Fréttablaðið - 18.07.2015, Side 35
| ATVINNA |
Kælivirkjar, vélvirkjar,
vélstjóri eða rafvirki
Vegna mikilla anna ætlar Ísfrost ehf að fjölga mönnum á verkstæði
sínu í Reykjavík. Leitað er eftir vönum kælivirkjum, vélvirkjum,
vélstjórum eða rafvirkjum. Einnig kemur til greina að ráða duglega
menn án réttinda. Leitað er að mönnum í framtíðarstörf hjá ört
vaxandi fyrirtæki.
Ísfrost ehf er rúmlega 20 ára gamalt fyrirtæki, sérhæft í sölu,
uppsetningu og þjónustu á kæli og frystibúnaði til iðnaðarnota.
Fyrirtækið er einnig löggiltur rafverktaki.
Okkur langar að bjóða þér að slást í hópinn. Við viljum gjarnan að
þú sért hress, duglegur, sjálfstæður og þjónustulundaður.
Æskilegt er að þú sért með iðnmenntun, þokkalega fær á tölvu og
skiljir íslensku. Reynsla af faginu er kostur en ekki skilyrði.
Þar sem kæli- og frystitæki snerta nánast öll svið sem hægt er að
hugsa sér, er um fjölbreytt og skemmtilegt starf að ræða.
Góð laun í boði fyrir fyrir ábyrga, heiðarlega og áhugasama aðila.
Nánari upplýsingar veitir Þorsteinn í síma 899 8898
eða á steini@isfrost.is
Vinsamlega skal skilið umsóknum fyrir 25. júlí næstkomandi á
netfangið steini@isfrost.is eða til Ísfrost ehf að Funahöfða 7,
110 Reykjavík. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Borgarbyggð auglýsir:
Tölvuumsjónarmaður
Laust er til umsóknar 80% starf tölvuumsjónarmanns.
Brýnt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Tölvuumsjónarmaður sinnir daglegri notendaþjónustu og
kerfisstjórn í grunnskólum, leikskólum og öðrum stofnunum
sveitarfélagsins.
• Umsjón og rekstur á Windows netþjónum ásamt umsýslu
með Office365.
• Uppsetning á vél-, hug- og jaðarbúnaði.
• Umsjón með tölvum og öðrum vélbúnaði.
• Innkaup og ráðgjöf vegna vél- og hugbúnaðar.
• Samskipti við birgja og þjónustuaðila upplýsingatæknilausna.
• Stefnumótun og ráðgjöf á sviði upplýsingamála.
• Námskeið og fræðsluefni fyrir notendur.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólagráða eða önnur menntun sem nýtist í starfi.
• Starfsreynsla á sviði upplýsingatækni.
• Góð þekking og reynsla við þróun og viðhald upplýsingakerfa.
• Góð þekking og reynsla á innleiðingu hugbúnaðar.
• Góð þekking á Microsoft Office, Office365 og leyfismálum.
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
• Rík þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.
Leikskólastjóri í Borgarbyggð
Laust er til umsóknar starf leikskólastjóra Andabæjar á
Hvanneyri. Starfshlutfall er 100% og brýnt er að viðkomandi
geti hafið störf í ágúst.
Leikskólastjóri starfar samkvæmt lögum og reglugerð um
leikskóla, öðrum lögum er við eiga, aðalnámskrá leikskóla og
stefnu Borgarbyggðar. Leikskólastjóri veitir skólanum faglega
forstöðu og ber ábyrgð á rekstri skólans. Heimasíða skólans
www.andabaer.borgarbyggd.is.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun.
• Reynsla af stjórnun leikskóla.
• Færni í mannlegum samskiptum og þverfaglegu starfi.
• Sjálfstæð, skipulögð og öguð vinnubrögð.
• Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Umsóknarfrestur er til og með 24. júlí fyrir stöðu
leikskólastjóra og 31. júlí fyrir stöðu tölvuumsjónarmanns.
Umsækjendur eru beðnir um að skila inn umsóknum á netfangið
kolfinna@borgarbyggd.is. Með umsókn skal fylgja starfsferils-
skrá og kynningarbréf.
Í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar hvetur sveitar-
félagið karla jafnt sem konur til þess að sækja um störfin.
