Fréttablaðið - 18.07.2015, Blaðsíða 56
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 28TÍMAMÓT
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og vinur,
SNORRI GUÐMUNDSSON
Fjarðarseli 7, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans aðfaranótt
14. júlí. Útför hans fer fram frá Seljakirkju
fimmtudaginn 23. júlí kl. 13.00. Þeim sem
vilja minnast hans er bent á Karitas eða
líknardeild Landspítalans.
Lilja Jónsdóttir
Jón Þór Andrésson Erla Erlendsdóttir
Guðmundur Snorrason Kristín Sigurðardóttir
Elsa Þórdís Snorradóttir Halldór Örn Sigurjónsson
og barnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
hlýhug og samúð vegna andláts og útfarar
eiginmanns míns, föður og afa,
DAVÍÐS SCHIÖTH ÓSKARSSONAR
Funafold 27.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
á 11G og á gjörgæsludeild Landspítalans við
Hringbraut.
Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir
Arnþór Davíðsson
Atli Steinn Davíðsson
Axel Snær Ammendrup Atlason
Okkar elskuleg,
ELÍSABET GUÐLAUG FOSS
síðast til heimilis að Miðvangi, Hafnarfirði,
lést 5. júní sl. og fór útför fram 18. júní. Við
þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við
fráfall hennar.
Ólafur Hilmar Foss Heiðrún Sara Pálsdóttir
Írena Dögg Elísa Björk
og aðrir ástvinir.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
BIRGIR SIGURBJARTSSON
málarameistari,
Holtastíg 22,
Bolungarvík,
lést í Sjúkraskýli Bolungarvíkur síðastliðinn
þriðjudag.
Helga Svandís Helgadóttir
Helgi Birgisson Kristín Una Sæmundsdóttir
Lilja Hálfdánsdóttir
Óðinn Birgisson Hjördís Geirsdóttir
Finnbjörn Birgisson Linda Björk Harðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Útfararþjónusta síðan 1996
Innilegar þakkir fyrir samúð, hlýhug og
vináttu við andlát og útför ástkærrar móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR FRIÐBERTSDÓTTUR
frá Súgandafirði.
Alúðarþakkir til allra þeirra sem hafa liðsinnt
Ásdísi og stutt í gegnum tíðina, sérstakar
þakkir til starfsfólks á Frúargangi A-3 á hjúkrunarheimilinu Grund
fyrir frábæra umönnun.
Fjölskyldan.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við
andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
GUÐRÍÐAR PÉTURSDÓTTUR
(LILLU)
Klapparhlíð 5, Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks göngudeildar
11B og blóðlækningadeildar 11G á Landspítalanum við Hringbraut.
Jón Auðunn Kristinsson
Pétur Óli Jónsson Hanna B. Hreiðarsdóttir
Jón Þór Jónsson Halldóra Andrésdóttir
Jóhann Ingi Jónsson Valgerður Sævarsdóttir
og ömmubörnin.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
systir, amma og langamma,
BÁRA PÉTURSDÓTTIR
Klapparhlíð 3, Mosfellsbæ,
(áður Akureyri)
lést á heimili sínu mánudaginn 13. júlí sl.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju 24. júlí
kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Slysavarnafélagið Landsbjörg.
Margrét Sveinbjörnsdóttir
Viðar Sveinbjörnsson
Gunnar Smári Sveinbjörnsson
Elmar Andri Sveinbjörnsson
makar, systkini, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður, faðir og afi,
STEFÁN B. STEINGRÍMSSON
rafvirkjameistari,
Maltakri 9, Garðabæ,
lést á Landspítalanum við Hringbraut
föstudaginn 10. júlí sl. Útförin fer fram
frá Garðakirkju þriðjudaginn 21. júlí kl. 13.00.
Erna Svavarsdóttir
Þóra Stefánsdóttir
Kolbrún Erna Ingadóttir og Bergvin Logi Ingason
Elskulega dóttir okkar, eiginkona, móðir,
tengdamóðir, amma, systir og mágkona,
KATRÍN TÓMASDÓTTIR
kennari,
Laxatunga 11, Mosfellsbæ,
lést á Landspítalanum 12. júlí. Útförin fer
fram frá Grafarvogskirkju þriðjudaginn
21. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar afþakkaðir. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Samtök sykursjúkra.
