Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 60

Fréttablaðið - 18.07.2015, Page 60
18. júlí 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 32 Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is Urðarhvarf 8 Til sölu eða leigu glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði BORG fasteignasala kynnir til sölu eða leigu Urðarhvarf 8 í Kópavogi. Um er að ræða glæsilegt skrifstofu- og verslunarhúsnæði sem stendur á áberandi hornlóð sem snýr að Breiðholtsbrautinni. Fallegt útsýni og umhverfi, stutt í falleg útisvistarsvæði í Víðidal, Elliðaárdal og við Elliðavatn. 309 bílastæði í bílageymslu og um 150 bílastæði á lóð. Fimm lyftur eru í sameign. Góðar akstursleiðir til og frá Urðarhvarfi. Skv. Þjóðskrá Íslands er eignin samtals 16.214,8 fm. Byggingin samanstendur af sex 2400 fm hæðum og síðan er sjöunda inn- dregin. Eignin býður upp á mikla möguleika, m.a getur húsið auðveldlega hýst stórfyrirtæki á einum fleti eða fáum hæðum. Eignin er á byggingastigi. Hentar vel fyrir stór og lítil fyrirtæki og ríkisstofnanir. NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITA: Úlfar s: 897 9030 - Löggiltur fasteignasali Brandur s: 897 1401 - Löggiltur fasteignasali „Ég elska Ísland,“ segir guð móðir pönksins, Patti Smith, í upphafi viðtals, en hún sækir Ísland heim í ágúst, heldur tónleika og mun meðal annars flytja plötuna Hor- ses í heild sinni. Hrifin af íslenskum hestum „Ég kom fyrst til Íslands árið 1969 með systur minni, við vorum mjög ungar og vorum ekki með mikið af peningum svo við vissum ekki hvað við ættum að gera en okkur fannst landið mjög fallegt,“ segir Smith glöð í bragði. Tónlistarkonan hefur komið nokkrum sinnum hingað til lands eftir þessa fyrstu heimsókn og segist elska landið, fólkið og er sérstaklega hrifin af íslenska hest- inum. Hún hefur haldið nokkra tónleika hérlendis, síðast árið 2014 þegar hún kom fram ásamt Björk á náttúruverndartónleikum og eftir- minnilegt er þegar hún tróð óvænt upp ásamt leikaranum Russell Crowe sumarið 2012. Smith mun eyða nokkrum dögum hér á landi eftir tónleikana og er sérstaklega spennt fyrir því að fara á hestbak. „Ég vil fara á hest- bak og heimsækja gröf Bobby Fisc- her, ég hef farið þangað áður en ég mun fara aftur með blóm. Fara út á land og skoða mig um þar.“ Horses í heild sinni Platan Horses kom út árið 1975 og fagnar því 40 ára afmæli í ár og er fyrsta plata Smith, sem mun heiðra þennan frumburð sinn á tónleik- unum. Platan hafði mikil áhrif á pönk-rokk senuna í New York og prýðir meðal annars 44. sæti yfir 500 bestu plötur sögunnar að mati tímaritsins Rolling Stone og er meðal 100 bestu platna allra tíma samkvæmt tímaritinu Time. Ásamt Smith á sviðinu verða tveir upprunalegir meðlimir hljómsveitarinnar, þeir Lenny Kaye og Jay Dee Daugherty, ásamt bassa- og hljómborðsleik- aranum Tony Shanahan og segir hún þau munu verða trú hljómi plötunnar á tónleikunum. „Ég er stolt yfir að koma fram ásamt hljómsveitinni. Ég er stolt af því að við erum heilsuhraust og höfum verið vinir í fjörutíu ár. Við eigum svo langa sögu og munum koma með þessa sögu og vináttu okkar upp á sviðið,“ segir Smith og segir það jafnframt bæði ögr- andi og spennandi að flytja plöt- una á tónleikum frá A til Ö. „Við lofuðum Horses, en við erum ekki hljómplata, við erum rokkhljóm- sveit en við munum spila hana frá fyrsta til síðasta lags,“ segir hún og bætir við: „Fyrsta lagið á plöt- unni er Glory, venjulega þegar þú ferð á svið byrjar þú á einhverju lágstemmdara og byggir upp, en við verðum að vera tilbúin til þess að flytja það strax. Það er áskor- un, en jákvæð áskorun.“ Elskar þegar fólk syngur með „Það er spennandi að fara í gegn- um Horses með fólkinu og mér finnst frábært þegar fólk syng- ur með. Fólkið eru tónleikarnir, orkan sem það sendir og eldmóð- urinn. Þegar fólk syngur Break it up fyllir það mig af tilfinning- um,“ segir hún ánægð og hvet- ur íslenska aðdáendur til þess að hefja upp raust sína í Hörpu þann 17. ágúst næstkomandi. Smith er ásamt bandi sínu á tón- leikaferðalagi og spilaði meðal annars á Glastonbury-hátíðinni í júní síðastliðnum. Þar fékk hún Dalai Lama upp á svið og flutti ásamt áhorfendaskaranum afmælis sönginn fyrir trúarleiðtog- ann. Tónleikaferðalaginu lýkur á Íslandi sem er tilviljun sem Smith fagnar, en þau skoðuðu nokkur til- boð áður en ákveðið var að loka- tónleikarnir yrðu í Hörpu og segir hún þá ákvörðun ekki byggða á peningum heldur ást. „Þetta er fullkominn staður til þess að enda tónleikaferðina, ég get fagnað með því að ríða á hestbaki inn í sólsetr- ið,“ segir hún og hlær. Elskar orku og eldmóð áhorfenda Patti Smith segir Ísland fullkominn stað til þess að enda tónleikaferðalag sitt, en hún fl ytur plötuna Horses, sem fagnar fj örutíu ára afmæli, í heild á sínum þriðju tónleikum hérlendis. Með í för eru tveir upprunalegir meðlimir hljómsveitarinnar The Patti Smith Group. GOÐSÖGN Patti Smith hefur starfað við tónlist síðan árið 1971 og fagnar nú fertugsafmæli fyrstu plötu sinnar, Horses. NORDICPHOTOS/GETTY LÍFIÐ 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :0 0 F B 0 7 2 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 4 -D 6 3 C 1 7 5 4 -D 5 0 0 1 7 5 4 -D 3 C 4 1 7 5 4 -D 2 8 8 2 8 0 X 4 0 0 7 B F B 0 7 2 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.