alþjóða heilsu-qigong
sambandið fyrir námskeiði í heilsu-qigong
(borið fram tsí-gong). Þrír sérfræðingar og
qigong-meistarar kenna á námskeiðinu, þau
Zhuang Yongchang frá íþróttaháskólanum í
Peking, Yao Qiong frá íþróttaháskólanum í
Guang Shou og Chen Changle frá íþróttaháskól-
anum í Shanghai, en þau hafa ferðast um allan
heim til þess að kenna helstu aðferðir og fræða
um heimspekina og vísindin bak við þessa
aldagömlu líkams- og sálarræktaraðferð. Fyrir
þá sem ekki þekkja heilsu-qigong þá er það
fimm þúsund ára gamalt æfingakerfi í heilsu-
rækt. „Heilsu-qigong er meira en bara líkams-
rækt,“ segir Dong Qing Guan, sem hefur rekið
Heilsudrekann frá árinu 1998. „Æfingarnar eru
byggðar á hefðbundnum kínverskum lækn-
ingaaðferðum. Þar fer saman qi, sem merkir
lífskraftur, og gong, sem merkir nákvæmar
æfingar.“ Þeir sem stunda heilsu-qigong upplifa
aukna vellíðan, blóðþrýstingur verður eðlilegur
og heilsuræktin bætir hjarta- og æðastarfsemi
líkamans, auk þess að minnka kólesteról. Þá er
talið að heilsu-qigong geti dregið úr þrálátum
sársauka frá liðagigt, aukið súrefnisflæði um
líkamann og minnkað streitu og álag. Æfing-
arnar draga úr þunglyndi og kvíða og byggja
upp sjálfsvirðingu. Þessi aldagamla heilsurækt
eykur heilbrigði og vellíðan og margir vestrænir
læknar hafa viðurkennt áhrifamátt hennar.
„Heilsu-qigong er fyrir alla,“ segir Qing. „Sumir
gera æfingarnar standandi en ef það er erfitt þá
má setjast niður eða jafnvel sitja allan tímann.“
Þetta er í þriðja sinn sem Heilsudrekinn
stendur fyrir námskeiðum af þessum toga og
hafa þau notið mikilla vinsælda. Námskeiðin í
heilsu-qigong hefjast eins og áður sagði föstu-
daginn 24. júlí klukkan fimm og standa laugar-
dag og sunnudag milli 10.30 og 17. Fyrirlestur
verður síðan á mánudaginn milli 16.00 og 18.00
í Háskóla Íslands. Þeir sem sækja þetta þriggja
daga námskeið fá í kaupbæti mánaðaraðgang
að qigong-tímum í Heilsudrekanum til að festa
sér það í minni sem kennt var á námskeiðinu.
Skráning er í síma 553 8282. Starfsemi Heilsu-
drekans er hægt að kynna sér nánar á heima-
síðunni www.heilsudrekinn.is og á Facebook,
þar sem getur að líta myndbandsupptökur af
hinum ýmsu greinum sem eru æfðar og kenndar
hjá Heilsudrekanum ásamt öðrum fróðleik.
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýsendum að kynna vörur
og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson | Hönnun: Silja
Ástþórsdóttir Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
KENNARAR Á HEIMSMÆLIKVARÐA Kennararnir kenna
allir við kínverska íþróttaháskóla og hafa farið um allan heim
til þess að kenna heilsu-qigong.
MÖGNUÐ KÍNVERSK
HEILSURÆKT
HEILSUDREKINN KYNNIR Alþjóða heilsu-qigong-félagið verður með
kynningarnámskeið dagana 24.-27. júlí í Heilsudrekanum, Skeifunni.
Kínverskir qigong-meistarar verða leiðbeinendur á námskeiðinu.
KAUPTÚNI 3 | SÍMI 564 4400 | VEFVERSLUN Á WWW.TEKK.IS
Opið
mánudaga–laugardaga kl. 11-18
sunnudaga kl. 13-18
20–60%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
ÚTSALA!
ÚTSALA!
af öllu frá
ETHNICRAFT
20 -40
af öllum vörum frá
UMBRA
20 -40
af öllum vörum frá
HABITAT
20 -60
af öllu frá
HOUSEDOCTOR
20 -40
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
5
-E
A
B
C
1
7
5
5
-E
9
8
0
1
7
5
5
-E
8
4
4
1
7
5
5
-E
7
0
8
2
8
0
X
4
0
0
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K