Tómas Lárusson Hrafnhildur Ágústsdóttir
Páll Kristjánsson
Fannar Pálsson Agnes Ágústsdóttir
Bylgja Pálsdóttir Sæmundur Örn Kjærnested
Ágúst Tómasson Elísabet Ingvarsdóttir
„Við höfum ekki fundið fyrir sam-
drætti í sölu DVD-diskanna,“ segir
Sigríður Beinteinsdóttir söngkona og
önnur kvennanna á bak við einhverja
lífseigustu barnapíu landsins, Söngva-
borgardiskana sem fagna í dag fimm-
tán ára afmæli.
Sigga er þó ekki ein því þær María
Björk Sverrisdóttir mynda tvíeykið
sem hefur skemmt íslenskum börn-
um allan þennan tíma. „Við áttum alls
ekki von á því þegar við byrjuðum
fyrir fimmtán árum að vera að undir-
búa sjöunda diskinn,“ segir Sigga og
skellir upp úr. Hún segir að þær Mæja
hafi þróað Söngvaborg saman árið
2000 og hafi heldur betur vaxið fisk-
ur um hrygg, og seljist fyrstu disk-
arnir enn vel. „Nú eru börnin á þeim
diskum orðin að fullorðnu fólki og að
minnsta kosti eitt þeirra orðið foreldri
sjálft,“ skýtur Sigga að. Lögin sem þær
stöllur hafa gætt lífi á mynddiskunum
hlaupa á fleiri tugum, og segir Sigga
þær velja gaumgæfilega hvað skuli sett
á diskana. „Við veljum eftir kúnstar-
innar reglu og prófum lögin á börnum
og sjáum hvað er að virka. Við fáum
mikið að heyra að fólk sé að kaupa
sömu diskana aftur og aftur þegar þeir
hafa rispast til óbóta, og viðurkenna
sumir foreldrar að þeir séu orðnir nett
þreyttir á okkur Maríu,“ segir Sigga og
hlær sínum dillandi hlátri. „En oftast
bæta þeir svo við að þetta sé afbragðs
barnapía.“ Geta foreldrar því farið að
hlakka til, því nýja efnið kemur út í
október á þessu ári.
Munu þær María og Sigga fagna
þessum merku tímamótum í dag í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum, sem einn-
ig heldur upp á afmæli, því garðurinn
blæs til mikillar gleði í tilefni tuttugu
og fimm ára afmælis skemmtigarð-
arins. „Þarna verður mikið húllum-
hæ. Við byrjum okkar dagskrá á svið-
inu klukkan tvö en garðurinn byrjar
sitt afmælisfjör strax við opnun,“ út-
skýrir Sigga og bætir við að á sviðið
munu allar persónurnar sem kíktu í
heimsókn í Söngvaborg undanfarin
fimmtán ár stíga og sprella, og má þar
helsta nefna Masa og Georg. Einnig
kíkja hinir ýmsu gestir við, svo sem
Alda Dís Kristjánsdóttir, sigurvegari
Ísland Got Talent, en hún mun syngja
Disney-lög fyrir afmælisgestina.
Aðspurð um hvernig sé að horfa um
öxl á þessum tímamótum segist Sigga
finna til mikillar gleði. „Þetta hefur
verið ofsalega gaman og ekki síst gef-
andi. Þetta er langur tími, en á sama
tíma virkar þetta svo agalega stutt.“
gudrun@frettabladid.is
Sívinsæl Söngvaborg
Fimmtán ár eru frá því að fyrsti mynddiskur Söngvaborgar leit dagsins ljós. Sannarlega
hittu þær Sigga og María í mark því diskarnir rokseljast enn í dag á tímum internetsins.
ELDSPRÆKAR Mikið verður um dýrðir í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag, þar sem Sigga og María fagna afmælinu og ætla að selja alla
mynddiskana á „skít og kanil“ í tilefni dagsins. MYND/ LOVÍSA SIGURJÓNSDÓTTIR
Nú eru börnin á þeim
diskum orðin að fullorðnu
fólki og að minnsta kosti
eitt þeirra orðið foreldri
sjálft. 0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:0
0
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
3
-7
2
B
C
1
7
5
3
-7
1
8
0
1
7
5
3
-7
0
4
4
1
7
5
3
-6
F
0
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
5
C
M
Y
K