Fréttablaðið - 18.07.2015, Qupperneq 48
Þjóðhátíð LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 20156
Hjalti Jónsson, doktor í sál-fræði við Syddansk Uni-versitet í Árósum, hefur
haft yfirumsjón með sálgæslunni
á Þjóðhátíð í nokkur ár. „Sálgæsl-
an hefur reyndar verið í mörg ár í
dalnum en eftir aukningu í kyn-
ferðisbrotaárásum fyrir nokkr-
um árum var ákveðið að gefa
í og þá var ég fenginn til að sjá
um þetta.“ Hjalti starfar á geð-
sjúkrahúsi í Danmörku þar sem
hann hefur unnið með sjúklinga
með áfallastreituröskun og hefur
einnig starfað á neyðarmóttöku
þar. Honum er því vel ljóst hversu
mikilvægt er að taka strax vel og
á réttan hátt á móti brotaþolum
kynferðisofbeldis. „Rannsóknir
hafa sýnt að meirihluti þeirra sem
verða fyrir kynferðisofbeldi mun
eiga við sálræna kvilla að stríða.
Okkar starf er að koma þessu fólki
í réttar hendur sem fyrst.“ Hann
segir að gæslan sé alltaf mjög
sýnileg í dalnum og reyni að vera
sem mest á þeim svæðum þar
sem hætta er á að fólk einangr-
ist. „ Og þau vita um hjúkrunar-
fræðinga, lækna og sálfræðinga
í sjúkraskýlinu allan sólarhring-
inn. Ef upp kemur mál förum við
með fólk rakleitt á sjúkra húsið í
Vestmannaeyjum og erum í nánu
samstarfi við Neyðarmóttökuna í
Reykjavík. Við sjáum um það sem
fólk í losti er ekki í standi til að sjá
um sjálft, eins og að hafa sam-
band við aðstandendur, halda
utan um atburðarás og svo fram-
vegis. Lögreglan er þarna líka og
við hvetjum til kæru.“ Hann seg-
ist ekki vinna beint sem sálfræð-
ingur á þessu stigi. „Við erum
hins vegar að passa að fólk lendi
ekki í einstaklingum sem segja að
það eigi bara að hrista þetta af sér
og halda áfram að skemmta sér
eða eitthvað í þeim dúr. Ég hef í
starfi mínu með fólki sem þjáist af
áfallastreituröskun spurt hvernig
viðbrögð fólk hefði viljað fá þegar
áfallið reið yfir og vinn samkvæmt
því. Við reynum að minnka skað-
ann eins og mögulega er hægt í von
um að það muni þá auðvelda ferl-
ið sem á eftir kemur. Fórnarlamb-
ið nýtur alltaf vafans hjá okkur.
Og við teljum mikilvægt að allir
sem koma að málum komi fram
með sérstakri nærgætni þegar um
brotaþola er að ræða, hvort sem
málið telst sannað eða ekki.“
Hann segir öll tilvik tilkynnt
til Neyðarmóttökunnar í Reykja-
vík. „Helst viljum við senda fólk
þangað strax ef um nauðgun er
að ræða. Ástæðan er sú að svona
málum er oft vísað frá á tæknileg-
um forsendum og það er ekki hægt
að taka lífssýni á jafnfullnægjandi
hátt á spítalanum í Vestmannaeyj-
um, svo dæmi séu tekin. Marg-
ir vilja ekki fara, fólk er í sjokki og
vill hrista af sér það sem gerðist og
halda áfram með lífið og Þjóðhátíð-
ina. Í þeim tilfellum tökum við lífs-
sýni á sjúkrahúsinu hér með sér-
fræðing á Neyðarmóttökunni í sím-
anum. Við reynum að sannfæra fólk
um að fara í ítarlega rannsókn strax
því það er of seint þegar á líður. Ef
fólki líður enn þá mjög illa og endur-
upplifir atburði og þess háttar mán-
uði síðar þá er mikilvægt að leita sér
hjálpar á Neyðarmóttökunni.“
Hjalt i er uppalinn í Vest-
mannaeyjum og finnst mikilvægt
að gera allt sem hægt er til að út-
rýma kynferðisofbeldi á Þjóðhá-
tíð. „Ég upplifi Þjóðhátíð sem fjöl-
skylduhátíð og finnst kynferðis-
ofbeldi ljótur blettur á hátíðinni.
Blessunarlega hefur verið minna
að gera hjá okkur síðustu árin og
vonandi að forvarnir séu að skila
árangri.“
Vonar að forvarnirnar skili árangri
Dr. Hjalti Jónsson sálfræðingur sér um sálgæsluna á Þjóðhátíð og vill útrýma kynferðisofbeldi í Dalnum.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum á að vera ánægjuleg fyrir alla gesti og nauðsynlegt að stemma stigu við ofbeldi af öllum toga, ekki síst
kynferðisofbeldi.
Dr. Hjalti segir mikilvægt að taka á móti
þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi á réttan
hátt; af virðingu, fagmennsku og hlýju.
Það sést hverjir drekka Kristal
P
IP
A
R
\T
B
W
A
•
S
ÍA
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
5
-0
7
9
C
1
7
5
5
-0
6
6
0
1
7
5
5
-0
5
2
4
1
7
5
5
-0
3
E
8
2
8
0
X
4
0
0
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K