Hagkaup óskar eftir að ráða starfsmenn. Um er að ræða
100% störf í dag- og næturvinnu í Hagkaup Eiðistorgi
Allar nánari upplýsingar veitir Enric Teitsson verslunarstjóri á
staðnum eða í síma 563 5000. Áhugasamir geta einnig sent
póst á nesverslunarstjori@hagkaup.is
• Við leitum að fólki til starfa sem hefur áhuga á að vaxa og
dafna með okkur.
• Hagkaup leggur mikla áherslu á þjónustulund, áreiðanleika
og frumkvæði.
• Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri.
HAGKAUP
EIÐISTORGI
Hagkaup er smásölufyrirtæki, sem býður
íslenskum heimilum breitt úrval af vörum til
daglegra þarfa, jafnt í matvöru, sem fatnaði,
húsbúnaði og vörum til tómstundaiðkunar.
Hjá Hagkaup starfar samhentur hópur fólks,
um 850 manns í 500 stöðugildum.
EFTIRLITSMAÐUR
Í LOFTHÆFI- OG
SKRÁSETNINGAR-
DEILD
Samgöngustofa óskar eftir að ráða eftirlitsmann í lofthæfi-
og skrásetningardeild. Starfið felst í skrásetningu loftfara,
lofthæfi þeirra og flugtæknilegra framleiðsluvara, vottun og
eftirliti með fyrirtækjum sem annast viðhald og viðhaldsstýringu
sem og þeim er annast kennslu flugvéltækna. Í starfinu
getur einnig falist mat á umsóknum og afgreiðsla skírteina
og tegundaáritana til flugvéltækna.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Krafist er menntunar flugvéltæknis með Part 66 skírteini eða
tæknilegs náms á háskólastigi sem tengist lofthæfi loftfara.
• A.m.k. fimm ára reynsla af viðhaldi eða viðhaldsstjórnun
loftfara hjá fyrirtæki skv. kröfum EASA, þekking á hönnun
loftfara og á EASA reglugerðum.
• Umsækjandi þarf að tileinka sér mjög öguð vinnubrögð, þ.m.t.
alþjóðlegar kröfur sem gilda í flugi.
• Mjög góð tök á íslensku og ensku er skilyrði sem og gott vald
á úrvinnslu og framsetningu upplýsinga.
Leitað er að einstaklingi með góða samskiptahæfileika,
örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flug-
starfsemi. Viðkomandi þarf að sýna frumkvæði, sjálfstæði
og fagmennsku í starfi, vera skipulagður og agaður í verkum
sínum og geta unnið undir miklu álagi. Í boði er áhugavert
og fjölbreytt starf í krefjandi umhverfi sem reynir á faglega
hæfni og frumkvæði einstaklings.
Umsóknarfrestur er til 3. ágúst 2015
Hægt er að sækja um starfið rafrænt
á www.samgongustofa.is/storf
Samgöngustofa hvetur jafnt konur sem karla til að sækja
um þessa stöðu.
Nánari upplýsingar veitir Ómar Þór Edvardsson, deildarstjóri
lofthæfi- og skrásetningardeildar, í síma 480 6000.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu
hefur verið tekin. Samgöngustofa áskilur sér rétt til þess að
hafna öllum umsóknum. Umsóknir gilda í a.m.k. sex mánuði
ef staða losnar á ný. Starfskjör eru í samræmi við kjara-
samning ríkisins og viðkomandi stéttarfélags.
Samgöngustofa er stjórnsýslustofnun
samgöngumála með um 140 starfsmenn.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að öruggum,
sjálfbærum, greiðum og hagkvæmum
samgöngum. Samgöngustofa annast eftirlit
er varðar flug, siglingar, umferð og öryggis-
eftirlit með samgöngumannvirkjum og leiðsögu.
Upplýsingar um Samgöngustofu má finna
á www.samgongustofa.is.
Samgöngustofa
Ármúli 2
108 Reykjavík
Sími: 480 6000
LAUGARDAGUR 18. júlí 2015 5
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-B
2
E
C
1
7
5
3
-B
1
B
0
1
7
5
3
-B
0
7
4
1
7
5
3
-A
F
3
8
2
8
0
X
4
0
0
4
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K